Draupnir - 01.05.1907, Page 90
766
DKAUPNIE.
var. »0g meðal fleiri rgcsta kvað Erlendur
lögmaður Þorvarðarson vera þar í kynnisför
lijá mági sínum, og fyrst vér erum komnir
hingað, þá ætia eg að ræða ýms málefni við
lögmann í góðu næði, því hann er einn af
mínum og kirkjunnar verstu og slægustu
sakadólgum!«
Á Staðarfelli var margt um manninn,
eins og biskup hafði sagt, því Erlendur lög-
maður Þorvarðarson var kominn þangað í
kynnisför eða í einhverjum arfa málum Þór-
unnar konu sinnar, sem var dóttir Sturlu
Þórðarsonar Dalasýslumanns, og þangað sóttu
hann lieim margir hæði lærðir og leikir. —
Þangað var sömuleiðis komið margt fleira
liæði karla og kvenna, er hafði frétt, að
biskup mundi koma þangað, því margir voru
í þá daga eins og enn þá, fíknir í að sjá
heldri menn. Sökum komu biskupsins var
slegið upp dýrðlegri veislu. Biskup gekk í
slofu með þeim yppurstu, sem voru í fylgi
með honum, en var fremur áhyggjufullur
og gaf sjáanlega lítinn gaum að öllum þeim
heiðursmerkjum, sem honum voru sýnd af
þeim, sem fyrir voru; en föngulegur og fall-
egur var hann að vanda. Hann svaraði stutt
ræðum manna, en var nokkuð fjölyrtari við
lögmanninn, sem sat andspænis honum á