Fréttablaðið - 09.11.2009, Síða 20

Fréttablaðið - 09.11.2009, Síða 20
 9. NÓVEMBER 2009 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald Starfsmenn Slysavarnafélags- ins Landsbjargar fóru í öryggis- heimsóknir til eldri borgara í Garðabæ og skoðuðu heimili þeirra með tilliti til öryggis og lagfærðu slysagildrur ef þörf var á. Dagbjört H. Kristinsdóttir, hjúkr- unarfræðingur og verkefnastjóri, segir að verkefnið hafi verið unnið og framkvæmt með stuðningi Garðabæjar. „Því er ætlað að stuðla að því að aldrað fólk haldi heilsu og geti með viðeigandi stuðningi búið lengur heima, sem er stefna stjórn- valda.“ Dagbjört segir tölur úr Slysaskrá Íslands sýna að heima- og frítíma- slys hjá öldruðum sé langstærsti slysaflokkurinn og því mikil vægt að fyrirbyggja þau. „Afleiðingar heimaslysa eru líka mun alvarlegri fyrir eldri borgara en aðra aldurs- hópa, en átján prósent þurfa á inn- lögn á sjúkrahús að halda á meðan hlutfallið er til dæmis eitt til tvö prósent hjá börnum.“ Starfsmaður Slysavarnafélags- ins Landsbjargar fór í heimsóknir til eldri borgara og fór yfir helstu öryggisatriði eins og reykskynjara, slökkvitæki, eldvarnateppi, hand- föng, stamar mottur í sturtu og baðkeri, næturljós, stiga og lausar mottur á gólfum. „Af heimilunum sem var boðið þáðu 56 prósent heimsókn og margir voru mjög þakklátir,“ segir Dagbjört. Hún segir niðurstöður á öryggis- atriðunum hafa verið bæði já- kvæðar og neikvæðar. Þannig hafi 96 prósent verið með rúm í réttri hæð, 88 prósent með hita- stilli á baðkari/sturtu, 81 prósent var með síma við rúmið og í 79 pró- sentum tilfella var stétt að húsi í góðu ástandi en hins vegar hafi í 67 prósentum tilvika vantað hand- rið beggja vegna við útitröppur. „Aðrar niðurstöður voru ekki eins góðar. Til dæmis höfðu 33 prósent gleymt potti á heitri hellu síðast- liðin tvö til þrjú ár og einungis 46 prósent voru með eldvarnarteppi. Lausar mottur voru til staðar í 55 prósentum tilfella og aðeins í 34 prósentum tilfella voru þær með skriðvörn. Þá voru 46 pró- sent ekki með stama mottu í bað- kari/sturtu og 37 prósent höfðu öryggishnapp.“ Dagbjört segir ýmislegt hægt að gera til að fyrirbyggja slys í heimahúsum hjá eldri borgurum. „Það er algengt að fólk detti bæði í sturtum, baðkerum og á lausum mottum. Það er hægt að kaupa ýmsar öryggisvörur sem draga úr áhættunni. Jafnvægi og styrkleiki fólks breytist oft þegar það eldist og það að standa upp getur verið erfitt. Rétt hæð á stólum og rúmum er mikilvæg eins og handföng við kló- sett og í sturtu og við baðker. Reyk- skynjarar eru mikil- vægastir í sambandi við eldvarnir og jafn- framt eru slökkvi- tæki og eldvarnar- teppi nauðsynleg á öll heimili.“ - uhj Margar lausnir í boði Eldri borgarar eru sá aldurshópur sem oftast lendir í slysum á heimilum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Slökkvitæki eru nauð- synleg á öll heimili. Fyrirtækið Geislatækni sérhæfir sig í framleiðslu íhluta fyrir inn- lenda framleiðendur á borð við Marel, Össur og fleiri iðn- fyrirtæki. Sérhæfing Geisla- tækni snýst fyrst og fremst um að nota leiserskurðtækni til að útbúa hluti úr málmi. „Fram- leiðsla okkar er fjölbreytt. Fyrst og fremst búum við til íhluti fyrir iðnfyrirtæki í stórum stíl en svo búum við einnig til stálborð og ýmislegt fleira fyrir stóreldhús og veitingahús og komum einnig inn á skiltamarkaðinn og smíðum jafnvel gjafavöru,“ segir Grétar Jónsson framkvæmdastjóri. Á dögunum fékk fyrirtækið til dæmis það verkefni að skera út árlegan jólaóróa Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra. Óró- arnir hafa vakið verðskuld- aða athygli síðustu ár enda hafa þjóðþekktir listamenn komið að hönnun þeirra. Í fyrra var það til dæmis Katrín Ólína Pétursdóttir sem hannaði gripinn í líki Grýlu en Hallgrímur Helgason samdi kvæði um kerlingu. Jólaóróinn hefur hins vegar ávallt verið framleiddur erlendis og er það í fyrsta skipti nú sem íslenskt fyrirtæki er fengið til þess. Grétar segir verkefnið hafa verið skemmtilegt enda kröfurnar aðeins meiri en gengur og gerist þar sem um er að ræða gjafavöru. „Við höfum svo sem tekið að okkur að búa til gjafa- vöru og smávöru fyrir gullsmiði en þó aldrei í jafnmiklum mæli og nú,“ segir Grétar ánægður með útkomuna. - sg Leiserskorin gjafavara Mótin renna úr vélinni. Tækjakostur Geislatækni getur afkastað miklu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Auglýsingasími – Mest lesið Við hjá H-gæðalínu ehf. sérhæfum okkur í hreinsun og fóðrun neysluvatnslagna að innan án uppbrots og óþæginda. LSE-System tæknin er frábær forvörn gegn ryðmyndun, tæringu, stíflu og leka. ER VANDAMÁL MEÐ NEYSLUVATNIÐ? H-gæðalína ehf. Cuxhavengötu 1 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 0077 • www.hgl.is Við höfum lausnina!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.