Ljósberinn - 01.01.1936, Qupperneq 8
6
LJÖSBERINN
Skyrtuhnappur pabba.
Eftir Ellen Götzsche.
Pétur litli var staddur á barnaguðs-
þjónustu. Þarna sat hann grafkyr og
starði stórum augum á manninn, sem
var að tala. Maðurinn sá var alvarlegur
til augnanna og jþó svo glaður á svipinn.
Maðurinn, sem talaði svo, að sjö ára
gamall piltur, eins og Pétur, gat skilið
næstum alt, sem hann sagði, var víð-
förull maður. Hann hafði ferðast alla
leið út til heiðingjanna, sagði frádrengj-
u m og stúlkum þar úti.
Pétur hlustaði á með hinni mestu á-
nægju, þangað til sagt var alt í einu,
að öll bömin, litlu börnin líka, fengju
leyfi til að koma alla leið upp að altar-
inu í kirkjunni, en þangað hafði Pétur
litli aldrei komið. Og svo áttu þau að
gefa þar sína gjöfina hvert þeirra.
Fyrir altarinu stóð kristniboðinn frá
heiðna landinu. Hann var í hempu, eins
og' prestur. Pabbi Péturs hafði líka ver-
ið í hempn, það mundi hann svo glöggt.
Nú var hann í himnum hjá hinum elsk-
aða Drotni Jesú. Og þegar Pétur spurði
móður sína, hvort pabbi væri ekki enn
í svörtu hempunni þar uppi, þó brosti
mamma, gegnum tár og mælti:
»EIsku litli Pétur minn! Hjá Jesú fær
pabbi himneskan prestaskrúða og hann
er fegurstur allra.
Það lét Pétur sér vel skiljast og gerði
sig ánægðan með það, og hugsaði nú
með gfeði til pabba síns í himninum.
En nú stóð kristniboðinn þarna, frá
heiðna Iandinu og leit svo ástúðlega á
barnahópinn fjölmenna, sem nú gekk
upp að altarinu til að leggja fram gjaf-
irnar sínar. Með því móti gátu þau svo
hjálpað Jesú, svo að heiðingjarnir gætu
íengið að heyra sagt frá honum og tekið
trú á hann.
Pétur sat á sínum stað niðri í kirkj-
unni og var ósköp dapur. Hann langaði
svo ógn til að fara upp að altarinu —
og hann mátti líka svo gjarna koma,
þó hann væri með tvær hendur tómar,
það sagði kristniboðinn svo hlýlega við
öll minstu börnin.
En Pétur hafði tíeyring; en hann átti
hann aðeins ekki sjálfur. Mamma hafði
fengið honum hann, þegar hann fór til
barnaguðsþjónustunnar; en mamma átti
nú helzt til fáa tíeyringa eftir það er
pabbi dói og fór til himins.
Pétur óskaði þess nú af heilum huga,
að hann ætti eitthvað sjálfur, sem hann
gæti gefið. Hann langaði ekki aðb'ða eft
ir því, að hann »yrði stór«; nú, undir eins
því að hann »yrði stór«; nú, undir eins
nú, vildi ha,nn fórna einhverju og gefa
það sínum elskaða Drotni Jesú Kristi.
Pétur rótaði nú með fingrunum í öllum
sínum vösum — þeir voru fimm alls og
hann var hróðugur af þeirri vasaeign.
Hann varð einna síðastur upp að altar-
inu. En er hann stóð upp úr sæti sínu
skein gleðin úr augum hans, því að hann
hafði fundið nokkuð, sem hann áttí
sjélfur og sem hann þá gat gefið sjálfur.
Hann fann það inni á brjósti sér; það
liékk ’í taug um hálsinn á honum.
Mamma gaf honum það, þegar pabbi
var til himins farinn. Pétri fanst bann
gæti varla skilið það við sig, því að
liann pabbi lrams hafði átt það, hann
elskaði pabbi hans. En nú átti Jesús að
fá þao að gjöf.
Pétur gekk upp að altarinu, nær síð-
astur allra. Hann ljómaði af gleði og
hann lagði fram með 'gjöfum hinna
barnanna litla skyrtuhnappinn hans
pabba úr guili með tíeyringnum hen-n-
ar mömmu sinnar .