Draupnir - 01.05.1907, Page 107
DKATJPNIE.
783
Ljós og skuggar.
» . Við mörgu búast megið þér,
því margt á bak við tjaldið er«.
Eins og þegar hefir verið drepið á, lék
hamingjan við Jók biskup Arason um lang-
an tíina, og kóróna heimilishamingju hans
var þetta síðasta brúðkaup, tveggja barnanna
hans, Björns prests og Þórunnar því þó svo
væri þá kallað, að prestar tækju sér með-
hjálp en giftust ekki — var sá munur er þar
var á milli, mest í orði kveðnu. Og nefnum
vér því konur þeirra húsfreyjur.
Svo víkjum vér oss að veizlunni. Hún
stóð um vor. En þó svo væri þá var eng-
in þröng í búi á Hólum, og þangað var boð-
ið múg og margmenni bæði úr stiftinu sjálfu
og utanstiftis. Biskup gekk á milli gesta
sinna og lék, sem menn segja á als oddi,
svo menn höfðu sjaldan eða aldrei séð hann
jafn glaðan. Hann var við þetta tækifæri í-
klæddur sínum bezta skrúða, rauðu gull-
saumuðu biskupskápunni með mýtur á höfði
og með biskupsstafinn í hendinni. En þó
skrúði lians bæri af allra annara hamlaði
það honum ekki frá, að gefa sig á tal við
hina fátækustu bændur og verkamenn, sem
sóttu veizluna, því þeim hafði hann látið
bjóða jafnhliða hinum ríku og háttsettu, og