Iðnneminn - 01.05.1968, Page 16
Hárgreiðslunemar
í norrænni greiðslukeppni
Það er ekki á hverjum degi, sem íslenzkir
iðnnemar taka þátt í keppnum erlendis, en í
nóvember sl. tóku tveir hárgreiðslunemar, þær
Elsa og Svava Haraldsdætur (þó ekki systur),
þátt í norrænni hárgreiðslukeppni eða Nordisk
mesterskap i frisering í Oslo.
Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem Islendingar
eru með í keppni þessari, sem nú var háð í 14.
sinn, og því er ekki úr vegi að segja lítillega frá
keppninni hér á síðum málgagns allra iðnnema,
því ekki er laust við, að hárgreiðslunemar hafi
orðið útundan á undanförnum árum. Styðst ég
í frásögninni jafnt við frásögn stúlknanna og
frásagnir í Den Norske Dame- og Herrefrispr.
S. Ó.
Gef ég þá fyrst stúlkunum orðið:
— Undankeppni um þátttökurétt fór fram hér
heima og kepptu fyrst 10 og síðan 4. í september
hófst síðan undirbúningur með 2—3 æfingum í
viku og alltaf á sömu dömunni, þar sem skilyrði
var að model við samkvæmisgreiðslu væri ís-
lenzkt.
íslcnzku þátttakendumir Elsa og Svava — til hægri er
ein finnsku stúlknanna.
Við flugum út 16. nóvember og með okkur 12
meistarar og modelin tvö. Umsjónarmaður okk-
ar, Thorleif Thorleifsson, tók á móti okkur og
var til aðstoðar allan tímann. Var strax tekið til
við að æfa, svo og næstu daga, en keppnin hófst
að morgni 19. nóvember, en þá fórum við í hár-
greiðslustofuna Det Hvide Hus. Þar drógum við
um model fyrir daggreiðslu, en þau urðu að
vera norsk, og settum síðan rúllur í, en þá voru
modelin innsigluð og haldið í Folkets Hus, þar
sem keppnin var formlega sett kl. 2 stundvís-
lega með miklum hátíðabrag, að viðstöddmn
1000 áhorfendum. Keppendur voru 34 alls, 18
hárgreiðsludömur og 16 rakarar.
Dvölin úti var í alla staði hin ánægjulegasta
og eiga Norðmennimir heiður skilinn fyrir góð-
an undirbúning. Þeir aðstoðuðu okkur við það,
sem lagfæra þurfti, því að misskilningur var hjá
okkur um mismun á keppnis- og sýningar-
greiðslu.
Þá tek ég til við frásögn Den Norske Dame-
og Herrefris0r, og gríp víða niður, en rýmisins
vegna verð ég að stytta frásögnina mikið.
„Folkets Hus var troðfullt af áhugasömu hár-
greiðslu- og hárskerafólki við keppnissetning-
una. Ljósið smáféll í salnum — sviðstjaldið fór
frá og 34 keppendur frá öllum Norðurlöndunum
stóðu á sviðinu í fjórum röðum, átta keppendur
frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, og
í fyrsta skipti í keppninni einnig tveir glæsilegir
hárgreiðslunemar frá Sögueyjunni Islandi.
Undir fánum Þýzkalands, Austurríkis og Hol-
lands sátu dómararnir sex: Joschi Melkus, Fred
Rachle og Karl Ebinger frá Austurríki, Fritz
Parigi og Fritz Witte frá Þýzkalandi og Anton
Latatser frá Hollandi. — Hins vegar á sviðinu,
undir fimm norrænum krossfánum, sátu for-
menn meistarasamtakanna á Norðurlöndum.
íslenzku nemarnir tveir voru mjög vinsælir
meðal áhorfenda. Ekki bara fyrir skemmtilega
16
IÐNNEMINN