Nýtt kirkjublað - 01.10.1913, Qupperneq 9
1 NÝTT KIRKJUBLAÐ
225
kominn á gluggann upp yfir þér, og er að gretta sig framan
í okkur. Gekk það svo nokkrum sinnum, að hún lét þá færa
sig til á rúmunum. En jafnan eftir litla stund sáu þeir strák-
inn á þeim glugganum sem á móti þeim var. Var það hvort-
tveggja að móður þcirra fór að leiðast þessi eltingarleikur,
enda ei frítt við, að dálítill geigur kæmi í hana, þar sem hún
aldrei sá neitt, þó drengirnir stæðu fastar en fótunum á því,
að þeir sæju strákinn á glugganum, þótt hún jafnvel bæri á
móti því, að það gæti verið og snupraði þá fyrir þessa vit-
leysu, fór hún því ofan af loftinu með drengina og út. Sáu
þeir þá ekkert til stráksins framar, og aldrei eftir það, þar til
þau fluttu að Eiðum. En nú kemur rúsínan i sögunni.
Þegar Jónas flutti að Eiðum frá Ketilsstöðum, fór að búa
þar ungur maður, að nafni Jón og var sonur Jóns gamla snikk-
ara á Torfastöðum í Jökulsárhlið. Var hann þá nýgiftur systur
Guðrúnar, konu Sigmundar sýslunefndarmans Jónssonar í
Gunnhildargerði i Hróarstungu (nafni konunnar hefi eg gleymt),
bjuggu þau þar fáein ár og fluttu svo til Ameríku. Seint um
veturinn, áður en þau um vorið fóru vestur, var eg á ferð i
Hróarstungunni og gisti í Gunnhildargerði. Sagði Sigmundur
mér þá um kveldið, að þau hjónin á Ketilsstöðum hefðu ný-
skeð verið þar með ungum syni sinum á 4. eða 5. ári, að
kveðja.
Einhvern tíma um kveldið leiddi eg talið að dulrænum
efnum við Sigmund, og sagði hann mér þá að það hefði ver-
ið einkennileg saga, sem þau hjón frá Ketilsstöðum hefðu sagt
þeim hjónunum, um drenginn þeirra, sem þau voru með sér:
Það hefði verið eitthvert kveld þá um veturinn, þegar
búið var að kveikja og allir voru uppi á baðstofulofti, en stiga-
gatið stóð opið (baðstofan var portbygð), að drengurinn þeirra,
sem var að leika sér frammi á baðstofuloftinu kom alt í einu
hlaupandi dauðhræddur upp i fangið á móður sinni og sagði
henni, að það væri dálítill strákur í stigagatinu, sem hefði
ætlað að taka í sig, þegar hann kom nálægt því, og væri að
gretta sig og skæla framan í sig. Lýsti hann honum alveg
eins og Halldór Jónasson hafði áður lýst honum við móður
sína. Sigmundur sagði að síðan ]>etta kveld hefði drengur
Jóns séð þennan strák þráfaldlega á kveldin, þegar búið var
kveikja, ýmist í stigagatinu, eða í skotum í baðstofunni