Fréttablaðið - 09.11.2009, Page 6
6 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
ÞJÓÐGARÐAR „Ég á von á því að þess-
um sumarbústaðaeiganda verði
skrifað og hann beðinn að fjar-
lægja þetta skilti og þessa keðju
því það samrýmist ekki lögum um
þjóðgarðinn að hefta för um hann
með þessum hætti,“ segir Álfheiður
Ingadóttir, formaður Þingvalla-
nefndar, um
lokaðan veg um
sumarbústaða-
lönd í Gjábakka-
landi.
Félögin Gjá-
bakki ehf. og
Vatnsvík ehf.
hafa frá því
2004 keypt þrjá
sumarbústaði
á samliggjandi
leigulóðum í
Gjábakka innan
þjóðgarðsins
á Þingvöllum.
Stærsta húsið
er bústaður
sem Gísli Jóns-
son alþingis-
maður átti og
gaf SÍBS fyrir
rúmum fjöru-
tíu árum. Þeim
bústað fylgir fjórtán hektara leigu-
lóð í eigu ríkisins. Lauslega áætlað
er lóðin um þrjátíu sinnum stærri
en meðal sumarhúsalóð.
Skráður eigandi Gjábakka ehf.
og Vatnsvíkur ehf. er Ólafur H.
Jónsson. Með Ólafi í stjórn þessari
félaga er dóttir hans Kristín Ólafs-
dóttir. Hún er eiginkona Björgólfs
Thors Björgólfssonar.
Þingvallanefnd hefur ráðfært
sig við lögfræðing í tilefni þess að
vegi sem liggur að leigulóðum áður-
nefndra bústaða hefur verið lokað
með keðju og hann merktur sem
einkavegur.
„Þetta er alveg fáránlegt þegar
menn eru að búa til fréttir um aðra
um ekki neitt. Ég held að þú eigir
að fara að snúa þér að því að fara
að hugsa um það að skrifa eins og
maður en ekki fara eftir skítlegu
eðli þinna ritstjóra og annarra
manna sem í kringum ykkur eru,“
segir Ólafur H. Jónsson meðal ann-
ars.
Álfheiður Ingadóttir segir að í
lögum um þjóðgarðinn séu mjög
skýr ákvæði um að almenningi eigi
að vera heimil för um þjóðgarðinn.
„Þetta er þjóðgarður og hann er eign
okkar allra Íslendinga,“ segir for-
maður Þingvallanefndar og upplýsir
að nefndin hafi samþykkt árið 2003
að lóðin við gamla SÍBS-bústaðinn
verði minnkuð niður í einn hektara
við næstu endurskoðun lóðaleigu-
samningsins sem vera eigi um mitt
næsta ár. gar@frettabladid.is
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip.
Tryggðu þér eintak í tíma.
Hefur þú fengið svínaflensu?
Já 10,3
Nei 89,7
SPURNING DAGSINS Í DAG
Munu Nylon-stúlkur slá í gegn í
Hollywood?
Segðu skoðun þína á vísir.is
Sjö fórust í bruna
Sjö manns létust og tveir hlutu
meiðsli í eldsvoða í þriggja hæða
íbúðarhúsi í Riga seint á laugar-
daginn. Átta manns björguðust úr
byggingunni, þar af fjögur börn.
LETTLAND
Þingvallanefnd vill
opna veg um risalóð
Ólafur H. Jónsson og Kristín dóttir hans stýra félögum sem eiga þrjú sumarhús
á samliggjandi leigulóðum ríkisins í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Ein lóðin er
gríðarstór og vegi að henni er lokað með keðju sem Þingvallanefnd vill burt.
EINKAVEGUR Í ÞJÓÐGARÐI Þingvallanefnd sættir sig ekki við að eigandi þriggja bústaða í Gjábakkalandi loki á almenning með
keðjum og bannskiltum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÓLAFUR H.
JÓNSSON
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
HENGILÁS Nær bústaðnum er annað
hlið með hengilás. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
H
ra
fn
ag
já
1
5
3
Gjábakkaland í Þingvallaþjóðgarði
Þingvallavatn
Gjábakkaland
Þi
ng
va
lla
ve
gu
r
Va
lla
ve
gu
r
1 km
N
Hlið
Sami eigandi er að
sumarhúsunum í
Gjábakkalandi 1, 3
og 5.
SELTJARNARNES Ásgerður Halldórs-
dóttir, bæjarstjóri á Seltjarnar-
nesi, vann afgerandi sigur í próf-
kjöri sjálfstæðismanna sem fram
fór á Seltjarnarnesi á laugardag-
inn. Hún hlaut 707 atkvæði en alls
greiddu 1.090 manns atkvæði.
Guðmundur Magnússon, sem sótt-
ist eftir oddvitasætinu, hafnaði í
öðru sæti.
Prófkjör sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi var það fyrsta sem
fram fór vegna sveitarstjórnar-
kosninganna í maí á næsta ári.
Gunnar Lúðvíksson, formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins
á Seltjarnarnesi, segir að ekki hafi
verið tekin ákvörðun um endan-
legan lista. „Miðað við úrslit-
in eru nokkur sæti bindandi og
önnur ekki. Á þessu stigi er eng-
inn sérstakur hugur í okkur að
gera breytingar á listanum, en sá
möguleiki er til staðar.“
Frumvarp um persónukjör til
sveitarstjórnarkosninga er nú til
meðferðar á Alþingi. Á Seltjarn-
arnesi eru venjulega fjórtán nöfn
á kjörseðli fyrir sveitarstjórn-
arkosningar, þar sem efstu sjö
frambjóðendur eru kosnir í próf-
kjöri og neðstu sjö valdir af full-
trúaráði flokksins. Ef frumvarp
um persónukjör verður samþykkt
segir Gunnar líklegast að kjósend-
ur geti kosið um efstu sjö sætin,
meðal þeirra sem völdust á lista í
prófkjöri laugardagsins. Endan-
leg útfærsla á persónukjörinu sé
þó ekki ljós. - hhs
Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi efndu til prófkjörs um helgina:
Ásgerður vann afgerandi sigur
NÝI OG GAMLI BÆJARSTJÓRINN Ásgerð-
ur Halldórsdóttir, bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi, vann afgerandi sigur í prófkjöri
sjálfstæðismanna í bænum.
BRETLAND, AP Bretar minntust í
gær fallinna hermanna í öllum
styrjöldum sem landið hefur átt í,
þar á meðal bæði fyrri og seinni
heimsstyrjöldunum ásamt núver-
andi stríðsrekstri í Afganistan
og Írak.
Alls hafa 232 Bretar týnt líf-
inu í Afganistan síðan stríðið þar
hófst árið 2001.
Minningardagur fallinna her-
manna hefur verið haldinn árlega
í Bretlandi síðan 1918. Bretar
lögðu meira upp úr þessum degi
en venjulega vegna þess að á
árinu létust þrír aldraðir menn,
þeir síðustu eftirlifandi sem tóku
þátt í fyrri heimsstyrjöldinni. - gb
Minningardagur í Bretlandi:
Fallinna her-
manna minnst
Neyðaraðstoð áfram
Fjármálaráðherrar G20-ríkjanna boða
áframhaldandi neyðaraðstoð fyrir
efnahagslífið í ríkjum sínum þangað
til sér fyrir endann á kreppunni. Þeim
tókst hins vegar ekki, á fundi sínum
í Skotlandi, að ná samkomulagi um
skiptingu kostnaðar við baráttuna
gegn loftslagsbreytingum.
SKOTLAND
VENESÚELA, AP Hugo Chavez, for-
seti Venesúela, sagði her lands-
ins að búa sig undir stríð við Kól-
umbíu. Hann
sagði hættu
á að Banda-
ríkin myndu
reyna að etja
Kólumbíu út í
hernað gegn
Venesúela.
„Besta leiðin
til að komast
hjá stríði er að
búa sig undir
það,“ sagði hann í vikulegu sjón-
varpsávarpi sínu í gær.
Þetta voru viðbrögð hans við
samningi sem Bandaríkin og Kól-
umbía gerðu um að bandarískir
hermenn fengju aukinn aðgang
að herstöðvum í Kólumbíu. - gb
Viðbúnaður í Venesúela:
Chavez býr her
sinn undir stríð
HUGO CHAVEZ
Flóttamaður handtekinn
Ítalski mafíósinn Luigi Esposito
var handtekinn á laugardag í einu
úthverfa borgarinnar Napolí. Hann
hafði verið á flótta síðan 2003.
ÍTALÍA
KJÖRKASSINN