NT - 15.12.1984, Síða 23

NT - 15.12.1984, Síða 23
■ Það ógeðslega atvik gerðist eftir leik Glasgow Celtic frá Skotlandi og Rapid Vín Austuríki í Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu að skoskir áhorfendur réðust inn á völlinn og gengu í skrokk á sigurvegurunum frá Austurríki. Markaskorarinn Peter Pacult var laminn til jarðar og sparkað í kvið hans, og sést hlynnt að lionuni á myndinni. Einnig var ráðist á markvörð Rapid eftir leikinn. Nú hefur annar árásarmaðurinn verið fangelsaður og hinn er talinn hljóta sömu örlög. 1 Símamynd-POLFOTO Fantarnir fangelsaðir - árásarmaður eftir leik Celtic og Rapid Vín dæmdur í fangelsi ■ Einn áhangenda Glasgow Celtic frá Skotlandi var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Manchester í Englandi í gær eftir að hafa ráðist á austurríska mark- vörðinn Herbert Feurer eftir ósigur Glasgow Celtic gegn Rapid Vín í Evrópukcppni bikarhafa í knattspyrnu í síðustu viku. Annar áhangandi, sem sló markaskorara Rapid, Peter Pacult, til jarðar var látinn laus gegn tryggingu, en ' líklegt þykir að hann verði einnig dæmd- ur í fangelsi. John Tobin, 31 árs áhangandi Celtic, , sló markvörðinn Feurer eftir leikinn, blindfullur og ærður af ófögnuði vegna taps Celtic. Lögreglumaður vitnaði um það í réttinum að hann hefði heyrt Tobin ógna Feurer um leið og hann réðist að honum. Lögregluþjónninn seg- ir að Tobin hafði sagt: Eg ætla að drepa Þig- Annar áhangandi Celtic, Hugh Hon- eyman, var látinn laus gegn tryggingu. Hann sló markaskorarann Peter Pacult' til jarðar eftir leikinn og sparkaði í kvið hans. Leikur þessi var endurtekinn á hlut- lausu svæði, í Manchester, eftir að síðari leikur liðanna sem leikinn var í Glasgow var dæmdur ógildur. Þar var leikmaður Rapid barinn í höfuðið með flösku á meðan á leiknum stóð. Þann leik vann Celtic 3-0 og hefðu þau úrslit dugað Celtic til að komast áfram ef ekki hefði komið til framtakssemi áhorfenda. Talið er áreiðanlegt að Celtic fái bann frá Evrópukeppni og miklar sektir vegna þessara ógeðslegu atvika. fþróttir helgarinnar: Handbolti: 1. deild karla: Þór-Þróttur í eyj- um kl. 13.30 í dag, á morgun KR-Breiðablik klukkan 14 og Val- ur-Stjarnan kl. 15.15 í Höllinni og FH-Víkingur í Firðinum kl. 20. 2. deild kárla: Haukar-Fram í Firðinum kl. 14 á morgun og Fylkir- HK í Seljaskóla á sama tíma. Körfubolti: Úrvalsdeild: Viðureign topplið- anna: Haukar-Njarðvík í Firðinum i dag klukkan 14.00. Á morgun Valur-ÍS í Seljaskóla og KR-ÍR í Hagaskóla, báðir kl. 20. 1. deild kvenna: Njarðvík-KR kl. 15.30 í dag í Njarðvík. 1. deild karla: Grindavík-Þór í Njarðvík í dag kl. 14 og Fram- UMFLámorgun kl. 14íHagaskóla. Blak: 1. deild karla: HK-Víkingur í Digranesi kl. 14 og á sama tíma Fram-ÍS í Hagaskóla. 1. deild kvenna: Breiðablik-ÍS í Digranesi kl. 15.30 og Víkingur- Þróttur í Hagaskóla á sama tíma. Badminton: Langholtsskólamót fyrir 9 ára í TBR húsinu á morgun. Borðtennis: Flugleiðamót í íþróttahúsi Kenn- araháskólans í dag kl. 14.30. Átta bestu karlar og fjórar bestu konur, allir keppa við alla. Laugardagur 15. desember 1984 23 Palli var einn í heiminum Hin heimsfræga barnabók danska rithöfundarins - Jens Sigsgaard - meö teikningum eftir Arne Ungermann - er nýlega komin út á íslensku í 4. útgáfu. Þ.ýöandi bókarinnarer Vilbergur Júlíusson skólastsjóri. Palli var einn í heiminum kom fyrst út hjá Gyldendal í Kaupmannahöfn 1942, en hefur síðan verið gefin út á 37 tungumálum í milljónum eintaka. Palli var einn í heiminum kom fyrst út á íslensku 1948 og síðan er ekkert lát á vinsældum bókarinnar. Þetta verður jólabók barnanna í ár. Bókaútgáfan Björk. KENWOOD Hakkavél Hakkar kjöt og fisk jafn- óöum og sett er I hana. Einnig fljótvirk við gerð ávaxtamauks. Grænmetiskvörn Blandar súpur, ávexti, kjötdeig og barnamat. Saxar hnetur, o.fl., malar rasp úr brauöi. Sitronupressa Býr til Ijúffengan fersk- an sltrussafa á litlu lengri tlma en teku.r aö skera sundur appelslnu. Grænmetisrifjárn Sker niöur rauörófur, agúrkur, epli, kartöflur. Raspar gulrætur, ost, hnetur oq súkkulaöi. m,. Stálskál Endingargóö og varan- leg skál, tilvalin I alla köku- og brauógerö. Avaxtapressa Skilar ávaxta- og græn- metissafa meö öllum vltamlnum. Dósahnifur Opnar allar tegundir dósa án þess aö skilja eftir sköröóttar brúnir. Grænmetisrifjárn Sker og raspar niöur I salat. — Búiö til yóar eigin frönsku kartöflur meó til þess gerðu járni. AUKNin KENWOODC er engin venjule hrærivél. Innifalið I verði. Skál, þeytari, hnoðari og hrærari. ^ . w . . KENWOODchef ggyjyj ELDHÚSHJÁLPIN Kaffikvörn Malar kaffiö eins gróft eóa flnt og óskaö er og ótrúlega fljótt. Hraógengt rifjárn Sker niöur og afhýöir grænmeti á miklum hraöa og er meö fjórum mismunandi járnum. Þrýstisigti Aöskilur steina og annan úrgang frá ávöxt- um. Auöveldar gerö sultu og ávaxtahlaups. Rjómavél Býr til Ijúffengan, fersk- an rjóma á nokkrum sekúndum, aóeins úr miólk og smjöri. Kartöfluhýðari Hetta Eyóiö ekki mörgum Yfirbreiósla yfir Ken- stundum I aö afhýöa wood Chef vélina. kartöflur sem Kenwood afkastar á svipstundu. HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD HF LAUGAVEGI 170 172 SIMAR 11687 21240

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.