Nýtt kirkjublað - 20.12.1907, Blaðsíða 10

Nýtt kirkjublað - 20.12.1907, Blaðsíða 10
282_____________J^T^T-RltrTn^^ huga mannanna, ]>aö fi'clsi hlýtur ab skapa sannleiksþrá, og það hlýtur að ryðja brautina fyrir anda umburðarlyndisins, og þar af leiðandi fyrir anda kœrleikans. „Skilyrði þess, að nokkur árangur verði af rannsóknum, er auðvitað órjúfandi trúmenska við sannleikann, trúmensku sem hvorki lætur fælast af neinni innri baráttu, né af bar- áttu við neitt vald utan við manninn . . .“ „Og einmitt af því, að menn eru að leita sannleikans, kemur umburðarlyndið við aðra leitendur eins og af sjálfu sér, hvenær sem ekki er unt að svara með fullgildum sðnn- unum“. Þið sjáið, að þetta íhaldsrit trúmálanna heldur fram ná- kvæmlega hinu sama sem eg í þessu efni- Það heldur þessu fram af því að það er frjálslynt, þó að það sé íhaldssamt — sem ágætlega vel getur farið saman. Og hver sem athugar andlegt lif veraldarinnar um þessar mundir, hann kemst að raun um, að þetta er framar öllu öðru annaðhvort mergur- inn málsins i því, sem írjálslyndir menn i öllum löndum eru að segja, eða undirstaða þess, sem þeir eru að segja. „Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfann þig“. Það var annað af hinum miklu aðalboðorðum. Eg hefi bent ykkur á, að þessi grundvallarskoðun á sannleikanum stefnir þangað. En fyrsta boðorðið var þetta: „Elska skaltu drott- inn guð þinn af öllu þínu hjarta“. Frelsisskoðunin á sann- leikanum stefnir líka þangað, skapar skilyrði fyrir kærleikan- um til guðs, sem mjög er hæpið að fáist annan veg, þó að mér komi ekki til hugar að fullyrða, að það geti ekki kom- ið fyrir. Sannleikurinn er sá, að geti menn ekki samþýtt guðshugmynd sína öðruni atriðum hugsanalífsins, verði guðs- hugmyndin annaðhvort utanveltu við eða andvíg öðrnm æðstu hugsjónum mannsandans, þá liggur í.augum uppi, að mönn- unnm er með öllu ókleift að elska guð. Og því ríkara sem sálarlífið er, því meiri fylling sem er í skynseminni, tilfinn- ingunum og viljanum, því ókleifara verður mauniuum að samþýða guðshugmyndina öðrum hugsjónum síuum annan veg en þann, að hann sé algerlega frjáls í ályktunum sinum. Vauti það frelsi, kemur sundrung i hugsanalifið sjálft, og þá er maðurinn orðinn að ógæfumanni. Og ]iað er einmitt þessi voðalegi klofningur, þessi sundurlæting hugsanalifsins, sem

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.