Fréttablaðið - 19.10.2009, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 19.10.2009, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 19. október 2009 21 Hinir vinsælu jólatónleikar Frost- rósa verða haldnir í desember áttunda árið í röð. Samúel Kristjánsson, forsvars- maður tónleikanna, segir að hvergi verði dregið úr glæsileikanum í ár. „Við stefnum að því að halda veglegustu tónleikana til þessa. Við erum að gera nýja sviðsmynd og þetta verður með mik lum glæsi - brag. Helstu lögin verða með en kannski verð- ur meira af þekktari jólalögum en áður. Þetta verður enn þá meira fyrir alla,“ segir hann. Ljóst er að helstu kanón- ur síðustu ára verða áfram meðal flytjenda, þau Mar- grét Eir, Garðar Thor Cort- es, Hera Björk og Jóhann Friðgeir. Einnig verður Guðrún Gunnarsdóttir í fyrsta skipti meðal íslensku dívanna auk þess sem Ragnhildur Gísladóttir verður aftur með eftir þriggja ára hlé. Jólatónleikar Frostrósa verða í Höllinni á Akureyri 6. desember og í Laugardalshöll 12. desember. Einnig fer stór hluti söngvara og hljómsveita víðar um landið eins og tvö síðustu ár. Frostrósatónleikarnir eru orðn- ir fastur liður í jólaundirbúningi þúsunda Íslendinga, enda með aðsóknarmestu tónleikum lands- ins síðustu árin. Kemur því ekki á óvart að stór safnpakki er væntan- legur sem inniheldur allar útgáfur Frostrósa frá upphafi, alls fimm plötur og tvo mynddiska. - fb Ný tvöföld tónleikaplata Tom Waits, Glitter and Doom, kemur út 24. nóvember. Platan var tekin upp á samnefndri tónleikaferð Waits sem hann fór í á síðasta ári og heppnaðist mjög vel. Á fyrri disknum eru lög af tíu tón- leikum kappans en á þeim síðari er eitt langt lag sem heitir Tom Tales þar sem hann lætur móðan mása eins og honum einum er lagið. Á heimasíðu Waits er hægt að fá átta lög af plötunni ókeyp- is til niðurhals. Þrjú ár eru liðin síðan síðasta plata Waits kom út, Orphans: Brawlers, Bawlers & Bastards. Tom Waits á tónleikum TOM WAITS Ný tónleikaplata frá Tom Waits er væntanleg 24. nóvember. MARGRÉT EIR Margrét Eir er eina söng- konan sem hefur verið í hópi íslensku dívanna frá upphafi. Tónlist ★★★ Reyndu aftur Magnús Eiríksson ásamt hljóm- sveitinni Buff Gamlir góðir vinir Óþarfi er að tíunda kosti þeirra lagasmíða Magga Eiríks sem hér eru sett í nýjan búning. Í raun hefði lagavalið mátt vera djarfara, því á ferilskránni leynast margfalt fleiri perlur en meðal „best of“- plata er til vitnis um. Líkt og í stór- skemmtilegu æviágripi Magnúsar svífur laufléttur kæruleysisbragur yfir plötunni og spilagleðin blívur. Eins og títt er með ábreiðuplöt- ur tekst best til þegar hendurnar eru frjálsastar. Kunnuglegri laglínu Gleðibankans er keyrt ofan í nýjan hljómagang og brugðið á hálf- gerða þjóðlagaröddun, og útkom- an er stórskemmtileg. Ég er á leið- inni virkar vel í suðrænum stíl og útsetning Samferða fer langt með að taka fyrirmyndinni fram. Annars staðar, eins og í Gamli góði vinur og Ó þú, er hlustendum akkur í að höfundurinn sjálfur syngi lögin sem hingað til hafa ómað úr börk- um annarra, því rödd Magnúsar býr yfir mikilli hlýju og persónu- leika. Sönn ást (rangnefnt Hin eina sanna ást á umslagi) og Einhvers staðar einhvern tíma aftur skortir heldur kraftinn, á meðan Kóngur einn dag og Ómissandi fólk bæta litlu sem engu við upprunalegu útgáfurnar. Verkefnið hentar Buffinu. Hljóð- færaleikur er hnökralaus og aðals- merkin, flipp og fínar raddanir, eru notuð spar- og smekklegar. Ágætis skemmtun. Kjartan Guðmundsson Niðurstaða: Frábærar lagasmíðar í nokkuð góðum höndum. Glæsilegustu Frostrósirnar til þessa SAMÚEL KRISTJ- ÁNSSON Heldur Frostrósatónleika, áttundu jólin í röð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.