Nýtt kirkjublað - 01.10.1914, Blaðsíða 4

Nýtt kirkjublað - 01.10.1914, Blaðsíða 4
220 NÝTT KTRKJUBLAB Og eg veit að þetta er ekki einsdæmi. Þab hafa margir samstarfamenn mínir einmitt kvartað yfir þessu sama. Og vöntunin, aðalatriðið er það, að við hötum lítið notað stund- ina til þess að tala um hið innra líf kirkjunnar, um guðs- ríkið í hjörtunum, eíling þess og útbreiðslu i samfélagi okk- ar. Við höfum mest talað um kirkjufélagið sem pólitiska — sósíala — stofnun, reikninga hennar og ytra fyrirkomulag, en umræður um tilveruskilvrði þessarar stofnunar, þýðing henn- ar og réttmæta nauðsyn, hafa orðið útundan. Að vísu hefir sú venja myndast, í sinni tíð, að einhverj- um hefir verið falið að „prédika“ en þá höfum við sett þann mann út fyrir liringinn, en aldrei óskað þess að hann væri málshefjandi að sameiginlegu umrœðuefni■ Þetta hefir haft þau áhrif á mig, að eg hefi fundið enn sárara til þess, hvern- ið við setjum takmörkin fyrir starfsemi okkar. Hvernig stendur svo á þessu? Ekki er það sökum þess að hringurinn, sem löggjöfin hefir markað á þessu sviði, sé svo þröngur að hann rúmi ekki hvað eina sem varöar hið innra og andlega samlíf okkar. Ekki er það heldur því að kenna að okkur vanti menn með andlegu fjöri, gáfum og áhuga, menn sem i raun og sannleika vilja nota flest tækifæri — og þá einnig héraðsfundina — til þess að efla og fegra andlega lifið í kirkjufélaginu. Hváð þá ? Eg veit það ekki, en ýmsar tilgátur hafa kom- ið fram i huganum. Eg get þess til að flokkur safnaðarfulltrúanna telji sig ekki færan um að halda fyrirlestra, eða hefja umræöur um trúmál og safnaðarlíf yfir höfuð að tala; til þess skorti hann svo margt, svo sem: þekking, djörfung og æfing. Prest- arnir býst eg við að séu hikandi, vegna þess að þeir búast við talsverðum skoðanamun i ýmsum atriðum, sem þeim eru hjartfóigin. Þeir kveinka sér við þeim sársauka, sem miður hóflegar umræður kynnu að valda. Þeir eru því líka flestir óvanir að tala um andleg málefni opinberlega, blaðalausir og hempulausir. Á báða bóga finst mór þá koma fram feimni og uggur. Eg vil ekki minnast á jafn-lítilfjörlega mótbáru og tímaskorlinn. Hún er tómur fyrirsláttur, og líkt er um ótt- ann fyrir æsingaræðum. Mér finst mega vænta þess að ræð-

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.