Vikan - 03.07.1952, Blaðsíða 2
2
VTKAN, nr. 26, 1952
Pósturinn
Loretta Young kom fyrst fram í
kvikmynd þegar
hún var 5 ára
gömul. Hún er
fædd í Utah 6. 1.
1913. Tvær systur
hennar voru leik-
konur og hún
byrjaði fyrir al-
vöru að leika sjálf
þegar hún var 14
ára gömul. Síðan
hefur hún haft
mörg hlutverk á
hendi.
Loretta Young
er 160 sm. á hæð,
hefur ljósbrúnt hár og augu.
Nokkrar af síðustu myndum henn-
ar: The Accused, Mother is a fresh-
man, Come to the Stable og Key to
the City.
loreffa Young
Kæra Vika!
Getur þú gefið mér nokkurt ráð
við eftirfarandi:
Húðin á mér er svo hörð og mislit,
að ég er í stökustu vandræðum.
Stundum verður hún líka rauðfjólu-
blá. Hvað get ég gert við þessum
ósköpum. Vona ég að þú svarir þessu
í næsta blaði, því ég er á förum af
landi burt.
Þakka þér svo fyrir,
P. S.
Svar: Ef húðin er hörð skaltu
nudda hana vel með grófu handklæði
þegar þú hefur þvegið þér og bera
mjúkt krem á hana á eftir.
Hvað roðanum viðvíkur skaltu þvo
kinnarnar úr kamfóruvatni tvisvar í
viku. Að því loknu skaltu nugga þær
með ögn af hráum agúrkusafa blönd-
uðum glyseríni.
Kæra Vika!
Á þessu augnabliki er skipið hans
að leggja úr höfn. Hann er að fara
til útlanda. Því miður fyrir mig er
hann aðeins 20 ára gamall, en ég er
25 ára. Hvað á ég að gera? Hefur
fyrsta ást hans haft nægilega mikil
áhrif á hann ? Verð ég orðin of göm-
ul eftir fjögur eða fimm ár, þegar
hann kemur aftur ? Góða Vika, gefðu
mér nú góð ráð. Hvernig á ég að
hegða mér meðan hann er í burtu?
Nanna.
Svar: Skemmtu þér vel. Hegðaðu
þér eins og hann gleymi þér á morg-
un, en skrifaðu honum eins og þið
ætlið að eyða æfinni saman. Tvö-
felldni? Nei, en þú þolir betur áfall-
ið, ef hann gleymir þér, og þú hefur
ekki fórnað lífsgleði þinni og lokað
þig inni. Ef þið aftur á móti verðið
bæði trú og trygg, allt í lagi, þá
giftið þið ykkur. Ef hvorugt ykkar
ber sömu tilfinningar í brjósti eftir
fimm ár, þá giftið þið ykkur líka,
• en einhverjum öðrum.
Svar til ferðamanns á Isafirði.
Til að komast til Bandaríkjanna
þarf fyrst og fremst vísa. Það fæst
hjá sendiráði Bandaríkjanna við
Laufásveg. Ef þú ætlar að fá vinnu
þarftu líklega að biðja u!m innflytj-
endaleyfi, en allar þessar upplýsing-
ar getur sendiráðið gefið þér.
Fargjaldið til Bandaríkjanna kost-
ar 2575 kr. með skipum Eimskipa-
félags Islands og það geturðu borgað
í islenzkum krónum.
BRÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Borizt hefur bréf frá Hollendingi,
sem langar mikið til bréfaskipta við
Islending, segist hafa einlægan áhuga
á að kynnast landi og þjóð. Hann
skrifar ensku, sömuleiðis skilur hann
norsku, dönsku og sænsku. Nafn
hans og áskrift: M. G. E. vari Noort,
Linnaeuslaan 91, Utrecht, Ituindorp,
Nederland.
Júdy Jörgensdóttir (við pilta 17—20
ára),
Anna Sjgga Jörgensdóttir (við pilta
16—20 ára), báðar á Víðivöllum,
Fljótsdal, N.-Múlasýslu, um Vai-
þjófsstað.
Þórunn Fjóla Ingibergsdóttir (við
pilta 15—18 ára), Merki, Reyðar-
firði.
Loftur Þórarinsson (við stúlkur 17
—25 ára), Víðivöllum, Fljótsdal,
N.-Múlasýslu.
Sigrún Sigurgeirsdóttir (17—20
ára), Vallarborg, Isafirði.
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir (20—23
ára), Vallarborg, Isafirði.
Björgvin Þórarinsson (við stúlkur 13
—15 ára, mynd fyigi), Aðalstræti
61, Patreksfirði.
Magnús Jónsson (við pilta eða stúlk-
ur 14—15 ára, mynd fylgi): Beina-
keldu, um Stóru-Giljá, A.-Hún.
Haraldur Árnason (við ungt fólk 18
—22 ára), Selvogsgötu 19, Hafnar-
firði. ■
Tímaritið SAMTÍÐIN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
greinar, bráðsmellnar skopsögur,
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl.
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúiason magister.
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75.
Leöurblakan í Þjóðleikhúsinu
Leikstjóri: SlMON EDWARDSEN.
Þann 17. júní var höfð frumsýning
á fyrstu íslenzku óperettunni í Þjóð-
leikhúsinu. Ef til vill er tekið of
djúpt í árinni; að kalla hana islenzka,
þó að allir venzlamenn hennar væru
það, nema höfundur, stjórnendur og
dansarar. En söngfólkið var íslenzkt,
og í þeim skilningi er óperettan
kennanleg við Island, án þess það
skipti nokkru máli í sjálfu sér, og
þó . . . Enn eru sjáifstæðisdraumar
okkar að rætast í vísindum og list-
um, þó að fölvi hafi varpast á þá í
virkileikanum. Við eignumst þjóð-
leikhús og sinfóníuhljómsveit, jarð-
vegsfræðinga og aðra vísindamenn,
allt eru þetta vörður á leiðinni til
heimsmenningarinnar. Óperettusýn-
ingin á þjóðhátiðardaginn var ein
varðan á þeirri leið.
Margir héldu eflaust hún yrði
þunglamaleg, bæri mark taumlauss
vilja en lítilsmegandi getu. Og ekk-
ert er eins vorkunnsamlegt og lista-
fólk sem lætur móðan mása, sýnir
það á í fórum sínum neista, sem get-
■)
ur blossað, en skortir aga til að
beina loganum, takmarka hann og
temja: það er eins og víxlaður vekr-
ingur. Við skulum ekki hræsna, á-
reynsluhrukkur sáust í enni fjör-
kálfsins, en engu að síður var mjög
gaman að hiusta á og horfa.
Meðal söngvaranna ber fyrst að
nefna gestina: Einar Kristjánsson og
Elsu Sigfúss. Einar lék og söng af
mikilli leikni, en söng þó betur en
hvað hann lék. Á hinn bóginn lék
Elsa betur en hvað hún söng: hún
hefur svo lága rödd, að hún heyrist
varla út í miðjan sai, en skýrmælt
er hún og prinsinn hennar ágætui'.
Svo kemur Guðmundur Jónsson, Guð-
rún Á. Símonar og Ketill Jensson,
allt auðheyrilega mikið hæfileika-
fólk, fullt af krafti og gáska. Mikið
má vera ef stórir atburðir eiga ekki
eftir að ske í námunda þeirra. Sig-
rún Magnúsdóttir og Sigurður Ólafs-
son höfðu þarna allstór hlutverk.
Svo voru í hópnum gamalkunnir
leikarar: Lárus Ingólfsson, Róbert.
Arnfinnsson og Klemens Jónsson.
Aulc ýmissa óvirkra.
1 öðrum þætti dansaði sænskt
danspar, Marianne Fröjidh og Holger
Reenberg og dönsuðu Keisaravals-
inn og Flóttadans fanganna. Það
var leitt við skyldum ekki hafa dans-
ara til að skipa þetta rúm. Þó er
heimsókn Svíanna kærkomin. Félag-
ar úr Sinfóníuhljómsveitinni léku,
undir stjórn Urbancic og félagar úr
Karlakórnum Fóstbræður sungu.
Texti var þýddur á íslenzku af Jakobi
Smára, og hefur það verið erfitt
verk, því að íslenzkt mál er lítt tam-
ið í söng.
Upp frá þessu ætti að vera hægt
að efna til íslenzkrar óperettusýning-
ar á hverju vori.
Leðurblakan er eftir austuríska
valsakónginn Jóhann Strauss (f.
1825). Hann er fyrir löngu ástsæll
orðinn hér á landi fyrir hina svif-
léttu valsa sína. 1 óperettunni er mik-
ið um þesskonar valsa, hún er eitt
fiðrildaflug frá byrjun til enda, full
með sætum ilmi og rósum og smit-
andi gáska. Jóhann samdi eitthvað
sextán óperur alls og er Leðurblakan
með vinsælustu. Hann andaðist 1899.
Lokasýning: I fremstu röð má sjá Guðmund Jónsson, Sigrúnu Magnúsdóttur, Elsu Sigfúss, Guðrúnu Á. Símonar,
Einar Kristjánsson (þau standa fyrir miðju), Sigurð Ólafsson og Ketill Jensson.
títgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Erlingur Halldórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.