Vikan - 05.06.1952, Síða 2
2
VIKAN, nr. 22, 1952
PÓSTURINN •
Undir forsíðumynd á tbl. 19, þar
scm birtust myndir úr Islandsklukk-
unni, stóð, að Vignir og Pétur Thom-
sen hefðu tekið myndirnar. En það
var ekki rétt. Allar myndirnar, bœði
á forsíðu sem og á þriðju síðu, eru
gerðar af VIGNI. Eru báðir aðilar
beðnir velvirðingar á þessu.
Svar til Gunnu:
John Garfield dó af hjartaslagi í
New York fyrir nokkrum dögum.
Hann er fæddur í New York 4.
marz 191.3 og
stundaði nám við
beztu leikskóla
þar í borg. Hann
lék í níu ár í leik-
húsunum á Broad-
way og 1938 sneri
hann sér að kvik-
myndunum. 1
kvikmyndum leik-
ur hann oftast
ungan mann, sem
glímir við mikla
erfiðieika og hefir
lent á villigötum.
Nokkrar af sið-
ustu myndum hans eru: Pósturinn
hringir alltaf tvisvar, Humoresque,
Gentlemans Agreement og Body and
Soul.
John Garfield var 5 fet og 9 þuml-
ungar að stærð, hafði dökkbrúnt hár
og dökk augu.
Halló Vika!
Þetta er í fyrsta skipti sem ég
skrifa þér og ég vona að þú leysir
úr þessum spurningum fyrir mig.
1. Hverri er Albert Guðmundsson
giftur, hvað er hann gamall og hvar
á hann heima?
2. Ég er dökkhærð með brún augu
og dökk í andliti, hvaða litir fara
mér bezt?
3. Ég er 15 ára og 160 cm á lengd.
Hvað á ég að vera þung?
4. Hvemig er skriftin og réttrit-
unin?
P.S. Vohast eftir svari sem fyrst.
Þín Sigga-Vigga
Svar til Siggu-Viggu:
1. Albert Guðmundsson, knatt-
spyrnumaður er giftur Brynhildi Jó-
hannsdóttur. Hann keppir fyrir
fi-anska knattspyrnufélagið Racing
og býr í Chaville, litlu þorpi rétt
utan við París. Hann mun vera um
27 ára gamall.
2. Skærir litir og hlýir fara þér
vel. T. d. rauðir og gulir litir. Þú
skalt forðast blátt.
3. Þú átt að vega 57.60 kg.
Tímaritið SAMTÍÐIN j
Flytur snjallar sögur, fróðlegar !
greinar, bráðsmellnar skopsögur, :
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl. :
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr. :
Ritstjóri: S'ig. Skúlason magister. ■
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75. ■
■
4. Skriftin er ágæt en skipti er
skrifað með p-i.
P.S. Auður biður um heimilisfang
Alberts Guðmundssonar. Við vitum
ekki húsnúmerið, en hann er frægur
maður í þorpinu, svo það mun nægja
að skrifa:
Albert Guðmundsson,
Avenue Docteur Darin,
Chaville
PARIS
FRANCE
Gunna segir frá ..
. . . Ég er ekki beint myrkfælin,
en ég hefi aldrei verið hrifin af því,
þegar karlmaður fær allt í einu þá
flugu í höfuðið, að slökkva loftljósið
og ég veit vel, að það er ekki ein-
göngu gert með tilliti til rafmagns-
reikningsins. En það er dálitið öðru
máli að gegna með Pétur, því að hann
er svo elskulegur piltur og auk þess
vissi ég, að pabbi og mamma sátu
í næstu stofu, svo ég gat ógnað með
því að kalla á þau, ef i nauðirnar
ræki. Þessvegna leyfði ég honum að
slökkva ljósið og þegar hann spurði
hvort hann mætti líka slökkva á
lampanum, kinkaði ég kolli. En þeg-
ar hann gekk yfir að glugganum og
dró rúllugardínuna niður, varð ég dá-
lítið hrædd. Það var koldimmt í her-
berginu og ég varð taugaóstyrk. Pét-
ur settist hjá mér á legubekkinn. Ég
ákvað að kalla bæði á pabba, mömmu
og brunaliðið, ef hann kyssti mig of
ákaft. En hann kyssti mig alls ekki,
þessi bjáni. Hann rétti bara fram
höndina og spurði ákafur „Hvernig
finnst þér nýja, sjálflýsandi úrið
mitt ?“
FRÍMERKI
OG
FRÍMERKJASðFNUN
„Motiv“-safnarar.
1 síðustu grein minni i Vikunni
nr. 19, minntist ég á þessa safnara,
þ. e. a. s. þá sem safna frímerkjum
með einhverjum sérstökum myndum,
cn byggja ekki söfn sín upp eftir
iöndum. Þá gat ég sérstaklega um
þá sem safna frímerkjum með mynd-
um af iþróttum og íþróttamönnum.
Þessi ,,motiv“-söfnun fer stöðugt i
vöxt, það er orðið erfitt að eignast
heil söfn frá nokkru landi og þá
íara menn að sníða sér þrengri stakk
í þessum efnum. Ég þekki talsvert
marga íslenzka ménn sem safna fri-
merkjum með myndum af einhverju
sérstöku eða sérstökum mönnum og
hirða ekki um að safna öðrum frí-
merkjum, t. d. safna sumir merkj-
um með myndum af stjórnmálamönn-
um og einkum virðist mér þeir hafa
haft áhuga fyrir Roosevelt, Stalin
og Hitler. Einnig veit ég um einn
söngmann sem safnar frímerkjum
með myndum af tónskáldum eða til
minningar um tónskáld, en engum
öðrum.
Þá eru margir sem safna þeim frí-
merkjum sem gefin voru út á 75
ára afmæli alþjóðapóstsambandsins
árið 1949, en nú er orðið nokkuð dýrt
að eignast þau „komplett" einkum
vegna þess að nokkuð kvað að brask-
útgáfu í sambandi við þennan at-
burð. Nokkur ríki sáu sér leik á borði
að seilast niður i vasa frímerkja-
safnaranna, og gáfu út hágild og dýr
merki i litlum upplögum. Hér á eftir
ætla ég að gefa söfnurum sem kynnu
að vilja byrja að safna einhverjum
sérstökum fyrirmyndum nokkurt yf-
irlit yfir það sem ,,motiv“-safnarar
sækjast eftir og er það þó engan
veginn tæmandi. Átt er við myndirn-
ar á frímerkjunum i upptalningunni:
AtvinnUvegir, Börn, Bilar, Brýr,
Bækur, Dýr, Flugvélar, Guðir og
goð, Hernaður, Kirkjur, Landabréf,
Landslag, Listaverk, Loftför, Lækn-
ar, Listamenn, Rithöfundar, Rauða-
krossfrímerki, Skátar, Tónskáld, o. s.
frv.
Eins og tekið var fram er þetta
engan veginn tæmandi upptalning,
en getur gefið ykkur nokkra hliðsjón
af því hve fjölbreytt ,,motiv“-söfn-
unin getur verið.
Jón Agnars.
Frímerkjapakkar:
100 teff. Franskar nýlcndur .. kr. 14.00
300 — Austurríki ......... — 24.00
300 — Austurríki ......... — 21.00
200 — Bandaríkin ......... — 41.00
Jón Agnars, Frímcrkjaverzlun,
P. O. Box 356, Reykjavík.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldn og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Odd Grönbeck og
Þórarinn Guðlaugsson, d/s Kong
Tryggve D.S.N.D., Prinsengt. 1,
Oslo.
Guðrún Bergsdóttir og
Jórunn Þorgerður Bergsdóttir (við
pilta 18—22 ára, mynd fylgi), báð-
ar að Hofi, öræfum, A-Skaftafells-
sýslu.
Dóra S. Tryggvadóttir (við fólk 16
ára og eldra, mynd fylgi), Ytra-
Hóli, Kaupangssveit, Eyjafirði.
Elísabet Guðjónsdóttir (við ungt
fólk 14—16 ára, mynd fylgi),
Kjörvogi, Strandasýslu.
Vilborg Jóhannsdóttir (14—16 ára,
mynd fylgi), Gíslabala, Stranda-
sýslu.
Guðný Egilsdóttir (við ungt fólk 15
—20 ára), Þórisdal, Lóni, Horna-
firði.
LJÓSAKRÓNUR
VEGGLAMPAR
BORÐLAMPAR
STRAUJÁRN með hitastilli, 2 gerðir
BRAUÐRISTAR
HRAÐSUÐUKATLAR
VOLTMÆLAR, 220 volt, f. riðstr. og rakstr.
AMPEREMÆLAR, 10 — 15 — 25 — 40 — 60
100 Ampere
FLUORESCENTLAMPAR
FLUORESCENTPERUR.
Fyrir bíla:
STRAUMLOKUR (Cutouts)
HASPENNUKEFU fyrir ýmsar teg. bíla
LJÓSASKIPTARAR (fótskiptar)
STARTHNAPPAR
LYKILSVISSAR
ROFAR f. inniljós
AMPEREMÆLAR, 2 gerðir
VIFTUREEVIAR fyrir ýmsa bíla.
Ennfremur startarar og dynamóar í ýmsar tegundir
bíla.
Raftækjaverzlun Halldórs Ólafssonar
Rauðarárstíg 20 Sími lfH5
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.