Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 40
24 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
LÚR - BETRI HVÍLD
HLÍÐASMÁRI 1
201 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6969
FAX 554 3100
WWW.LUR.IS
LUR@LUR.IS
www.lur.is
Úrval rúma, sófa og hvíldarstóla
10:00 – 18:00mánfös
Opið:
lau 11:00 – 16:00
Margir litir í boði – Frábær verð í gangi
Tímabilinu í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kvenna
lauk um helgina. Íslendingaliðið Kristianstad lauk tímabil-
inu með 5-2 sigri á botnliði Stattena. Hólmfríður Magnús-
dóttir skoraði tvö mörk í leiknum og Erla Steina Arnardóttir
eitt. Guðný Björk Óðinsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir
léku þó allan leikinn fyrir Kristianstad, sem fékk alls átján
stig í deildinni.
Samningur Margétar Láru rennur út á næstunni og sagði
hún óljóst hvað tæki við hjá henni. „Tímabilinu er auðvitað
bara nýlokið. En mér standa einhverjir möguleikar til boða.
Mér líður þó vel hér og get vel séð fyrir mér að halda áfram
hjá Kristianstad,“ sagði Margrét Lára og útilokaði ekki að til
greina kæmi að spila utan Svíþjóðar. Hún á þó von á því að
Elísabet Gunnarsdóttir verði áfram þjálfari liðsins.
„Mér finnst það mjög líklegt þótt ég viti svo sem
ekkert um það. Það virðast þó allir mjög ánægðir með
hennar störf, bæði leikmenn og stjórnarmenn. Því kæmi
mér það mjög á óvart ef hún fengi ekki nýjan samning.“
Tímabilið byrjaði mjög rólega hjá Kristiastad. Liðið vann
ekki sinn fyrsta leik fyrr en í elleftu umferð en þá
komu tveir sigurleikir í röð. Liðið tapaði þó fáum
leikjum með miklum mun og vann nokkra leiki
gegn liðum í efri hluta deildarinnar.
„Beta er búin að gera frábæra hluti með þetta lið.
Það tekur auðvitað tíma að koma sínum áherslum að
en það sást vel í lok tímabilsins hversu vel liðið var að
spila. Við vorum líka að skora mikið af mörkum, sem
var virkilega gaman. Við þurfum samt að bæta okkur og
bæta við okkur leikmönnum fyrir næsta tímabil ef liðið
ætlar að ná sínum markmiðum fyrir næsta ár,“ sagði
Margrét Lára.
Hólmfríður Magnúsdóttir er nú á leið frá félaginu
þar sem hún mun spila í Bandaríkjunum á næstu
leiktíð en óvíst er með hina Íslendingana.
„Það er búið að vera mjög gaman að fá að spila
með íslensku stelpunum og það er allt til fyrirmynd-
ar hjá þessu félagi. Það kemur vel til greina að halda
áfram en maður veit aldrei hvað gerist í boltanum.“
MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR: TÍMABILINU Í SVÍÞJÓÐ LAUK UM HELGINA
Er ánægð hér en mun skoða mín mál
HANDBOLTI Haukar eru enn tap-
lausir eftir fyrstu fjóra leiki sína í
N1-deild karla en í gær höfðu þeir
betur gegn grönnum sínum í FH
á heimavelli, 29-25. FH var einn-
ig taplaust fyrir leikinn en með
sigrinum komu Haukar sér á topp
deildarinnar með sjö stig, einu
meira en Valur.
FH-ingar voru þó mun grimm-
ari í byrjun leiksins og alveg þar
til í upphafi síðari hálfleiks. Þeir
voru mun ákveðnari í öllum sínum
sóknaraðgerðum og ávallt skrefinu
á undan.
FH komst á gott skrið í lok fyrri
hálfleiksins og var yfir í leikhléi,
14-11. Liðið hélt uppteknum hætti í
upphafi síðari hálfleiks og kom sér
í fjögurra marka forystu, 16-12, á
fyrstu mínútunum.
Pálmar Pétursson fór mikinn
í marki FH-inga á þessum leik-
kafla og þeir Bjarni Fritzson og
Ólafur Guðmundsson fóru fyrir
liðinu í sókninni. Liðið lék einnig
glimrandi góða vörn.
En á tíu mínútuna kafla snemma
í síðari hálfleik snerist leikurinn
algerlega við. Vörn Haukanna
small vel saman og þeir Björg-
vin Hólmgeirsson, Sigurbergur
Sveinsson og hinn eldfljóti Freyr
Bjarnason fóru á fullt. Haukar
skoruðu sjö mörk gegn aðeins einu
marki FH á þessum kafla og kom-
ust yfir, 19-17.
FH-ingar reyndu að halda í
við Haukana en Birkir Ívar Guð-
mundsson, markvörður Hauka,
hrökk í gírinn og fór að verja nán-
ast allt sem á markið kom. Heima-
menn sigu fram úr og unnu fjög-
urra marka sigur sem fyrr segir.
„Við vorum einfaldlega lengi í
gang,“ sagði Birkir Ívar eftir leik-
inn. „Kannski ég sérstaklega,“
bætti hann við og hló. „Stundum
nægir að verja síðustu tíu mínútur
leiksins og það dugði í dag.“
Hann sagði þó aðalatriðið vera
stigin tvö sem Haukar unnu sér
inn í gær. „Það er liðið sem fær
stigin – ekki einstaklingarnir. Það
skiptir því minna máli hver spil-
ar vel og hver illa. Það var einnig
mjög sætt að ná að vinna sterkt lið
FH.“
Einar Andri Einarsson, þjálfari
FH, gat ekki komið auga á hvað olli
því að hans menn misstu tökin á
leiknum. „Leikurinn hrundi síð-
ustu 25 mínúturnar. Þá byrjuð-
um við allt í einu að henda bolt-
anum frá okkur hvað eftir annað
og í kjölfarið fengum við mörg
hraðaupphlaupsmörk á okkur. Þeir
slógu okkur algerlega út af laginu.
Ég veit ekki af hverju þetta gerð-
ist og það er nokkuð sem ég mun
skoða.“
Hann sagði þó að leikmenn og
þjálfarar myndu ekki örvænta
þrátt fyrir tapið. „Við vissum áður
en tímabilið hófst að við myndum
tapa einhverjum leikjum. Enda
labbar maður ekki upp á Ásvelli
og hirðir tvö stig með vinstri. Við
munum vinna áfram í okkar leik
enda stefnum við að því vera best-
ir í apríl og maí,“ sagði Einar.
Birkir Ívar var ánægður með
gengi Haukanna í haust. „Frammi-
staðan í fyrstu leikjunum hefði
mátt vera betri en það má ekki
gleyma því að við misstum marga
leikmenn í sumar og það tekur
tíma fyrir nýja menn að venjast
nýjum liðum. En ég held að þetta
sé allt á réttri leið, bæði í vörn og
sókn.“ eirikur@frettabladid.is
Taplausir Haukar á toppinn
Haukar höfðu betur í Hafnarfjarðarslagnum gegn FH í N1-deild karla í gær. FH-
ingar gáfu eftir í seinni hálfleik eftir að hafa komist mest fjórum mörkum yfir.
KLESSTUR Pétur Pálsson fær hér óblíðar móttökur hjá varnarmönnum FH í leiknum í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
N1-deild karla
Haukar - FH 29-26
Mörk Hauka (skot): Freyr Brynjarsson 8 (10),
Björgvin Hólmgeirsson 8 (14), Sigurbergur
Sveinsson 7/4 (15/4), Einar Örn Jónsson 2 (2),
Pétur Pálsson 2 (4), Guðmundur Árni Ólafsson 1
(3), Elías Már Halldórsson 1 (4), Tjörvi Þorgeirs-
son (1), Gunnar Berg Viktorsson (1).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 13 (39/1,
33%).
Hraðaupphlaup: 6 (Freyr 5, Sigurbergur 1).
Fiskuð víti: 4 (Pétur 2, Björgvin 2).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk FH (skot): Ólafur A. Guðmundsson 7 (12),
Bjarni Fritzson 6/1 (10/1), Jón Heiðar Gunnars-
son 4 (4), Ólafur Gústafsson 4 (8), Ásbjörn Frið-
riksson 2 (3), Örn Ingi Bjarkason 1 (4), Benedikt
Kristinsson 1 (1), Sigurgeir Árni Ægisson 1 (1).
Varin skot: Pálmar Pétursson 16 (41/2, 39%),
Daníel Freyr Andrésson 2 (6/2, 33%).
Hraðaupphlaup: 5 (Bjarni 2, Jón 2, Sigurgeir 1).
Fiskuð víti: 1 (Benedikt 1).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur Leifsson, áttu
ágætan dag.
N1-deild kvenna
Haukar - Fram 24-27
Mörk Hauka (skot): Ramune Pekarskyte 8 (12),
Hanna G. Stefánsdóttir 8/3 (13/4), Nína B. Arn-
finnsdóttir 2 (2), Erna Þráinsdóttir 2 (3), Karen
Helga Sigurjónsdóttir 2 (3), Nína K. Björnsdóttir 1
(4), Ester Óskarsdóttir 1 (7).
Varin skot: Heiða Ingólfsdóttir 18/1 (45/3, 40%)
Hraðaupphlaup: 6 (Hanna G. 3, Ramune 2,
Karen Helga 1).
Fiskuð víti: 4 (Nína B. 2, Ester 1, Nína K. 1).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Fram (skot): Stella Sigurðardóttir 10/1
(19/2), Karen Knútsdóttir 5/1 (7/1), Ásta Birna
Gunnarsdóttir 4 (4), Pavla Nevalirova 3 (7),
Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 3 (4), Hildur Þor-
geirsdóttir 1 (8), Marthe Sördal 1 (1).
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 15/1 (39/4,
38%).
Hraðaupphlaup: 10 (Stella 3, Ásta Birna 3,
Guðrún Þóra 2, Karen 2).
Fiskuð víti: 3 (Guðrún 1, Ásta Birna 1, Pavla 1).
Utan vallar: 6 mínútur.
Fylkir - HK 32-16
FH - Valur 16-25
KA/Þór - Stjarnan 19-32
STAÐA EFSTU LIÐA
Valur 5 5 0 0 160-87 10
Stjarnan 6 5 0 1 188-134 10
Fram 5 4 0 1 153-105 8
Haukar 5 3 0 2 141-129 6
FH 5 3 0 2 138-132 6
Fylkir 5 3 0 2 134-102 6
ÚRSLIT
> Ragna tvöfaldur meistari
Ragna Ingólfsdóttir fagnaði tvöföldum sigri á Iceland
International, alþjóðlegu badmintonmóti sem fór fram
hér í landi um helgina. Hún bar sigur úr
býtum í einliðaleik og tvíliðaleik kvenna. Hún
hafði betur gegn Camillu Overgaard frá Dan-
mörku í úrslitaviðureigninni í einliðaleikn-
um, 2-1. Ragna og Snjólaug Jóhannsdóttir
mættu Brynju Pétursdóttur og Erlu
Björgu Hafsteinsdóttur og unnu,
2-0. Cristian Lind frá Danmörku
vann í einliðaleik karla.
KRAFTLYFTINGAR Auðunn Jónsson
vann til silfurverðlauna í rétt-
stöðulyftu á heimsmeistaramóti
Alþjóða kraftlyftingasambands-
ins, IPF, sem haldið var á Ind-
landi um helgina. Auðunn lyfti
355 kílóum í sinni bestu lyftu og
setti þar með Íslandsmet í yfir-
þungavigt. - esá
Auðunn Jónsson:
Silfur á HM
HNEFALEIKAR Vitali Klitschko er
reiðubúinn að takast á við David
Haye á næsta ári en sá síðar-
nefndi varð um helgina WBA-
heimsmeistari í þungavigt eftir
sigur á hinum risavaxna Nikolay
Valuev.
Bardaginn var reyndar lítið
fyrir augað en Haye spilaði mjög
vel úr sínum spilum og hlaut á
endanum hærri stigagjöf dómara.
Klitschko er núverandi WBC-
heimsmeistari í þungavigt og er
reiðubúinn að leggja beltið undir
gegn Haye.
„Það er mjög erfitt að segja
nokkuð um hvað gerist í framtíð-
inni því Haye er afar óútreiknan-
legur. En ég er til í að berjast
við hann hvenær sem er,“ sagði
Vitali.
Báðir þurfa þó að verja titla
sína fyrst. Klitschko mætir
Kevin Johnson hinn 12. desember
og Haye er skylt að berjast næst
við John Ruiz vilji hann halda
titlinum sínum. - esá
Haye vann Valuev:
Klitschko til í
að mæta Haye
DAVID HAYE Kjaftaskurinn Haye stóð við
stóru orðin um helgina. NORDIC PHOTOS/GETTY