Iðnneminn - 01.05.1968, Page 5
Ályktanir 25. þings
Iðnnemasambands íslands
Iðnfræðslumál.
25. þing INSÍ ályktar eftirfarandi inn iðn-
fræðslumál:
1. Þingið fagnar þeirri stefnu, er tekin hefur
verið með að færa nám nema að nokkru
leyti inn í verknámsskóla, og telur að fræðslu
iðnnema sé bezt borgið, fari mestur hluti
námsins fram í verknámsskólum. Jafnframt
skorar þingið á skólayfirvöld í Reykjavík
að hafa fullkomin verkfæri og vélar í verk-
námsskóla þeim, sem verið er að stofnsetja.
2. Þingið bendir á, að meistarakennsla sé úrelt
og óhæft námsfyrirkomulag, en ítrekar jafn-
framt að meðan það ástand ríkir, tryggi við-
komandi yfirvöld að raunhæft eftirlit sé haft
með kennslu meistara, svo sem ákveðið er
með lögum.
r------------------------------------------
3. Þingið bendir á, að ástandið í kennslumálum
iðnskólanna er með öllu óviðunandi og þjóð-
inni til vansæmdar. Telur þingið að vinna
beri bráðan bug að því að allir iðnskólar
verði dagskólar og bendir á að 17 ár eru
liðin síðan dagskólafyrirkomulagið var lög-
fest á Alþingi. Einnig vill þingið ítreka þá
kröfu sína, að kennslan standi ekki lengur
dag hvern, en sem svarar venjulegum dag-
vinnutíma.
4. Þingið bendir á, að með aukinni tækni og
vélvæðingu hljóti kröfur til kennara og nem-
enda að stóraukast. Telur þingið, að það sé
algert frumskilyrði fyrir vel menntuðum iðn-
aðarmönnum, að sérhæfðir kennarar annizt
kennslu verðandi iðnaðarmanna.
5. Þingið skorar á stjórnarvöld að hraða bygg-
ingarframkvæmdum við þá iðnskóla, sem nú
Til lesenda:
Nœsti IÐNNEMI verður helgaður iðnfrœðslurmi, og þá eink-
um skólamálunum.
Viljum við nú hvetja alla iðnnema, svo og aðra áhugamenn
um téð efni, að senda okkur álit sitt, einnig er að sjálfsögðu
allt efni, tengt iðnnemamálum, vel þegið.
Utanáskrift blaðsins er IÐNNEMINN, Skólavörðustíg 16 —
Reykjavík.
Með fyrirfram þökk.
RITNEFND.
IÐNNEMINN
5