Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 4
4 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR Bílaapótek Hæðarsmára Mjódd • Álftamýri STJÓRNNMÁL Margrét Tryggva- dóttir, alþingismaður og formað- ur Hreyfingarinnar, hefur ráðið Þórð Björn Sigurðsson aðstoðarmann. Þórður, sem starfar í ferða- þjónustu, hefur af þessu til- efni sagt af sér sem formaður Hagsmunasam- taka heimil- anna enda eru samtökin óháð stjórnmálaflokkum. Friðrik Ó. Friðriksson hefur þegar tekið við formennsku af Þórði í Hagsmunasamtökum heimilanna eftir kjör í stjórn samtakanna á fimmtudag. - gar Formaður Hreyfingarinnar: Hefur ráðið sér aðstoðarmann MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR ÞÝSKALAND, AP „Þetta var hræðilegt því ég áttaði mig á því að flokkurinn og ríkis- stjórnin höfðu brugðist mér og að félagar mínir stæðu ekki með mér,“ segir Harald Jäger, austur-þýski landamæravörðurinn sem fyrstur opnaði hlið á Berlínarmúrnum að kvöldi 9. nóvember 1989. Hann segist vera ánægður núorðið með frumkvæðið sem hann tók þetta kvöld, en á sínum tíma var hann afar ósáttur við rás atburðanna. „Hugmyndaheimur minn féll algerlega saman.“ Mannfjöldinn beið í ofvæni eftir að kom- ast yfir. Günter Schabovski, upplýsingafull- trúi austur-þýsku stjórnarinnar, hafði fyrir mistök lýst því yfir að fólki væri frjálst að fara ferða sinna. Í reynd átti það ferðafrelsi ekki að taka gildi fyrr en daginn eftir. Jäger var nýbúinn á vaktinni sinni við landamærahliðið á Bornholmer Strasse í Berlín og ætlaði að fá sér samloku. „Ég hafði varla fengið mér fyrsta bitann þegar ég heyrði þessi eftirminnilegu orð Schabovskis.“ Hann hafði engin fyrirmæli frá yfirboðurum sínum, en sá að engin leið yrði að hemja mannfjöldann nema opna hliðið upp á gátt. „Ég er engin hetja,“ segir hann. „Ég gerði aðeins það sem rétt var þetta kvöld.“ Eftir á að hyggja segist hann telja ákvörð- un sína líklega hafa komið í veg fyrir að blóðsúthellingar yrðu. „Það er það eina sem ég get verið stoltur af. Að engu blóði var úthellt þetta kvöld, aðeins gleðitárum og köldum svita.“ - gb Austur-þýski landamæravörðurinn sem fyrstur opnaði Berlínarmúrinn að kvöldi 9. nóvember 1989: Múrinn kom í veg fyrir blóðsúthellingar TUTTUGU ÁR LIÐIN Berlínarbúar minntust þess um helgina að tuttugu ár eru í dag liðin frá því Berlínar- múrinn var opnaður. NORDICPHOTOS/AFP ATHAFNAVIKA „Við vildum ekki hefta sköpunargáfuna. Fólk má gera hvað sem er sem eykur virði hlutar sem alla jafna er einskis virði,“ segir Þórhildur Birgis- dóttir, framkvæmdastjóri alþjóð- legu Athafnavikunnar. Vikan hefst 16. nóvember næstkomandi og lýkur 22. nóvember. Hitað var upp fyrir Athafnavik- una í hádeginu í gær þegar hlutur var afhjúpaður á netsíðunni www. athafnavika.is sem gegnir lykil- hlutverki í hugmyndasamkeppn- inni Snilldarlausnir – Marel. Þátt- takendur mega gera hvað sem þeir vilja við herðatréð að því gefnu að virði þess aukist. Taka má þátt í keppninni hvenær sem er. Það eina sem þarf er að finna herðatré, taka myndband af virðisaukningu þess og senda inn á netsíðu keppninnar í síðasta lagi á hádegi 15. nóvem- ber. Þórhildur segir ýmsa hluti hafa verið nýtta með árangursríkum árangri. Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að efri hluti af plast- flösku hefði verið settur undir borðfót í sambærilegri hugmynda- samkeppni við Stanford-háskóla og var tappi flöskunnar nýttur til að stilla borðið af. „Í raun má gera hvað sem er. Ég vonast til að sem flestar og fjöl- breyttastar hugmyndir muni skila sér,“ segir Þórhildur. Myndbönd frá hugmyndasam- keppninni verða sýnd á meðan á Athafnavikunni stendur og mun Katrín Jakobsdóttir menntamála- ráðherra veita verðlaun fyrir bestu hugmyndina á lokahátíðinni 22. nóvember. Þórhildur segir erfitt að meta hve margir muni taka þátt í Athafnavikunni. Þegar séu rúm- lega fimmtíu viðburðir skráðir, allt frá litlum samkomum til sameigin- legs fagnaðar hannyrðafólks um allt land sem muni taka höndum saman í tilefni af útgáfu prjóna- bókar. „Við stefnum í það minnsta á að hafa mestu þátttökuna, miðað við höfðatölu,“ segir Þórhildur. jonab@frettabladid.is Snilldarlausnin hangir á herðatré Hitað var upp fyrir Athafnavikuna í gær þegar hugmyndasamkeppnin Snilldar- lausnir – Marel hófst. Þátttakendur eiga að gera sem mest úr herðatré. Þegar fara rúmlega fimmtíu viðburðir fram víða um land. Vikan er haldin í 103 löndum. HUGMYNDASAMKEPPNIN SETT Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit, og Þórhildur Birgisdóttir voru á meðal þeirra sem stigu í pontu þegar hul- unni var svipt af herðatré í hugmyndasam- keppni í tengslum við Athafnavikuna í gær. ■ Athafnavikan stendur yfir frá 16. til 22. nóvember. ■ Vikan er haldin í 103 löndum. ■ Markmið athafnavikunnar er að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi. ■ Hægt er að skrá nýja viðburði á netsíðunni athafnavika.is fram til 11. nóvember. ■ Á meðal viðburða er nýsköpunarmessa á vegum Háskóla Íslands. ■ Íbúar í Höfn á Hornafirði ætla að prjóna kærleikstré. ■ Háskólinn í Reykjavík ætla að bjóða gestum að fylgjast með smíði rafbíls. ÝMISLEGT UM ATHAFNAVIKUNA EGYPTALAND, AP Wen Jiabao, for- sætisráðherra Kína, segir að Afr- íkuríki fái á næstu þremur árum jafnvirði tíu milljarða Banda- ríkjadala að láni á lágum vöxtum. Hann sagði þetta gert til að koma til móts við gríðarlega fjár- þörf Afríkuríkja, en vísaði á bug gagnrýni þess efnis að Kínverj- ar væru með þessu ekki síður að hugsa um eigin hag en fátæku ríkin í Afríku. Wen sagði þetta á leiðtogafundi í Egyptalandi, þar sem umdeild- ir leiðtogar á borð við Robert Mugabe frá Simbabve og Omar al-Bashir frá Súdan voru við- staddir. - gb Leiðtogar Kína: Bjóða Afríku ódýrt lánsfé WEN JIABAO Á leiðtogafundi í Egypta- landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KÓLUMBÍA, AP Sebastian Marroqu- in, sonur kólumbíska eiturlyfja- barónsins Pablo Escobar, biður fórnarlömb föður síns um að veita honum síðbúna fyrir- gefningu. Escobar var skotinn til bana árið 1993. Það var lögreglan í Kólumbíu sem það gerði. Sonur inn flýði land skömmu síðar, breytti nafni sínu úr Juan Pablo Escobar í Sebastian Marroquin, og hefur látið lítið fyrir sér fara. Hann kemur nú fram í heim- ildarmynd sem nefnist „Syndir föður míns“ og biður þar einkan- lega syni tveggja stjórnmála- manna, sem Escobar myrti, að fyrirgefa honum. - gb Sonur eiturlyfjabaróns: Vill síðbúna fyrirgefningu SEBASTIAN MARROQUIN Vegna frásagnar blaðsins um Laufás- borgarlundinn, sem birtist á laug- ardag, skal áréttað að Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri er verndari Laufásborgarlundarins ásamt írska tónlistarmanninum Damien Rice. Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs, tók einnig þátt í að planta trjánum. ÁRÉTTING Brú hrundi í byggingu Fimm manns létu lífið þegar brú hrundi í smáríkinu Andorra. Brúin var enn í byggingu þegar hún hrundi. Fjórir hinna látnu grófust undir en einn andaðist á sjúkrahúsi. ANDORRA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 20° 6° 7° 8° 10° 6° 2° 7° 7° 23° 10° 24° 20° 29° 6° 9° 18° 6° Á MORGUN Vestan 3-8 m/s. MIÐVIKUDAGUR Vaxandi suðaustanátt. 7 9 8 6 5 6 8 7 7 5 3 6 7 6 5 4 10 10 8 7 9 10 4 33 5 6 -30 4 5 0 FÍNT Á MORGUN Það verður nokkuð hvasst austanlands í fyrstu í dag, en það dregur víðast úr vindi og vætu eftir því sem líður á daginn. Á morgun verður hið fínasta veður, yfi rleitt hægur vindur og úrkomulítið og bjart eystra, en það kólnar lítillega, einkum norðan- lands. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður GENGIÐ 06.11.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 238,878 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,67 125,27 206,84 207,84 185,59 186,63 24,935 25,081 22,033 22,163 17,876 17,98 1,3759 1,3839 198,81 199,99 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.