Draupnir - 01.05.1907, Page 50
726
J3RAUPNIR.
legur með því hann þurfti svo miklu út að
svara til Gizzurar, svo samdist með þeim.
»Stattu upp mágur«, kvað prestur »og
hlustaðu á samninga biskups, eða hversu
hann vill þessu til haga. — Hvar reikar andi
þinn maður er þú híyrir ekki?«
»Eg stóð í anda á bakkanum, þar sem
þeir fóstbræður reyndu íþróttir sínar, þeir
Ólafssynir og Bolli Þorleiksson«, kvað Lass-
arus og stundi við.
»Og hvaða erindi áttuð þér þýzkur mað-
ur inn á það leiksvið?«, spurði biskup, er
þótti hann gefa sínu göfuga tilboði lítinn
gaum.
»Ekkert herra! En ástarlieilsan Gissurar
til yðar, hrakti hugarljós mitt þangað í sög-
um ykkar, þar sem góðgerðasemi og göfug-
menska voru verst launuð«, sagði Lassarus.
Biskup hugsaði sem svo: »Lassi þessi
er fyrirtaks lækni, en sér ofsjónum yflr góð-
gerðasemi minni við sveininn, er hann held-
ur sjálfan sig missa af kaupi sínu hans vegna«,
svo vék hann að öðru.
»Mig furðar að Jón biskup skyldi ekki
verða til að ná haldi á yður; eru ekki jnargir
sjúklingar þar nyrðra?«
»Jú, jú, herra! sóttin geysar þar yfir líkt
og hérna,« varð prestur fyrri til svars. »En
biskup er annars hugar um þessar muiidir,