Fréttablaðið - 09.11.2009, Blaðsíða 30
9. NÓVEMBER 2009 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Fjórum lóðum fyrir íbúðarhús var
úthlutað í sumar á Leirusvæðinu
á Höfn í Hornafirði og er bygg-
ing þess fyrsta hafin. Það eru ný-
mæli því samkvæmt upplýsingum
byggingafulltrúa eru um fimmtán
ár frá því að íbúðarhús var byggt
á Höfn.
Í fyrra var steypt upp íbúðar-
hús á Breiðabólsstað í Suðursveit
en byggingu þess er ekki lokið. Ný
lögreglustöð er í byggingu og lokið
er við byggingu löndunarhúss á Ós-
landsbryggju. Þá hefur verið sam-
þykkt stækkun á þjónustuhúsi við
Flosalaug í Svínafelli í Öræfum.
Stærsta framkvæmd síðustu ára
í Hornafirði er sundlaugin sem
tekin var í notkun í vor en tengi-
byggingu er ólokið milli hennar og
Heppuskóla.
Þetta kemur fram á vefnum
www.rikivatnajokuls.is.
- gun
Íbúðir aftur byggðar
á Höfn í Hornafirði
Nýtt íbúðarhús er í smíðum á Leirunni á Höfn. MYND/WWW.RIKIVATNAJOKULS.IS
Nýjustu tækni verður beitt til að
tryggja varðveislu náttúrugripa
í eigu Náttúrufræðistofnunar
Íslands í nýju húsi hennar á
Urriðaholti. Söfnun gripanna nær
aftur til ársins 1755 og margir
þeirra eru mjög verðmætir og
sjald gæfir.
Áformað er að byggingu húss-
ins verði lokið í október 2010 og
þá geti Náttúrufræðistofnun flutt
starfsemi sína í Garðabæinn. Að-
gengi að öllum náttúrugripum
verður gott og einnig rannsóknar-
aðstaða.
Arkís hannaði hús Náttúru-
fræðistofnunar Íslands. Það
verður 3.500 fermetrar að stærð
og samanstendur af þremur
kjörnum sem eru tengdir saman
með millibyggingum. Húsið mun
standa við Jónasartorg sem heitir
eftir Jónasi Hallgrímssyni, einum
fyrsta náttúru fræðingi Íslands.
- gun
Nýtt hús yfir
náttúrugripina
Væntanlega kemst geirfuglinn í verðugt
skjól.
Haldið var upp á 120 ára afmæli
Víðidalstungukirkju í Húnavatns-
sýslu með hátíðamessu í gær.
Hún var á sínum tíma smíðuð
af Halldóri Bjarnasyni, reyndum
kirkjusmiði úr Borgarfirði sem
samtals reisti sjö kirkjur og lag-
færði aðrar níu. Auk þess smíðaði
hann áttatíu bæi, fjórtán vatnsmyll-
ur og 302 líkkistur á langri ævi.
Kirkjurnar hannaði hann sjálfur.
Víðidalstungukirkja er úr timbri
og bygging hennar tafðist nokkuð
sökum þess að hafís stöðvaði efnis-
öflun um tíma. Sá sem dró grjót í
grunn hét Kristján Jónsson en Þor-
steinn Hjálmarsson í Hvarfi smíð-
aði alla bolta, vinkla og vindhana
og skar gler í glugga.
Sjálf smíði guðshússins hófst í
júní 1889 og var kirkjan tilbúin á
fimm mánuðum, máluð og fullbúin.
Hjörleifur Einarsson prófastur
vígði hana 17. nóvember 1889.
Heimild/www.Feykir.is
Vígsluafmæli
kirkjunnar í
Víðidalstungu
Víðidalstungukirkja. Ein af níu kirkjum
sem smíðaðar voru af Halldóri Bjarnasyni.
Lán Íbúðalánasjóðs verða greiðslujöfnuð frá og með 1. desember 2009
Áætluð lækkun á mánaðarlegri greiðslubyrði er allt að 17%
Afþakka þarf greiðslujöfnun fyrir 20. nóvember
Nánari upplýsingar ásamt tilkynningu um afþökkun er að finna
á vefsíðu Íbúðalánasjóðs