Iðnneminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Iðnneminn - 01.05.1968, Qupperneq 20

Iðnneminn - 01.05.1968, Qupperneq 20
svik næmu hundruðum milljóna króna árlega, en ekki fáum tugum. — Ræðumaðurinn færði nokkur rök að þessum sjónarmiðum og gat þess jafnframt, að ótrúlegt væri að innheimtumenn söluskatts hér á landi væru betri og heiðarlegri en t. d. í Danmörku, þar sem vanhöld eru talin vera um 15—20%. Ekki væri glæsilegri myndin af áreiðanleik íslenzkrar skýrslugerðar, þegar athuguð væri skýrsla sú, sem Hagstofan birtir árlega um með- albrúttótekjur kvæntra karla eftir skattfram- tölum. Las hann upp nokkur dæmi úr skýrslu, sem miðuð er við skatttekjur árið 1965. Þar eru verkamenn taldir með 202—221 þúsund brúttó- tekjur. Faglærðir iðnaðarmenn og iðnnemar með 236—245 þúsund krónur (iðnnemar draga þessa tölu eitthvað niður). — Iðnmeistarar við byggingarstörf hafa 260 þúsund krónur, en aðrir einstaklingar, sem vinna sjálfstæð störf, hafa 223 þúsund króna brúttótekjur. Vinnuveitendur og forstjórar hafa samkv. skýrslu þessari 307 þúsund króna brúttótekjur, eða aðeins 43% hærri tekjur en meðaltal verkamanna. Væru nú skattar og útsvör dregin frá þessum 93 þúsund krónum, sem vinnuveitendur og forstjórar hafa umfram verkamenn, þá má ætla að þeir hefðu til ráðstöfunar ca. 40 þúsund krónum meira en verkamenn almennt, og fyrir þessa litlu upphæð gætu þeir veitt sér margt gott og blessað. Byggt lúxusvillur, keypt glæsilega fjölskyldubíla, farið í utanlandsferðalag einu sinni til tvisvar á ári, greitt námskostnað við langskólanám barna sinna o. s. frv. o. s. frv. Já, — þetta væri hægt fyrir einar 40 þúsund krónur, marg gengis- felldar. Ja, — misjöfn er mannanna aðstaða og galdramáttur, þeir hljóta allir að vera í ættum við galdramenn er bjuggu á Ströndum vestur forðum. Haraldur benti á, að þeir, sem sjálfir gæfu upp tekjur sínar, skeri sig ótvírætt úr í saman- burði í opinberum skýrslum. Síðan eru á grund- velli þessara skattaframtala byggðir þeir út- reikningar vinnuveitenda og ríkisvalds, sem halda því fram, að kaupmáttur launafólks hafi aukizt. — Þetta mætir svo stéttarfélögunum í samningum, og skýrslum þessum er hampað til að sýna skiptingu teknanna, sem sífellt er deilt um. Niðurstaðan væri sú, að skattamálin væru e. t. v. eitt stærsta vandamál okkar í dag. í lok málsins benti Haraldur á eftirfarandi úrræði, til að bæta úr í þessum efninn: Skapa þurfti al- menningsálit gegn skattsvikum. — Launþegar þurfi að setja fram kröfur um heiðarleg skatta- framtöl. Meðan reynt væri að skapa réttan grundvöll, þá verði ekki lögð áherzla á að elta uppi eldri skattsvik. Form framtala þurfi að gera einfaldara og skattaeftirlit verði óháð og starf þess fljótvirkara. Framkvæmt verði árlega raunverulegt eftirlit með tekjum og eignum nokkurs hóps skattgreiðenda samkv. útdrætti. Teknar verði upp strangari refsingar við skatt- svikmn og málarekstri í þeim málum hraðað. Einnig væri staðgreiðslukerfi skatta mjög á dagskrá. Fjármálaráðherra hefði nýlega tekið fram að engra breytinga væri að vænta í sambandi við söluskatt eða skatta almennt á næstunni. Al- þýðan yrði að láta þetta til sín taka, þetta væri hennar kross. Róttækra breytinga gerist nú æ brýnni þörf. Og út úr „sæluríkinu Utopiu“ héldu iðnnem- ar þungt þenkjandi út í foræði raunveruleik- ans, það sló bjarma á austurhimininn. Sigurður Steinþórsson, ritari INSI. 20 IÐNNEMINN

x

Iðnneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.