Draupnir - 01.05.1907, Page 3
Formáli.
Með þessu 6. liefli af sögu Jóns biskups
Arasonar, og 11. ári Draupnirs, er þá rneiri
hlutinn komin á prent af sögu þessa þjóð-
mærings, og er nú svo fast komið að siða-
bótinni að næsta hefti verður, að öllurn lík-
indum, það síðasta liennar.
Jafn viðburðaríka sögu og sögu Jóns
bisltups Arasonar, var ekki auðið að innibinda,
að nokkru gagni, i stuttu máli, og er bún því
orðin nokkuð löng, já, lengri en mér kom lil
liugar i fyrstunni að liún mundi verða, og
liel'ði eg sjálfsagt ekki lagt út í að semja liana,
ef mér hefði dottið það í liug; því tíma mín-
um og heilsu er svo liáttað, að eg er ekki fær
um að semja rneira í einu en það hefti, sem þá
kemur út.
Eg vona nú samt fastiega, að Guð loii
mér að lifa svo lengi, þó eg sé komin á 3. ár
hins 7. tugar, að eg fái lagt síðustu hönd á
þetta rnikla og eríiða verk.
T. Þ. H.