Nýtt kirkjublað - 01.05.1909, Side 13

Nýtt kirkjublað - 01.05.1909, Side 13
NÝTT KrRKJTJBLAÐ 109 LærSu mennirnir voru forviða og fæstir þorðu að byggja á þessu þá. Nú er mönnum farið að skiljast betur, hvað loft- straumurinn að utan er hollur, og þá allra helzt tyrir brjóst- veika, sem áður voru einmitt bezt byrgðir. Opnið gluggana, í hamingju bænum! Þeir sem hafa vanið sig á þá holluslu 'hætti, að sofa fyrir opnum gluggum allan ársins hring, og það hvernig sem viðrar, komast ekki í ann- að verra en að sofa í stofu, þar sem ekki verður opnaður gluggi. Það er jafn ógeðslegt þeim sem vanur er sætleik útiloftsins og skolavatn er til drykkjar. Og óhollustan er engu minni af óhreina loftinu. ijúklingsbæn á banabeði. í gær hitti ég við húsvitjun 86 ára gamla konu, 20 barna móður, Sigríði Guðmuudsdóttur, hjá syni hennar, Sigurði Magnús- syni á Leirubakka, og fékk að heyra hjá henni ýms íalleg erindi eftir hana sjálfa, og þar á meðal það sem hór íer á eftir. Tjáist hún hafa ort það í nafni sjúklings á banabeði, og sent honum. það til huggunar: Úr djúpinu’ eymda, drottinn kær, dapur ég kalla á þig; kveinandi skepnu kom þú nær, kendu í brjósti um mig! Andlegan styrkleik auki mér almættis kraftur þinn, holdsins þó kraítar hveríi hér og hrörni líkaminn. Farsæla gjör þú ending á armæðu þeirri er mig vill þjá! Nákvæm þin mjúkust móðurhönd minni sál taki við, hún þegar skilst við holdsins bönd, herra trúr, þess óg bið. þá er útenduð þrautin vönd og þverrað alt mótlætið, Þetta leyfi ég mér að bjóða N. Kbl. til meðferðar, og tel víst að frambærilegt só. Þetta er heit og innileg og trúuð bæn, sem

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.