Iðnneminn - 01.09.1967, Blaðsíða 20
Tilraimabifreifi General Motors, Elektrovan, er bér í
reynsluferð, sem sannaði notagildi brennslusellanna.
Comntan er sérstaklega rúmgóð þrátt fyrir litla
fyrirferð, því þar er gott rúm fyrir 2 fullorðna
og tvö börn.
að leggja á helming þess rúms sem venjuleg bifreið notar, og
eys engu eiturlofti frá sér. Hámarks kostnaður við rekstur
slíkrar bifreiðar yrði u.þ.b. 250 kr. á mánuði, sem ekki er ýkja
mikið. Auk þess hjálpar hver ferð niður brekku til að endurhlaða
rafhlöðurnar!!!!
Stjórn á hraða rafmagnsbifreiðar er mikið vandamál. Raf-
hlöðurnar hafa ákveðinn straumstyrkleika, sem ekki er hægt að
stjórna eins og snúningshraða bensínvélarinnar. Eldri gerðir raf-
magnsbifreiða notuðu mismunandi mikla mótstöðu, sem gerði
það að verkum, að rafmagnseyðsla var ætíð jöfn, hvort sem
ekið var hægt eða hratt. Nútíma rafmagnsbifreiðir mega ekki
við því að tapa þeirri orku. Rafmagnið verður að notast á sem
hagkvæmastan hátt. Ein aðferðin er sú, að nota skiptanlega póla,
til að gefa aðeins þá orku, sem nota þarf í hvert sinn. Onnur
aðferð er sú, að skipta um sambönd milli rafhlöðueindanna, til
að gera ýmist raðtengingu, eða samsíða tengingu. í raðtenging-
unni leggst allur kraftur hverrar eindar við kraft hinna allra og
spennan hækkar til að gefa meiri hraða. Hinsvegar í samsíða
tengingu er spennan lág, en straumurinn mjög sterkur, sem gera
sama gagn og lágir gírar á öðrum bifreiðum.
En stærsta vandamálið er stöðugt hin stutta ferðalengd og
stutt ending rafhlaðnanna. Ef við athugum rafhlöðurnar, skín þar
skærast brennslu-sellan (fuel-cell). Hún er byggð á efnafræði-
legum breytingum, sem orsaka rafmagnsmyndun og gefur
straum, en án þess að eyðast upp. Hún gengur fyrir sérstökum
brennsluefnisforða og súrefni. Svo lengi sem hún hefur
brennsluefni og súrefni getur hún framleitt rafmagn svo að
segja endalaust.
Þó hafa brennslti-sellurnar sín eigin vandkvæði. General
Motors var fyrsti aðilinn til að koma farartæki knúnu brennslu-
sellu í umferð. Rannsóknarmennirnir þar notuðu vetnis-
súrefnis brennslukerfi, en það er blanda sem þarfnast sérstak-
lega mikillar varkárni í meðferð. Þegar rannsóknarmennirnir
óskuðu eftir að fá vatnsþró í rannsóknarstofuna, sagði einn
viðstaddra hæðnislega: „Nú ætla þeir að beita hestum fyrir bíl-
inn!"
Raunverulega var vatnsþróin öryggisráðstöfun. Ef svo
slysalega vildi til, að hættuleg efni sprautuðust yfir mennina
þurftu þeir að hafa vatnsker við höndina, til að stinga sér í um
leið. Reyndist vatnsþróin eins og bezt var á kosið í þessu
augnamiði.
Frá byrjun var það augljóst, að vetnis-súrefnis brennslu-sella
væri ekki hagkvæmasta formið fyrir bifreiðir. Tækin eru þung
og fyrirferðarmikil. Brennsluefnin eru dýr, mjög eldfim og
verða að geymast undir þrýstingi í þar til gerðum tönkum. T.d.
þyrfti tankur er tæki V2 kg vetnis að vega u.þ.b. 50 kg.
í samvinnu sinni við Union Carbide, tókst General Motors
loks að troða vetnis-súrefnis sellu í einn af minni sendiferða-
bílum sínum, og kölluðu þeir hann „Electrovan".
( í kerfinu er vetnið leitt til sellunnar í gegn um súrefnis-
elektróðu, þar sem það klofnar í jónir. Þessar vetnisjónir sam-
cinast súrefnisjónum frá elektrólítaalkönum, til að framleiða
straum elektróna.
Elektrónastraumurinn fer eftir annarri hringrás, sem beinn
rafstraumur til að knýja aflvélarnar og síðan til súrefniselektróð-
unnar. Þar sameinast súrefnið elektrónunum og vatni til að
mynda vetnisjónir, sem síðan fara í gegn um elektrólíta til vetn-
iselektróðunnar til að hefja hringrás sína á sama stað og hún
hófst).
Þegar „Electrovaninn" var fyrst kynntur almenningi, héldu
sérfræðingar General Motors niðri í sér andanum. Enginn fékk
að koma nálægt honum fyrr en eftir að sellurnar höfðu verið
stöðvaðar. Seinna viðurkenndu þeir, að hafa óttazt að bifreiðin
springi í loft upp þá og þegar.
Chrysler verksmiðjurnar eru að vinna að gerð brennslu-sellu,
sem getur gengið einfaldlega fyrir vetniskolefni, blönduðu lofti.
Ford verksmiðjurnar álíta, að brennslusellurnar séu alltof
fyrirferðarmiklar, þungar og dýrar eins og málin standa nú.
Þess í stað hafa Ford verksmiðjurnar í Englandi gerzt frum-
kvöðlar með „borgar-bifreið". Nefna þeir hana Comutan og
getur hún borið 2 fullorðna og 2 börn (2-J—2). Til að byrja með
verður hún knúin venjulegum rafhlöðum, en um næstu ára-
mót mun ný rafhlöðugerð leysa þá gömlu af hólmi. Þessi nýja
Framhald á bls. 26.
20
IÐNNEMINN