Nýtt kirkjublað - 01.01.1915, Síða 15
NÝTT KIRKJUBLAÐ
11
Kirkjubyggingarárið.
Mesta kirkjubyggingarárið, sem yfir hefir liðið, þetta síðast-
liðna ár. Lánin úr almenna Kirkjusjóði fast við 30 þús., ef með
er talin Keflavikurkirkja. Yar lánsfé hennar lagt í banka í árs-
lokin 1913.
Allar kirkjurnar, að Búðum í Fáskrúðsfirði, Hábæjarkirkja í
Þykkvabæ, Hafnarfjarðarkirkja og Keflavíkurkirkja, eru steinkirkj-
ur. Búða og Keflavikur kirkjur eru nýjar frá stofni, úr Kolfreyju-
staðar og Útskálasóknum; hinar báðar á nýjum stöðura, og leggj-
ast þá niður Háfskirkja í Holtum og Garðakirkja á Álftanesi.
Hjórar vandaðar og veglegar kirkjur á nýjum stöðum, og
sömu lög alstaðar, að færa kirkjurnar nær fólkinu.
Þá er og ný steinkirkja, hin fimta, komin upp á árinu, að
Leirá í Borgarfirði, hefir kirkjubóndinn Guðni Uorbergsson reist
þar hið sæmilegasta hús, var þar og Rögnvaldur húsameistari með
í ráðum. Tekur söfnuður væntanlega við kirkjunni.
Mikil og góð umskiíti voru það, er byggingafróður maður
fékk ráðin við kirkjubyggingar vorar. Út úr neyð varð Kirkju-
sjóður að lána mikið fé árið sem leið, til stórvjðgerða á kirkjum,
sem báðar mega nýjar heita, önnur steinkirkja, varla trygg enn,
hin ein af þessum óláns-timburstrýtum, sem altof margar eru, söfn-
uðum til skaða og skapraunar. Eru dýr gjöld fáfræðinnar, þar
sem annarstaðar.
Allar höfðu steinkirkjurnar nýju vígslu hlotið fyrir nýjárið
og teknar til nota nema Keflavíkurkirkja. Hún nú fullgjörð.
Fyrir smíði þeirrar kirkju og Hafnarijarðar stóðu þeir nafnar
Guðni steinsmiður Guðmundsson og Guðni trésmiður Þorláksson.
Hafa þeir getið sér bezta orð við byggingar, sem gjörðar hafa
verið að íyrirsögn Rögnvaldar húsameistara. Guðni Þorláksson
stóð fyrir smíði Hafnarfjarðarkirkju, og lét sér mjög ant um, því
þar var hann uppalinn og nú þar búsettur. Var það hið mesta
hrygðarefni er hann andaðist rétt íýrir kirkjuvigsluna.
Sama er lagið á Keflavíkur og Hafnarfjarðar kirkjum, báðar
hinar prýðilegustu. Flytur N. Kbl. væntanlega mynd annarar
hvorrar við tækifæri.
Út úr Hafnarfjarðarkirkju var talið um 1200 mauns við vígsluna.
íslenzkar hjúkrunarkonur.
Forstöðukona K. F. U. K. í Vejle, fröken Ingibjörg Ólafsson
ritar fyrir nýárið:
„Mikið áhugamál er það gamla sira Dalhoff, að kornið verði