Nýtt kirkjublað - 01.05.1909, Síða 12
108
NÝTT KIRKJUBLAÐ
íslendingur við Oxfordháskóla.
Skörungurinn mikli og auðmaðurinn í Suður-Afríku, Cecil
Rliodes, ánafnaði stórfé eftir sinn dag handa námsmönnum við
hinn forna og fræga Oxfordháskóla. Styrkurinn er eigi
skamtaður smátt, hver fær 300 pund á ári, eða um 5400
kr. Virðulegustu menn sitja í nefndum til að dæma um verð-
leikana, og annað ræður enda meira en námsgáfur og lær-
dómur, svo sem líkamsmentir og drengileg forysta í félagslífi
stallbræðra.
Tvítugur sveinn íslenzkur hefir nú hrept einn slikan náms-
styrk til 3 ára. Hann heitir Skúli Johnson, Húnvetningur,
fæddur að Hlíð á Vatnsnesi, en héðan fór hann af landi árs-
gamall. Hann er lærisveinn síra Friðriks J. Bergmanns á
Wesley-skólanum, og fer mikið orð af því, að Skúli hefir ver-
ið talin maklegur svo ungur að aldri. Ömmubræður Skúla
eru þeir hinir nafnkunnu gáfumenn Björn stúdent og síra
Sveinn Skúlasynir.
Islenzku blöðin vestra flytja myndir af Skúla og segja
rækilega af högum hans. Sveinninn er hinn gjörfilegasti, og
getið er þess um hann, að hann sé hinn mesti íþróttamaður.
Breiðablik Iáta þess getið að allmiklar likur séu til þess,
að annar íslenzkur námsmaður kunni að verða kosinn til
sömu tignar á næsta ári, en eigi verður nema einn á ári
fyrir því happi úr Manitoba.
Gaman að minnast alls þess, er þjóð vorri verður til
sóma; og fylgja hinum unga manni eigi síður héðan hug-
heilar óskir.
Fyrir opnum gluggum.
Lærist seint, en lærist þó, og oft af einhverju slysi, sem
verður til þess að margra alda heimska rekur sig á.
Eitt dæmi af ótal er það, að fyrir fimtán árum tók skæð
hitasótt hermenn unnvörpum í einni heimsborginni. Hermanna-
skálarir hrukku hvergi nærri og sjúkrahús bæjarins gátu ekki
eða vildu ekki duga, og það varð að slá upp tjöldum úti á víða-
vangi fyrir fjölda sjúklinga. Læknunum var sárilla við það
að láta þá í súginn og kalda loftið, og illa var fyrir þessu
spáð. En það reyndist á annan veg. Þegar sóttinni létti af,
var afkoman langtum betri hjá sjúklingunum í tjöldunum.