Nýtt kirkjublað - 01.10.1914, Qupperneq 14
m
NÝTT KIRKJUBLAÐ
diktar og 14 Klemensar. Hafa páfar síðast borið þau nöfn
um miðbik 18. aldar. Benedikt XIV var mesti sæmdar og
lærdómsmaður. Margt var og vel um Klemens XIV, en hann
var til þess neyddur að rjúfa reglu Kristsmunka, og verður
líklega enn bið á, að nýr páfi taki sér heiti lians, eða upp
komi Klemens XV.
Öllu sama mun fara fram í kúríu og áður. Einveldi
páfa varð enn ramara og ríkara um daga Píusar X. Eng-
inn skilningur á umbótakröfum módernista, bara fordæming.
Biblíurannsóknin öll hjá kennivaldi kirkjunnar. Og kirkjan
krefst þess af pjónum sinum að þeir beygi sig og hlýði öllum
skipunum frá yfirkennivaldinu, og það sem meira er, að þeir
samsinni þeim heilhuga og hjartanlega. Nýr prestaeiður var
saminn sem átti að taka fyrir og út yfir alla nýguðfræðilega útúr-
dúra. Ríkin leyfðu þó eklci að þess eiðs væri krafist af guð-
fræðisprófessorum sinum.
Öllum fjöldanum er það fróun og hvíld að mega áhyggju-
laust hvila í móðurskauti kirkjunnar, láta hana hugsa fyrir
sig og trúa.
Wyrknesk saga.
Tyrkir eru ágætir sögumenn. Fólkið les varla enn þá blöð
og tímarit, og eru sögukarlarnir góðir gestir á beimilunum og íull-
orðna fólkið hlustar líka á. Alveg eins og hór á landi var áður
fyr meir, er minna var að lesa en nú.
Nokkuð getum vér gjört oss hugraynd um sögur Tyrkja af
frásögunum í Þúsund og einni nótt.
í sumum sögunum kemur fram glettin aðfinsla við stjórnar-
farið, en alt verður það að vera undir rós, og er hér sýnishorn
af því:
Einu sinni ætlaði drottinn rótttrúaðra manna að fara á dýra-
veiðar til að skemta sér. Kallaði hann á stjörnumeistara sinn og
spurði hann til veðurs. Stjörnumeistarinn laut til jarðar og spáði
öllu góðu, og kalífinn lagði af stað með fríðu föruneyti.
Skamt fyrir utan borgina kom maður á móti þeim. Hann sat
á asna. Maðurinn laut kalífanum og mælti: „Lávarði mínum væri
betra að halda heirn aftur, það verður rigning og óveður þegar
kemur iram á daginn". • En drottinn rétttrúaðra manna treysti