Iðnneminn - 01.05.1968, Blaðsíða 18
Hugleiðingar um
Hugleiðingu um skattamál
Haraldur Steinþórsson er 42. ára að aldri. Hann
varð stúdent 1944 og er gagnfræðaskólakennari.
Kenndi fyrst á ísafirði og síðan í Reykjavík. Hann
hefur setið í stjóm Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja síðan 19G0 og verið 2. varafonnaður frá
1962 og jafnframt verið framkvæmdastjóri BSRB.
Haraldur hefur starfað að félagsmálum í Æsku-
lýðsfylkingunni, Sósíalistaflokknum og Alþýðu-
bandalaginu. Hann hefur einnig starfað í íþrótta-
hreyfingunni, m. a. var hann formaður íþrótta-
bandalags ísfirðinga í tvö ár og formaður Knatt-
spymufélagsins Fram í fimm ár.
Sunnudaginn 21. janúar 1968 í 13. viku vetr-
ar kl. 14,30, setti núverandi formaður INSÍ,
Sigurður Magnússon, fyrsta fræðslufundinn á
stjómartímabilinu. Ræddi hann nauðsyn slíkra
funda og sagði, að það efni, er nú ætti að ræða,
væri tímabært, þar eð þorri landsmanna stæði
nú í ströngu við gerð skattaskýrslna og þar á
meðal iðnnemar. — Efnið fjallaði einmitt um
skattamál.
Frummælandi á þessum fundi var varafor-
maður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja,
Haraldur Steinþórsson. Umræðuefni sitt kall-
aði hann „Hverjir borga, hverjir sleppa? Hug-
leiðing um skattamál." Flutti hann stutta en
ýtarlega ræðu um mikið efni. Svaraði hann síð-
an fyrirspurnum fundarmanna, er voru um 40
talsins. Tókst fundurinn vel í hvívetna. Hin
frjálslega og persónulega framkoma Haraldar
í ræðustól gerði fundarstemningu alla hina
ánægjulegustu. Aldrei þessu vant gerðust menn
ófeimnir með öllu og lögðu hver í kapp við
annan fyrirspumir fyrir frummælanda, er hann
síðan leysti úr eftir beztu getu. Kom margt for-
vitnilegt fram. Nefndar voru svimandi háar
upphæðir, ráðstöfun þeirra, innheimtuaðferðir
nútímans og framtíðar.
Sagði Haraldur, að eftir nýjustu upplýsing-
um, sem hann hefði aðgang að, næmu tollar og
söluskattar um 3 milljörðum króna á ári. Tekju-
og eignaskattur væri um 720 milljónir og útsvör
og aðstöðugjöld í Reykjavík um 870 milljónir.
Heildargreiðslur til hins opinbera væru þannig
u. þ. b. 5—6 milljarðar á ári, eða u. þ. b. 25—30
þúsund krónur á hvert mannsbam (frá vöggu
til grafar). Síðan fjallaði ræðumaður nokkuð
nánar um söluskatt og beina skatta.
Benti hann á að skattsvik væri e. t. v. almenn-
asta þjóðaríþrótt Islendinga. Þau bitnuðu þó
hvorki á ríki eða sveitarfélögum, heldur væm
skattsvikin stuldur frá náunganum, og þannig
kapphlaup um það hver væri duglegastur að
18
IÐNNEMINN