Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Qupperneq 14
10^ NÝTT KIRKJTJBLAf)
var stutt. Hann lifði kyrlátu lífi langt fyrir utan iðustraum
heimsmenningarinnar. Nú eru 19 aldir síðan, og enn hald-
ast áhrifin frá þessu tnannslífi, enn er þaðan, frá þeim kyr-
láta krafti, að ásjóna jarðar á að endurnýjast.
„Hann mún frelsa lýð sinn frá syndum þeirra“. „Til
þess birtist guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk
djöfulsins“. Hann kendi oss svo að biðja, að guðs vilji yrði
svo á jörðu, sem á himni. Og hann sagði að alt vald vœri
sér gefið á bimni og jörðu, til þess að allar þjóðir yrðu sínir
lærisveinar.
Nú viljum vér af einlægu hjarta taka þessi orð trúanleg,
sem töluð hafa verið um Jesú, og hann sjálfur hefir talað.
Og þvi horfum vér inn i ókomna tímann trúaröruggir og von-
góðir. Vér tölum um siðmenning, hún nær enn ekki yfir
nema nokkurn hluta heimsins. Hún er fólgin i því að gjöra
sér jörðina undirgefna. Alt sækir þar fram, engin kyrstaða
getur átt sér þar stað. Það eru grundvallarlög lífsins frá
hendi skaparans. Og vilji einhver brjóta þessi lög, nteð leti,
ómensku og dáðleysi, eða með þvi að spilla og skemma og
vera þversum, þá er honum sópað burt af framsóknarbraut-
inni, hann er til órýmis og óþrifa, og hverfur. Svo er lögum
farið i siðmenningarframsókninni. En nú höfum vér orð og
kenningar Jesú fyrir því, og vér viljum trúa þeim, að hin
sömu máttugu framsóknarlög ráði og í hinum andlega heimi,
á hinum æðri svæðum, í siðferðilega og trúarlega Iífinu ?
Það er sízt að undra, þó að mörgum verði örðugt að
ala þá von í brjósti, en vér megum með engu móti missa
hana. Hún er meginstyrkur vor i baráttunni við hið illa í
heiminum: Hún er til, og helst þrátt fyrir alt og alt, fram-
sóknin til hins betra. Þeirri von megum vér ekki sleppa.
Henni verðum vér að balda fyrir vora eigin þjóð, fyrir hvíta
kynið vort, fyrir alt mannkynið.
Um það viljum vér biðja og til þess viljum vér iðja, að
allar þjóðir, og þá einnig vor eigin, megi í sannleika fylla
lærisveinahóp Jesú. Betur getum vér eigi varið lífi voru, og
það starf mun ávöxt bera. Og sameiginlega biðjandi vorri
drottinlegu bæn viljum við öll ganga gegn nýju ári, og óska
góðs árs í Jesú nafni. Johannes Johnson,