Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.11.2009, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 09.11.2009, Qupperneq 18
Fjölmiðlakonan knáa Kristín Eva Þór- hallsdóttir sem er annar tveggja umsjónarmanna útvarpsþáttarins Leynifélagsins á Rás 1 heldur úti skemmtilegri vefsíðu (www.next- doortomagic.blogspot.com). Þar viðar hún að sér myndum og hugmyndum sem snerta börn á einhvern hátt. Þetta geta verið innanstokksmunir, skraut í barna- herbergið, leikföng eða jafnvel verslanir um víðan heim sem stíla inn á börn. Þar bendir hún meðal annars á þetta ljómandi fallega dúkku- hús í Viktoríustíl. Húsið er frá Etsy (www.etsy.com) og er hver hlutur þess leiserskorinn úr viði með ótrúlegum árangri eins og sést. Dúkkuhús í Viktoríustíl Á VEFSÍÐUNNI NEXTDOORTOMAGIC.BLOGSPOT.COM ER AÐ FINNA SKEMMTI- LEGAR HUGMYNDIR FYRIR BÖRN. AÐ HENGJA UPP MYNDIR getur verið vandaverk. Til að koma í veg fyrir klúður og óþarfa göt í gifsveggina er sniðugt að klippa form myndarammanna sem á að nota út úr pappír og líma á vegginn áður en hafist er handa við upphenginguna sjálfa. Í Flower Eruption-sandvösunum sameinar vöru- hönnuðurinn Jón Björnsson efnivið og aðferðir sem hann notaði við gerð útskriftarverkefna sinna frá The Design Academy Eindhoven í Hollandi. „Útskriftarverkefnin mín voru sandborð og pappírs lampar en gerð sandborðsins, sem heitir Fata (Askja), byggir á fyrstu framleiðsluaðferðinni sem ég notaðist við sem barn í sandkassanum. Þar fyllti ég hverja fötuna á fætur annarri af blautum sandi og byggði upp heilu borgirnar á góðum degi. Síðan var kallað í mat og daginn eftir voru verkin horfin. Hugmyndin með borðinu var að leyfa sandinum að fylgja með inn í hús og búa til eitthvað varanlegt úr honum,“ lýsir Jón. „Þegar ég sneri heim fór ég að fikta við að gera vasamót úr pappír sem ég steypti sandinn í og má því segja að útskriftar- verkefnin mín sameinist í vös- unum.“ Jón, sem býr á Höfn í Horna- firði, er með vinnuaðstöðu í gamalli verbúð. „Ég hugsa að vasarnir, sem eru væntanlegir í verslanir um næstu mánaðamót, væru jafnvel komnir í almenna sölu ef ég byggi í Reykjavík. Hins vegar er ég mun nær efniviðnum hér fyrir austan, en sandurinn kemur úr fjörum Austur-Skaftafellssýslu.“ Jón vinnur mikið með pappír. „Með pappírs- módelum get ég á ódýran hátt áttað mig á hlutföll- um, sem getur verið erfitt ef ég styðst eingöngu við þrívíddarteikningar.“ Þannig hefur Jón unnið hug- mynd að stól sem hefur fengið nafnið Gosi. „Gosi er úr pappír en hans heitasta ósk er að er að verða einhvern tímann alvöru stóll og er hugmyndin að herða hann að innan. Til eru ýmsar aðferðir við að gera það en ég hef ekki aðgang að þeim eins og er.“ Af öðrum hugmynd- um Jóns má nefna blaða- borð sem enn sem komið er er einungis til á tölvu- tæku formi. „Þetta er hugmynd sem ég vann í skólanum fyrir hönnunar- keppni japanska fram- leiðandans Muji en borð- ið er með handhægri lausn fyrir tímarit og blöð.“ Jón á von á því að sand- vasarnir verði seldir í Epal og öðrum hönnunarverslunum en þá má einnig nálgast í gegnum vefsíðuna www.bjoss.com. vera@frettabladid.is Gosi er úr pappír en á þá ósk heitasta að verða alvöru stóll. Jón Björnsson Cheddarbrauð 375 g hveiti 3 sléttfullar tsk. lyftiduft 1 kúfuð tsk. salt 100 g cheddar-ostur, rifinn gróft (má nota parmesan ef vill) 1 egg 3 msk. jurtaolía 100 ml Ab-mjólk og 150 ml mjólk (eða 250 ml mjólk og sleppa Ab- mjólk) smá rifinn parmesan-ostur Eggjablanda til penslunar: ½ tsk. salt 1 egg örlítil mjólk Fyrst er hveiti, salti, lyftidufti og rifn- um osti blandað í skál. Í aðra skál er blandað mjólk, Ab-mjólk, eggjum og olíu. Svo er þessu öllu blandað saman í skál og hrært laust með gaffli. Bæði má gera bollur úr þessu eða brauð. Galdurinn er að hafa deigið eins blautt og hægt er því þá verður brauðið svo mjúkt. Eftir að deigið er komið á plötuna er það penslað með eggjablöndunni og jafnvel smá parmesan stráð yfir. Brauðið er bakað í 20-30 mínútur við 180 gráður á celsíus. Leiðrétt uppskrift að brauði Í UPPSKRIFT AÐ CHEDDAR-BRAUÐI SEM BIRTIST Á FORSÍÐU ALLTSINS FÖSTU- DAGINN 6. NÓVEMBER VAR RANGT FARIÐ MEÐ INNIHALDSLÝSINGU. HÉR ER RÉTT UPPSKRIFT. Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Mánudagur 9. nóvember Miðvikudagur 11. nóvember Fimmtudagur 12. nóvember Qi – Gong - Æfingar sem hjálpa fólki að afla, varðveita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00. Gönguhópur - Við klæðum okkur eftir veðri og göng- um rösklega út frá Rauðakrosshúsinu. Tími: 13.00 -14.00. Skiptifatamarkaður - Útiföt barna - Komdu og skiptu útifötum barnanna í aðrar stærðir og gerðir. Tími: 13.30 -17.00. Áhyggjur, kvíði og fælni – Hvernig er best að fást við kvíða og áhyggjur? Tími: 13.30-15.00. Baujan sjálfstyrking - Byggð á slökunaröndun og tilfinningavinnu til sjálfshjálpar. Fullt! Tími: 15.00 -16.30. Sorg og sorgarviðbrögð - Það er til margskonar missir og sorg. Tími: 15.00 -16.00. Markþjálfun fyrir atvinnuleitendur - Skráning nauðsynleg. Tími: 12.00-14.00. Uppeldi sem virkar – Að tala við börn - Annar hl- uti af fjórum sjálfstæðum fyrirlestrum. Tími: 12.30-13.30. Föndur, skrapp-myndaalbúm og jólakort -Athug- ið ný tímasetning! Gott er að hafa skæri meðferðis. Tími: 12.00-14.00. Saumasmiðjan - Gerðu við og breyttu flíkum. Komdu með saumavél ef þú getur. Tími: 13.00-15.00. Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00. Ungt fólk í atvinnuleit - Lísbet frá Lectura fjallar um tengslanet, byrjunarreit og hvað á ekki að gera í atvinnuleit. Erindi fyrir yngri atvinnuleitendur. Tími: 12.30-13.30. Gönguhópur - Við klæðum okkur eftir veðri og göng- um rösklega út frá Rauðakrosshúsinu. Tími: 12.30 -13.30. SalsaIceland – Salsa fyrir byrjendur - Komdu og prófaðu grunnsporin í þessum sívinsæla dansi undir skemmtilegri salsa tónlist. Tími: 14.00-15.00. Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri og gleði? Tími: 15.30-16.30. Föstudagur 13. nóvember Psychosocial support - An introduction to the main elements of psychosocial support. Tími: 12.30-14.00. Markþjálfun fyrir atvinnuleitendur - Einkatímar hjá Vildísi Guðmundsdóttur markþjálfa. Skráning nauðs- ynleg. Tími: 12.00-14.00. Prjónahópur - Vertu með! Tími: 13.00-15.00. Talaðu án ótta- Edda Björgvins leikkona gefur góð ráð um hvernig má koma fram óttalaus og virkja gleði- hormónin um leið. Tími: 14.30 -16.00. Skákklúbbur - Fyrir lengra komna sem og byrjendur. Tími: 15.30-17.00. Allir velkomnir! Hagsmunasamtök heimilanna - Formaðurinn ræð- ir aðgerðir stjórnvalda fyrir heimilin. Tími: 12.00-13.00. Áhugasviðsgreining - Taktu áhugasviðskönnun og fáðu einkaráðgjöf í framhaldinu. Skráning nauðsynleg. Tími: 13.00-15.00. Tölvuaðstoð - Fáðu persónulega aðstoð og komdu með eigin tölvu ef þú getur. Tími: 13.30-15.30. Bókaklúbbur - Spjallað verður um bókina Dóttir Beina- græðarans eftir Amy Tan. Tími: 14.00-15.00. Færnimappa - skráning á raunfærni - Hefur þú starfsreynslu en hvorki próf né formlega staðfestingu til að sanna kunnáttu þína? Tími: 15.00-16.00. Gerði Jesú kraftaverk? - Hefur þig alltaf langað til að að lesa Biblíuna en aldrei byrjað? Tími: 15.30-16.30. Þriðjudagur 10. nóvember Rauðakrosshúsið Mótar sand í varanleg form Vöruhönnuðurinn Jón Björnsson hefur getið sér gott orð fyrir sandvasana Flower Eruption sem hann steypir í pappírs- mót. Hann hlaut styrk úr Aurorusjóðnum til að koma þeim á markað og eru þeir væntanlegir innan skamms. Vasarnir verða komnir í almenna sölu um næstu mánaðamót en þá má einnig nálgast á slóðinni www.bjossi. com MYND/ÚR EINKASAFNI Hugmynd að blaðaborðinu sendi Jón í hönnunarkeppni japanska framleið- andans Muji en S-stóllinn fyrir aftan er einnig hugarfóstur hans.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.