Nýtt kirkjublað - 01.07.1911, Qupperneq 16
Í60
NÝTT KIRKJtJSLA©
veitast þau fyrir ágæta frararnistöðu í læknisfræði, eðlisfræði og
efnafræði.
Nú mætti og minna á það hvað háskólarnir fyrir vestan eru
margir hverjir forríkir. Auðmenn hafa gefið sumum þeirra svo að
skiftir tugum miljóna í dollurum, og eru háskólar Evrópu fátækir
á móts við þá.
Blaðið ameríska ætlar alls eigi að hlutdrægni sé um að kenua,
og lætur sem mest óleyst úr því, hvernig á þessu stendur.
Frá barnaprófi austanfjalls:
„Ekki nema einn prófastur á landinu“, og hann héti Valdi-
mar Briem.
Við sama prófið var líka farið út i landsstjórnina, og þá kom
einn litli ríkisborgarinn með það, að „enginn hefði kosningarrétt
til alþingis nema biskupar."
„Betur að satt væri,“ bætir heimildarmaðurinn við.
Sjö börn skírð í einu
í Vestmanneyjakirkju í vor. Býður nokkur betur?
Biblíufélagsfundur
var haldinn á Jónsmessudaginn. Sjóður fullar 8000 kr. Unn-
ið hefir verið að yfirskoðun Nýjatestamentisins i vetur, og verður
það nú steypuprentað f nýrri útgáfu biblíunnar. Óskað eftir sér-
prentun N.tra. þegar biblían er komin út.
Prestafundur Hólastiftis
hefir staðið yfir 27.—29. f. m. Prédikaði Geir biskup. Við
22 prestar eða sem næst jafnruargir og voru hér syðra á presta-
stefnunni. „Fjörugar umræður11 að því er síminn segir. Fréttir
þaðan væntanlegar hér i blaðinu.
Síra Matthías Jochumsson
bregður sér til Noregs i sumar til að athuga söguörnefni þar.
Hefir til þess styrk úr Karlsbergssjóði.
Veitt prestakall.
Grenjaðarstaður sira Helga Hjálmarssyni 27. f.m.
Framhald af greinunum.
Til hvers erum við að rita? og Hvert stefnir? kemur næst.
■ Nœstu blöðum sennilega flýtt vegna ferðalaga ritstj. s=s
Ritstjúri: ÞÓRHALLUR BJARNARSÖnT
F élugspren tsrnið j un.