Vikan - 22.05.1952, Síða 1
Bridgemeistarar Reykjavíkur í sveitarkeppni og tvímenning
Bridgefélag Reykjavíkur hefur nú
■starfað í 10 ár. Það hefur alla tíð haldið
uppi víðtækri starfsemi, gengizt fyrir
:spilakvöldum til æfinga (nú í vetur tvisvar
í viku) og síðan keppnum. Félagsmenn
eru eitthvað um 200, en formaður er Her-
mann Jónsson. Keppnir þeirra eru mjög
vinsælar og fer þeim óðum f jölgandi, en sú
þýðingarmesta af þeim öllum er keppnin
um meistaratitil Reykjavíkur. 1 fyrra vann
;sveit Harðar Þórðarsonar þann titil, en í
vetur sveit Benedikts Jóhannessonar, (sjá
myndir). Tvímenningskeppni fer fram í
mörgum flokkum, og í ár urðu bridge-
meistarar Reykjavíkur í tvímenning þeir
Guðmundur Ó. Guðmundsson og Jóhann
Jóhannsson.
Eins og kunnugt er hafa íslenzkir
'bridgespilarar tekið þátt í keppnum er-
lendis og staðið sig þar mjög með ágæt-
~um. T. d. kepptu tveir Islendingar þeir
Einar Þorfinnsson og Gunnar Guðnason,
ásamt tveim Svíum í Bermúda árið 1950
•og urðu aðrir. Sveit Bandaríkjamanna
vann. 1 september í haust verður Evrópu-
meistaramót í Dyflinni í Irlandi og fyrir
nokkru hófst keppni, þar sem veljast skal
.sveit til að fara þangað. Bridgesamband
Islands sér um undirbúning allra utan-
ferða.
Efri myndin; Bridgemeistarar Reykjavikur
1952, í sveitarkeppni: Fremri röð: Guðlaugur
•Guðmundsson, Benedikt Jóhannsson, sveitar-
•stjóri, Ingólfur Iseban. — Aftari röð: Árni M.
Jónsson, Lárus Karlsson. —ÍSTeðri mynd: Bridge-
aneistarar Reykjavíkur 1952, i tvímenning: Guð-
anundur Ó. Guðmundsson og Jóhann Jóhannsson.