Iðnneminn - 01.05.1968, Page 19

Iðnneminn - 01.05.1968, Page 19
ræna annan. Launþegarnir væru þar oftast í hlutverki vasaþjófsins, sem reyndi að laumast í vasa eignamanna, en á meðan framkvæmdu þeir innbrot og stórþjófnað hjá launafólki. Það væri að vísu e. t. v. hlutdrægni að tala eingöngu um þjófnað í sambandi við „hagræðingu" skattaframtala, þar sem sumar smugumar eru lögvemdaðar í skattalögunum og jafnvel settar til að „vernda“ smælingjana. Nefndi hann nokk- ur dæmi um misnotkun á frádráttarliðum skatt- framtala, en kvaðst ekki ætla að leiðbeina um smáhnupl hvað þá meira og þaðan af síður að setja upp skóla fyrir skattsvikara, enda væri það vonandi ekki það nauðsynlegasta í fram- tíðinni. Söluskattur er ein aðaltekjulind ríkisins og nam hann á árinu 1966 1.237 millj. króna. — Neytendur greiða allir söluskatt og á hann að renna til ríkissjóðs. Sé honum stungið undan ér því um beinan þjófnað innheimtumanna að ræða. Sérstök nefnd á vegum launþegasamtak- anna hefði fjallað um söluskattsinnheimtu á sl. vetri í viðræðum við ríkisstjómina. Upplýsing- ar sem hiin fékk hjá Efnahagsstofnun ríkisins voru á þá lund, að niðurstöður athugana hennar sýndu aðeins 4,8% vanhöld á árinu 1965, eða sem svarar 51,5 millj. króna og enn minni 1966. Nefnd launþegasamtakanna var sammála um, að hafna algjörlega réttmæti þessarar niður- stöðu Efnahagsmálastofnunarinnar, sem hald- lausum og byggði þá afstöðu sína m. a. saman- burði á þeim skattstofni, sem líklegt er að inn- flutningur gefi, og innheimtum söluskatti. Einn- ig á reynslunni á starfi skattarannsóknardeildar, svo og á almennri vitneskju um skattsvik. Var nefnd launþega þeirrar skoðunar, að söluskatts- IÐNNEMINN 19

x

Iðnneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.