Fréttablaðið - 09.11.2009, Side 12

Fréttablaðið - 09.11.2009, Side 12
12 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR Vala Björg Garðarsdóttir fornleifafræðingur segist þurfa tvö sumur og 25 milljónir til að ljúka við uppgröft á leifum frá vík- ingaöld við Alþingisreit. Hún vonar að verkið verði ekki boðið út á kostnað vísindanna og bendir á að vísindaleg rannsókn, með tilheyrandi samstarfi við háskóla, geti verið ódýrari. Erlendir fræðimenn vilja taka þátt í starfinu. Uppgrefti fornleifa við Alþingisreit lauk fyrir mánaðamót, samkvæmt áætlun. Við gröftinn komu í ljós ýmsar leifar allt frá víkingaöld, sem á eftir að skoða betur og ekki var gert ráð fyrir í upphaflegri áætlun. Tyrft var yfir minjarnar aftur og þær skildar eftir óáreittar, að svo stöddu. Nefnd á vegum menntamálaráð- herra fer nú yfir hvað skuli gert við þær menjar sem fundust, og hvern- ig skuli brugðist við vísbendingum um að enn meiri fornleifar leynist á næstu grösum. Vill vísindalega rannsókn Vala Björg Garðarsdóttir fornleifa- fræðingur hefur stýrt uppgreftin- um. Hún vill helst ekki að hald- ið verði útboð um verkefnið. „Ég vona að þetta verði skilgreint sem vísindaleg rannsókn og gert á þeirri forsendu en ekki sem björgunarupp- gröftur, eins og var,“ segir hún. Fleiri sérfræðingar muni koma að rannsókninni á víkingaaldar- leifunum en komu að uppgreftinum á Alþingisreitnum sem slíkum. Vala sér fyrir sér samstarf milli minja- stofnana, erlendra og innlendra háskóla, ríkis og borgar, en vonandi verði stjórnin í höndum sama fólks og áður, það er Völu og félaga. Skýrsla eftir níu mánuði Spurð hvenær verði farið í þessar rannsóknir segist Vala vona að það verði næsta sumar, og ekki seinna en sumarið 2011. „Við höfum níu mánuði til að púsla þessu saman og skila af okkur lokaskýrslu. Við gætum svo klárað rannsóknirnar á víkingaaldarleif- unum á tveimur sumrum fyrir kannski 25 milljónir, sem er ekki mikið,“ segir hún. Í vetur verður unnið úr þeim gögnum sem aflað hefur verið í uppgreftinum, fyrir skýrsluna. „En af því að þetta fór í útboð er okkur sniðinn nokkuð þröngur stakkur. Þessa vinnu mætti vinna talsvert ítarlegar í vísindalegri rannsókn því þar eru gæði starfsins aðalatriðið og þá kæmu að sérfræð- ingar og háskólarnir. Ég fæ vonandi að taka þátt í því,“ segir hún. Ódýrari akademía Hún segir Íslendinga ekki gera sér grein fyrir því hversu miklu ódýr- ara akademíska fyrirkomulagið er. „Sérfræðingar sem þar koma að eru á styrkjum frá sínum háskól- um. Það gæti til dæmis verið doktors nemi, sem ætlar að sérhæfa sig í járnvinnslu. Þann efnivið má nýta í rannsóknina, en í útboði er slík sérfræðiþjónusta aðkeypt. Það mætti því skoða þessa útboðshugs- un aðeins betur.“ Nú sé einnig mjög aðlaðandi fyrir erlenda háskóla að vinna verkefni á Íslandi, því styrkirnir verði tvöfalt hærri hér en erlendis, vegna lágs virðis krónunnar. „Það er því ekki erfitt að fá erlenda háskóla í þetta samstarf. Við erum þegar búin að heyra í sér- fræðingum sem biðja um að koma að verkinu,“ segir Vala fornleifa- fræðingur. Þau safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar 9. og 10. nóvember Kostar 25 milljónir að ljúka rannsókninni VALA MUNDAR FENGINN Þessi birkibútur úr gamalli kolagröf er frá 870. Vala hefur ekki fundið neitt sem sýnir ótvírætt fram á að í Reykjavík hafi verið föst búseta fyrir þann tíma. Líklegra sé að fólk hafi dvalið hér árstíðabundið, fyrir eiginlegt landnám, en ekki haft fasta búsetu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Öðru hvoru er rætt um að landnám Íslands sé eldra en segir í skólabók- um. Í mars bárust fréttir af fornleifa- fundi á Alþingisreitnum. Þetta voru járngerðarofnar sem áttu að benda til að menn hefðu haft fasta búsetu hér, 150 árum fyrir ætlað landnám. Vala Garðarsdóttir segir að í raun- inni séu sannanir fyrir fastri búsetu fyrir árið 871 litlar. „Auðvitað eru vísbendingar um að hér hafi verið menn, en ekki í nærri eins miklum mæli og við sjáum strax eftir 870. Fólk hefur því örugglega komið hingað og sest að árstíðabundið, en stöðuga búsetu sér maður ekki fyrr en strax eftir lok níundu aldar,“ segir hún. „En svo eru nýjar rannsóknir að koma fram um hvað mýrarrauðinn var dýrmætur og hreinn á Íslandi og að hann kunni að vera ein ástæða þess að menn komu hingað og settust að til að byrja með. En það er ýmsu ósvarað um það og heil- mikið eftir að grafa upp.“ Heilmikið sé eftir af víkingaaldar- leifum, sem ekki hafi verið grafið í að sinni, undir Tjarnargötu og Kirkju- stræti og víðar: „Bæjarstæðið hefur verið mun þéttara en við áttuðum okkur á áður, því við höfum alltaf verið að grafa á svo afmörkuðum svæðum. Menn geta svo rifist um hvort landnám var árið 900 eða 800, það skiptir ekki öllu máli.“ - kóþ LÍTIÐ BENDIR TIL FASTRAR BÚSETU FYRIR 871 VALA MEÐ SNÆLDUSNÚÐ Þeir kunna að geyma eitt elsta rúnaletur sem fundist hefur hér, frá 10. eða 11. öld. HONDÚRAS, AP Manuel Zelaya, hinn brottrekni forseti Hondúras, segir að samkomulag um stjórn landsins sé að engu orðið. Bandaríkin höfðu milligöngu um að Zelaya og andstæðingar hans, sem ráku hann úr landi og tóku sér völd fyrir fjórum mán- uðum, mynduðu sameiginlega stjórn til að leysa deiluna. Ekkert hefur hins vegar orðið úr þeirri stjórnarmyndun. Þegar frestur til þess rann út í gær sagði Zelaya samkomulagið runnið út í sandinn. „Það er tilgangslaust að blekkja landsmenn,“ sagði hann í gær. - gb Hinn brottrekni forseti: Samkomulag að engu orðið MANUEL ZELAYA Forsetinn burtrekni í sendiráði Brasilíu, þar sem hann hefst við. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FRÉTTAVIÐTAL: Uppgröftur á leifum frá víkingaöld á Alþingisreit FRÉTTAVIÐTAL KLEMENS ÓLAFUR ÞRASTARS. klemens@frettabladid.is Ég vona að þetta verði skilgreint sem vísindaleg rannsókn og gert á þeirri for- sendu en ekki sem björgunarupp- gröftur eins og var. VALA BJÖRG GARÐARSDÓTTIR FORNLEIFAFRÆÐINGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.