Fréttablaðið - 09.11.2009, Page 36
20 9. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
Tannlæknirinn og lagahöfundurinn
Heimir Sindrason hefur sent frá sér hina
hugljúfu plötu Ást og tregi. Ellefu ár eru
liðin síðan síðasta plata hans kom út.
„Ég gef út álíka oft og Hekla gýs. Ég
vona að þetta hafi ekki í för með sér að
hún gjósi,“ segir Heimir og hlær. Margir
af bestu söngvurum þjóðarinnar þenja
raddböndin á plötunni, þar á meðal
Diddú, Egill Ólafsson og Stefán Hilmars-
son. Yngri söngvarar á borð við Klöru í
Nylon og Edgar Smára koma einnig við
sögu. Þau syngja lög sem tóku þátt í
undan keppni Eurovision-hér á landi fyrr
á árinu, The Kiss We Never Kissed og
Cobwebs.
Einnig eru á plötunni þrjú lög sem
Heimir samdi fyrir brúðkaup barn-
anna sinna auk þess sem lag hans við
sjálft Faðirvorið bindur endahnútinn
á plötuna. „Ég var að svæfa barnabörnin
mín og vantaði lag við þessa bæn, þannig
að ég raulaði þetta á miðri nóttu,“ segir
Heimir og vonast til að lagið eigi eftir
að festa sig í sessi í framtíðinni. „Allir
krakkar sem heyra þetta lag eru sjúkir í
það og þá er tilganginum náð. Mig langaði
fyrst og fremst að gera þetta lag aðgengi-
legt fyrir krakka.“
Heimir sló í gegn á sjöunda áratugnum
í dúettnum Heimir og Jónas og samdi
Heimir þá hið gríðarvinsæla lag við ljóðið
Hótel jörð. Síðan þá hefur hann einbeitt
sér að tannlækningunum þó svo að tón-
listargyðjan hafi aldrei verið langt undan,
eins og sannast með nýju plötunni. - fb
Krakkarnir sjúkir í Faðirvorið
HEIMIR SINDRASON Lagahöfundurinn snjalli
hefur sent frá sér plötuna Ást og tregi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Michael Caine upplýsir í við-
tali við Esquire-tímaritið að
allir vinir hans hafi yfirgefið sig
þegar hann ákvað að gerast leik-
ari. Ástæðan var einföld; hann
hafði einfaldlega ekki efni á því
að kaupa drykki á barnum.
Caine, sem nú er orðinn það
ríkur af leiklistinni að hann gæti
keypt sér sinn eigin
bar, segir að fyrstu
árin sín sem leik-
ari hafi verið erfið.
„Ég var hálfatvinnu-
laus og átti engan
pening. Slíkir
menn eru
yfirleitt
mjög ein-
mana.“
Yfirgefinn
Caine
MICHAEL
CAINE
Steven Tyler, söngvari
Aerosmith, yfirgaf sveitina
á tónleikum í Abu Dhabi
fyrir tæpum mánuði. Hann
er sagður hættur öllu rokk-
stússi.
Hljómsveitin var að spila í Abu
Dhabi fyrir um mánuði og eftir að
ellismellirnir höfðu lokið sér af lét
Tyler sig hverfa upp í flugvél og
hefur hvorki talað við kóng né prest
síðan þá. Gítarleikari hljómsveitar-
innar og hennar helsti lagasmiður,
Joe Perry, segir í samtali við Las
Vegas Sun að hann búist ekki við því
að Tyler snúi aftur. „Hann er hættur
en ég veit ekkert meira. Ég kom frá
Abu Dhabi fyrir tveimur dögum og
las á netinu að Tyler hygðist segja
skilið við okkur,“ segir Perry.
Perry heldur því jafnframt fram
að söngvarinn svari hvorki í síma
né neinum skilaboðum frá öðrum
hljómsveitarmeðlimum þannig að
þeir standi í raun á gati hvað þetta
varðar. „Hann hefur hvorki sett sig
í samband við mig né hina meðlimi
Aerosmith til að ræða þessa hluti.
Hann er reyndar frægur fyrir svona
stæla og ég hef bara lært að lifa með
þeim,“ útskýrir Perry í viðtalinu við
Las Vegas Sun.
Perry segir Tyler augljóslega hafa
misst áhugann, hann hafi ekki gefið
sig allan í verkefni sveitarinnar og
þetta sé niðurstaðan. „Hann var
greinilega búinn að hugsa um þetta
í mjög langan tíma. Mér þykir enn
vænt um hann sem manneskju, alla-
vega þá manneskju sem ég þekkti
einu sinni, en mér þykir það jafn-
framt lélegt að láta okkur lesa um
þetta á netinu.“ Perry tekur reynd-
ar skýrt fram í viðtalinu að sveit-
in sé hvergi nærri hætt, með brott-
hvarfi Tylers geti hún fundið nýjan
og betri hljóm. fgg@frettabladid.is
Steven Tyler yfirgefur Aerosmith
> HÆTT AÐ REYKJA
Kate Hudson er hætt að reykja.
Eða svo fullyrða bandarískir fjöl-
miðlar. Og hefur snúið sér að því
að borða góðan mat og dansa
salsa með nýja kærastanum
Alex Rodriguez, fyrrverandi elsk-
huga Madonnu.
BRESTIR Í SVEITINNI Steven Tyler er hættur í Aerosmith og hefur hvorki talað
við kóng né prest um brotthvarf sitt. Aðrir liðsmenn sveitarinnar lásu um þessa
ákvörðun Tylers á netinu.