Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Blaðsíða 4

Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Blaðsíða 4
148 NÝTT KIRKJÖBLAÍ) að aldrei hefir þessi þjóð haft meiri þörf á kristinni trú og kristilegri kirkju, en einmitt á þessum tímum. Vér lifum á breytinga- og byltingatímum, þar sem mörgu gömlu er varpað fyrir borð og margt nýtt tekið upp, og þess- ar breytingar snerta ekki aðeins lífið hið ytra, heldur móta þær líka hugsunarháttinn á marga vegu, hreyta skoðunum manna og færa margan gamlan sannleika í nýjan búning. En eitt er það sem aldrei breytist: þörf mannanna á því að lifa í samfélagi við guð, því að þessi þörf er hin dýpsta, sem leynist í djúpi sálarinnar, gróðursett þar af guði sjálfum, og framfarir nútímans, hvað miklar sem þær eru, geta ekki ann- að en látið menn finna enn þá sárara til þess hvað mikið mann vantar — ef ekki er bætt úr þessari miklu þörf sálar- innar. Það er algeng regla, að þess meira sem maður hefir, þess sárar finnur maður til hvað mann vantar, þess lengra sem maður er á veg kominn i stundlega lífinu, og þess betur sem manni hefir tekist að gera sér jörðina undirgefna, þess tilfinnanlegra verður það, að verða að horfa fram á dauða og gröf án trúar og án vonar, þess erfiðara verður að sætta sig við öll þau vonbrigði sem lífið færir og hlýtur að færa hverjum einum. Sá maður sem vill vera sæll, verður að eiga þá lífsgæfu, sem ekki kemur utan að, frá neinu þvi, sem veröldin kann að veita, heldur innan að, frá samtélagi hjart- ans við guð, hann verður að finna til þess, að hagur hans er ekki kominn undir neinum óviðráðanlegum atvikum ogtilviljun- um, heldur er hann í föðurhendi þess guðs, sem sjálfur hefir reist tjaldbúð sina meðal vor til þess að vér séum fólk hans og hann guð vor. Og nú er það svo, að alt lífið á öllum tím- um er í leit eftir gæfu, en þessi leit er ekki alt af eins; vorir tímar sýna oss miklar framfarir hið ytra — en spurningin er, hvort þær eru ekki meiri í sjón en í reynd, og hvort menn sækjast í rauninni ekki meira eftir gyltum leir en gullinu sjálfu, þeirri lífsgæfu, sem æðst er af öllu og getur staðist í storm- um og hafróti lífsins. Mig furðar ekki á því, að þar sem áslæðurnar eru eins og hjá oss, að lífið hið ytra með öllum þess framförum og framkvæmdum, vaknar af þeim dvala, sem það hefir legið í í margar aldir, þar verði vöxturinn fyrst um sinn einhliða, likt og hjá unglingi sem vantar allan þroska, endu sýnir líka

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.