Ljósberinn - 01.01.1936, Síða 4
2
LJÓSBERINN
r
Avarp til lesenda Ljósberans.
Það hefir nú atvikast þannig, að ég
tek aftur við útgáfu Ljósberans og
allri umhugsun um hann. Reynslan
þetta ár leiddi það í Ijós, að útgáfan
var svo dýr, að hún varð Kristilegu
bókmentafélagi ofviða, en það er ungt
cg félítið félag. Vandaði það mjög til
biaðsins og var frágangur þess allur frá
félagsins hendi hinn 'prýðilegasti. Rit-
stjóm og afgreiðsta var einnig í ágœtu
lagi, enda var það starf í höndum Sig-
urjóns bóksala Jónssonar, sem uni langt
skeið liafði á hendi ritstjórn og af-
greiðslu Æskunnar. Nú var um tvent. að
vclja, að leggja blaðið niður eða að ég
gœfi það út framvegis, þó að ekki sé
annað fyrirsjáanlegt, en að blaðið verði
m.ér fjárhagsleg byrði eins og áður, og
eins og það einnig varð félaginu. En
þar sem aðstaða mín, gagnvart blaðinu,
er nokkuð önnur en félagsins, þá mun
ég rexjna að gefa það út. þetta ár, með
hjálp Guðs og góðra manna, sem standa
xilja i lians fylkingu á orustuvellinum,
og vinna að framgangi hans máila á
meðal þjóðar vorrar.
Það vœri meira en raunalegt, ef Ljós■
berinn hœtti að koma út, einmitt nú,
þegar fyllcingar myrkravaldsins ryðjast
fram með ópum og óhijóðum og virðast
leggja meiri álierzlu á það en nokkru
sxnni fxjr að ná œskulýðnum inn í raðir
sxnar.
Þið öll,'sem þetta lesið, og viljið sjálf
eiga Drottinn að athvarfi, í blíðu og
stríðu, í lífi og dauða, og viljið að börn
yðar verði hinnar sömu blessxmar að-
njótandi, styðjið þetta veika starf mit.t
innan kirkju Krists í landi voru á meðal
barnanna. Ljósberinn hefir frá fyrstu
tið og mun framvegis halda hátt merki
Jesú Krists, vors blessaða frelsara, og
barnavinarins bezta. Fyrir það eignast
blaðið marga mjög ákveðna andstæð-
inga, en líka marga vini — og nú
þarf einmitt virúunum að fjölga.
Sláið nú hring um IKósberann, svo
hann i framtíðinni geti orðið þróttmikið
máigagn Drottins málefnis á meðal ís-
lenzkra bama og æskulýðs. Það má gera
á margan hátt.
I fyrsta lagi með því að útbreiða blað-
ið og mæla með Irví, liver á sínum stað
við vmi sína og kunningja og standa >
skilum. við blaðið. Otvega útsölumenn,
til sjós og sveita. Væri ég mjög þakk-
látur, ef vinir blaðsins víðsvegar um
landið vildu benda mér á menn eða kon-
ur, sem sérstaklega viidu vinna að út-
breiðslu blaðsins.
1 öðru lagi geta vinir biaðsins styrkt.
það með gjöfum og áheitum, hefir oft
hepnast vel að heita á Ljósberarm.
/ þriðja lagi geta menn minst blaðs-
ins í bcenum. sinum., því bœnir stíga upp
að hástóli Guðs, og séu þær beðnar '
Jesíi nafni, þá liafa þær fyrirheit um
bænheyrslu.
Og það &r þá fyrst og fremst í bæn
til Guðs um að vernda Ljósberann,
bæn framfluttri í Jesú nafni, sem ég
byrja aftur á því að gefa blaðið út.
Reykjavík, 10 janúar 1936.
Jón Helgason.