Vikan - 03.07.1952, Page 10
30
VIKAN, nr. 26, 1952
Prentaður hefur verið sér-
stakur bæklingnr með 25
uppskriftum aí ROYAL
mótkökum, tertum, smá-
kökum o. fl. — Verður
hann afhentur ókeypis kaup-
endum af ROYAL lyftidufti.
I>eir sem óska að fá bækl-
inginn eru vinsamlegast
beðnir að láta okkur vita.
AGNAR LUDVIGSSON, heildverzlun
HAFNABSTRÆTI 8 — SÍMI 2134
Kökuuppskriftir
Kaupf élagskaka:
Uppskrift þessi er stór, svo það
er mjög hentugt að baka hana í fé-
lagi, þannig að þér bakið eina vik-
una og nágrannakona yðar næstu
viku. Þannig sparið þér hita. Hvor
um sig fær þá eina hringmyndaða
köku og hálfa ferkantaða á viku. Þér
getið skreytt þær eftir vild, með
rjóma eða hvaða kremi sem er.
4 y2 bolli hveiti, % tsk. salt, 4%
tsk. lyftiduft, 1 bolli steikarfeiti,
2 bollar sykur, 3 egg, 1% boll-
ar mjólk, 1 tsk. vanilla.
Blandið hveitinu, lyftiduftinu og
saltinu saman. Bætið sykrinum smátt
og smátt út í vel hrærða steikar-
feitina og haldið áfram að hræra
þar til deigið er hvítt og létt. Bætið
eggjunum í, einu í einu. Blandið
hveitinu og dálitlu af mjólk í, litlu
I hvert skipti. Hrærið vel í á milli
og hellið í vanillunni. Bakið helm-
inginn á ferkantaðri plötu og hinn
helminginn á tveim hringmynduðum.
Kaka
með appelsínumarmelaði:
125 gr. maizenamjöl, % liter
mjólk, 1 dl. vatn, 4 egg, sykur,
salt.
Mjölið hrærist út í vatninu og
mjólkinni hellt út í. Eggin eru þeytt
og hrærð saman við deigið. Það er
betra að hafa vatnið volgt. Deiginu
er hellt í vel smurt form og bakað
í % klukkustund. Þegar kakan er
bökuð er henni snúið við. Kakan er
skorin í sundur og appelsínumarmel-
aði smurt á milli. Marmelaðið má
ekki vera þykkt.
Yfir kökuna er svo hellt appelsínu-
hlaupi, sem búið er til á þann hátt,
að vatni og sykri er blandað saman
við síaðan appelsínusafa. Móti hverj-
um dl. af safanum þarf 5—6 blöð af
matarlími. Hlaupið má lita rautt og
það fer mjög vel að skreyta kökuna
með appelsínulaufum. Ef mikið er
haft við má líka sprauta þeyttum
rjóma á brúnina.
ðryggi ungra barna.
eftir Garry Cleveland Myers, Ph. D.
Ég hefi áður tekið það fram, að
þýðingarmesti þátturinn í fjölskyldu-
lifinu, jafnvel með tilliti til uppeldis
barnsins, er samband föður og móð-
ur. Hér eru nokkrar línur úr bók-
inni „Heimilið skapar manninn", sem
ég og konan mín höfum gefið út:
„Yfirbragð fjölskyldunnar skapast af
sambandinu milli eiginmannsins og
eiginkonunnar, föðursins og móður-
innar. Ef þau tvö eru félagslega
samstæð, njóta allir aðrir meðlimir
fjölskyldunnar góðs af. Ef foreldr-
arnir eru aftur á móti spennt og
verða fljótt æst, býður fjölskyldan
tjón.“ Við álítum að uppeldisaðferð-
ir heimilisins og skólans nái því að-
eins árangri að þeim sé beitt i and-
rúmslofti skilnings og ástar: og að
föður og móðurástin sé byggð á
þessu.
Þörf fyrir ástúð.
Þið hafið oft heyrt og lesið um
þörf barnsins fyrir mikla ástúð for-
eldranna. Sálfræðingar og sálsýkis-
fræðingar leggja stöðugt meiri
áherzlu á hve slæm áhrif það geti
haft, ef börn eru svift þessari ástúð.
En eins og Dr. Link segir í ný-
útgefinni bók „Leiðir til öryggis":
Mikilvægi ástar milli foreldranna er
ekki eins viðurkennd staðreynd. For-
eldrar geta elskað börn sín þó þau
séu skilin, en þessi ást veitir barn-
inu ekki öryggi. 1 raun og veru get-
ur ekkert gert barnið óöruggara en
ósamlyndi milli foreldra og þá fyrst
og fremst foreldra, sem eru skilin.
Dr. Link heldur fram því sama
og ég hefi haldið fram í þessum
greinum, að ást án aga sé staðfestu-
leysi. „Við erum farin að gera okkur
grein fyrir því,“ segir hann, „þó það
fari hægt, að ást án aga verður að
staðfestuleysi. Börn eru fljót að gera
greinarmun á ást, sem hefur að
geyma staðfestu og ást, sem er ein-
göngu sjálfsánægja." Hann bætir því
við að réttlát flenging geti fullviss-
að barnið betur um ást foreldranna
en sífelldir kossar og faðmlög. Hann
á hér líklega við mjög ung börn.
Óskir ekki teknar til greina.
Hvernig er hægt að veita barni,
sem tekur ekkert tillit til óska eða
skipana foreldranna, þá ást, sem það
á skilið? Barnið og foreldrarnir fara
í taugarnar hvert á öðru og eru svo
oft reið eða móðguð, að lítill tími
gefst til gagnkvæmrar ástar.
3 eða 4 ára gamalt barn, sem ekki
Ef maðuri á lítið af fötum er mjög
hentugt að eiga blússur. Þær má
nota við öll tækifæri og þegar búið
er að þvo þær og strjúka, líta þær
alltaf vel út. Á morgnana fer bezt
á að vera í einföldum blússum og
pilsum. Á kvöldin og á dansléikjum
má breyta svip blússunnar með
skartgripum eða blómum og þá
koma plíseruðu nælonpilsin í góðar
þarfir. Breitt belti heldur blússunni
niðri í pilsinu og gerir mittið mjórra.
Á fyrstu myndinni hér að ofan er
blússa úr þunnu efni, þéttrykkt í
bakið. Bakhlutinn og ermarnar eru
sniðnar úr einum dúk. Kraginn, sem
breikkar í horn á miðju baki, breikk-
ar aftur í tvö horn að framan. Blúss-
an sem er opin að framan er ekki
mikið rykkt. Plíserað nælonpils set-
ur glæsilegan svip á hana.
Á annarri myndinni er þunn blússa
með svörtum deplum og útsaumuð
með svörtu. Blóm, sem fest er á
borða um hálsinn, gerir hana hátíð-
legri.
3. myndin: Þunn blússa, þétt en
ekki mjög smátt felld. Hún er
skreytt með litlum, einföldum kraga
og perluhnöppum. Þessa blússu er
mjög auðvelt að sauma sjálf.
Skyrtublússurnar hafa notið mik-
illa vinsælda í mörg ár og virðist
ekkert draga úr þeim vinsældum.
Þær eru hnepptar að framan, með
löngum ermum og litlum kraga.
Þessar blússur eru notaðar til vinnu
með einföldum pilsum, með síðbux-
um í ferðalögum, reiðbuxum og yfir-
leitt öllum sportklæðnaði. Þær eru
venjulega úr þykkum efnum eða
jafnvel úr lérefti.
Innan undir drögtum þurfa blúss-
urnar helzt að vera heilar að fram-
an og ná upp að hálsinum. Annað
snið þeirra skiptir ekki mjög miklu
máli, en auðveldast er að strjúka
ermalausar blússur. 1 Frakklandi eru
konur oft blússulausar undir drögt-
unum og hafa þá festi um hálsinn
eða lítinn klút. Með þessu móti mæð-
ir þó meira á jökkunum og er ekki
eins auðvelt að hreinsa þá ef mað-
ur svitnar.
Dýragarðurinn
Sá sem hefur
þennan svip er
sauðþrár, einkum
þegar hann hefur
rangt fyrir sér.
Ertu þolinmóð ?
Ef svo er ekki er
þér betra að gæta
þin fyrir svona
mönnum.
t ' —..-—■■■■.—.... •»
• HEIIUILIÐ •
hefur lært að virða eins-atkvæðis- ekki aðeins illa hæft til sambúðar
orðið NEI (sem það ekki heyrir of við fjölskylduna, heldur mun það
oft) eða 6 ára barn, .sem hefur ekki hungra meira og meira eftir ást for-
lært að gera ýmislegt ógeðfellt, er eldranna.