Nýtt kirkjublað - 01.10.1914, Qupperneq 7

Nýtt kirkjublað - 01.10.1914, Qupperneq 7
NÝTT KIRKJUBLAÐ 223 í stuttu máli sagt finst mér því, að kennarinn í kirkj- unni þuríi að geta flutt kenningu kenninganna, ef eg mœtti komast svo að orði: Draga saman hið sérstaka og dreifða til algildra setninga og sameiningar, af þeim geisla- brotum guðsríkis sem bregður fyrir í mannlífinu sjálfu eins og það birtist, einmitt á okkar yfirstandandi tíma. Vel veit eg það, að þetta er hörð krafa og útheimtir mik- ið af vandasamri rannsókn og athugun. En eg hygg að hjá því verði ekki komist að leitast við að fullnægja henni, eftir fremstu föngum, ef vel á að farnast. Lifið er enginn steingerfingur, og þroskun guðsríkis á þessari jörðu getur ómögulega verið það heldur. Þessvegna þarf að hafa gætur á öllum frækornum þess, og hlúa að þeim en sparka ekki á þeim. Með því móti flýtum við best fyrir því að mannlífið geti alt orðið einu aldingarður sem andi drotlins hlúir að. Já, kenningin verður að skilja sinn tíma og taka í þjónk- un sina allar hreyfingar sem heimfæra má undir meginmerkið, lifa sig inn í þær með þeirri þekkingu, alúð og samsinning, sem hver einstakur hefir best föng á. Hið einfalda, upphaflega og sameiginlega í öllum trúarbrögðum sem hafa fest rætur í lífi þjóðanna er þetta — sem Kristur kendi betur en nokkur annar —: Guð er faðir allra; allir menn eru bræður, og ríki guðs á að ná til allra manna, að lokum. En eins og við trúum því, að í riki föðursins á himnum, séu mörg híbýli, eins geturn við séð það að vegirnir eru margvíslegir inn i guðsríkið á jörðunni. Það væri því beinlínis misbrúkun, ef kennarinn færi að berja höfðinu við steininn ogsegja: Þarna er eini afmarkaði vegurinn og enginn annar er til. Við þekkj- um ótal dæmi, frá fortíð og nútíð, sem sýna hið hættulega og ókristilega við slíka skoðun. Hún verður því að víkja úr kenningunni, en koma í staðinn glögg sjón á öllum þeirn þráðum sem leitt hafa og leitt geta mennina inn í ríki föð- ursins. Alla slíka þræði þarf kenningin að gera skýrari í augum þeirra er eftir þeim leita með fálmandi höndum. Þá fara lærisveinarnir að skilja kennarana betur en áður. Þá fær orðið betri áheyrn, og fleiri sáðkorn fá góða jarðveginn sér til þroska. Leiðum því kenninguna inn i lifið sjálft og daglegu

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.