Nýtt kirkjublað - 13.10.1906, Síða 2

Nýtt kirkjublað - 13.10.1906, Síða 2
2Í8 NÝTT KIRKJUBLAÍ). vilst á glapstigu og œtti það sízt að vera röksemd gegn nauðsyn kristindóms/rceðsZw. I öðru lagi get ég sagt, að því betur sem ég hef kynst mönnum og mannlífi, því ríkari hefir líka sú sannfæring orðið hjá mér, að trúarbrögðin séu ómissandi grundvöllur uudir gæfu manna og farsæld, þvi óskiljanlegra hefir mér orðið það, hvernig mögulegt er að lífa til langframa án trú- ar nema ófarsælu lífi. Það dugir ekki að segja mér, að þetta sé veiklyndi og vesalmenska; ég veit að visu, að til hafaver- ið vantrúaðir menn, sem lifað hafa og dáið eins og hetjur, en dæmi þeirra sanna ekkert í þessu efni, því að það vita allir, að það er sitt hvort að bera sig vel og að vera sæll; og jafnvel þó að til hefðu verið einhverjar undantekningar, sem ég veit ekki, en þori ekki að fortaka, þá hefirþað í rauninni ekki svo mikla þýðingu, því að fæstar reglur eru alveg án undantekninga. Bismarck gamli var engin veimiltíta, og þó hefir hann skrifað þessi orð: „Eg veit ekki hvernig menn fara að því að lifa án trúar á guð, og skil ekki hvernig ég fór að því sjálfur, nú finn ég, að ef mig vantaði hana, þá færði ég mig óðara úr þessu lífi eins og skítugri skyrtu.“ Eg skal fúslega játa það, að mörg önnur trúarbrögð en kristin trú hafa haft stórmikla þýðingu fyrir mannkynið og fullnægt játendum sínum um sinn, lengur eða skemur, en þó ekki til hlítar; menn hafa vaxið upp úr þeim. Stundum verður þeirrar skoðunar vart, að þessu sé eins varið um kristnu trúna; vér séum nú, eða ættum a. m. k. að vex-a, upp úr henni vaxnir. En ekki er mér ljóst, hvað þá á að koma í staðinn og bæta oss missinn; ekki hef ég getað kom- ið auga á neitt. Mér finst að vér ættum líka að geta bent a. m. k. á einhvern einn mann, sem hefði fullnægt siðgæðishugsjón kristindómsins, eða á eitthvert félag manna, stórt eða smátt, seni í einhverju atriði a. m. k. í líferni eða löggjöf, fullnægði til hlítar meginreglum Jesú Krists, áður en vér þykjumst vaxnir upp úr lærdómi hans. Það er satt að segja svo langt frá því, að mér finnist vér vera vaxnir upp úr kristinni trú, að mér er niiklu nær að halda, að vér höfunx aldrei haft rneiri þörf fyrir hana en nú. Eg skal drepa á fátt eitt, sem bend- ir mér til þess. Rannsókn og þekking vex ár frá ári; gaml- ar skoðanir og venjur eru vegnar og léttvægar fundnar,

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.