Vikan - 07.08.1952, Side 2
2
VIKAN, nr. 30, 1952
POSTURINN •
Ingrid Bergman.
Um daginn las ég í blöðunum að
Pia, dóttir Ingriðar Bergman, hefði
lýst því yfir i rétti
að sig langaði ekk-
ert til að sjá móð-
ur sína. Það hefur
margt verið skrif-
að um þessa frægu
leikkonu siðan hún
skildi við mann
sinn og giftist ít-
alska kvikmynda-
stjóranum Rossell-
ini og það ekki allt
mjög vingjarnlega.
Ingrid Bergman
er sænsk, fædd
1915. Hún lék fyrst
á leiksviði í Svíþjóð og kom fram
í kvikmynd 1934. 1938 fór hún frá
Svíþjóð og lék þá fyrst i þýzkri mynd,
en síðan fluttist hún til Ameríku,
þar sem hún varð brátt ein af vin-
sælustu kvikmyndaleikkonunum. I
Hollywood lék hún mörg glæsileg
hlutverk, og m. a. í myndunum: Kasa-
blanka, Hverjum klukkan glymur,
Gasljós og Jeanne d’Arc. Þessar
myndir eru kvikmyndagestum kunn-
ar, því þær hafa allar verið sýndar
hér.
Ingrid Bergman hefur fremur hiot-
ið frægð fyrir eðlilegt og frítt andlit
og góða meðferð á hlutverkum sin-
um en fyrir stórbrotinn leik.
1948 yfirgaf hún svo Hollywood,
fór fyrst til Englands og síðan (1949)
til Italíu. Þar varð hún ástfangin af
kvikmyndastjóranum Rossellini og
hann af henni. Rossellini réð hana
til að leika í nýrri kvikmynd „Strom-
boli“, sem gerist á einni af hinum
eldbrunnu eyjum Miðjarðarhafsins.
Kvikmyndaleikkonan Anna Magnani,
sem lengi hafði búið með Rossellini,
gerði þá í reiði sinni aðra mynd „Vul-
cano“, um svipað efni, kom henni
fyrr á markaðinn og hlaut fyrir hana
betri dóma. Og ekki var ein báran
stök. Ingrid Bergman átti von á barni
og skilnaðurinn gekk seint í Ame-
ríku, þar sem fyrri aðdáendur henn-
ra lögðu mikla vinnu í að eyðileggja
mannorð hennar og hamingju. Nú er
hún gift Rossellini og átti nýlega
með honum tvíbura (þau áttu' áður
einn son). Hún hefir staðið í sífelld-
um málaferlum út af dóttur sinni
Píu, sem nú er 12 ára gömul.
Næst mun Ingrid Bergman leika
í ítalskri mynd á móti Marlon Brando,
undir stjórn Rossellini. Úr því þau
þrjú leggja saman, hlýtur það að
verða stórkostleg mynd.
Kæra Vika!
Ég hef mjög mikinn áhuga á söng
og vona þessvegna að þú, sem ert
svo fróð, viljir segja mér:
1. Hvaða kennarar eru beztir hér
í bæ ?
2. Hvað er þessi kennsla heimtu-
frek á peninga ?
3. Er of seint að byrja söngnám
21 árs ?
4. Finnst þér skriftin mjög leiðin-
leg? — Fyrirfram þökk.
„Gvendólína".
P.S. Bið að heilsa Adam!!!
Svar til Gvendólínu: 1. Pétur Jöns-
son, Sigurður Birkis og Guðmundur
Jónsson kenna söng, og hafa flestir
yngri söngmenn okkar stundað nám
hjá þeim. 2. Ekki veit ég nákvæm-
lega hvað þeir taka fyrir kennsluna,
en það mun vera nálægt 20 kr. fyrir
þrjá stundarfjórðunga. 3. Það er
alls ekki of seint að hefja söngnám
21 árs. 4. Skriftin er mjög læsileg,
en ekki vel þjálfuð. — Því miður
umgengst ég Adam ekki daglega, en
næst þegar ég hitti hann, skal ég
skila kveðjunni.
Kæra Vika.
Hjálpaðu mér nú i vandræðum
mínum. Ég er mjög stór og þess-
vegna sagði ég núverandi kærastan-
um minum að ég væri 18 ára í stað
15 og y2. Nú á að fara að bjóða
honum heim til mín. Hvað á ég að
gera? Það er orðið of seint að leið-
rétta þessa smálýgi. Ég get ekki
lengi komið í veg fyrir það að hann
komi heim til mín.
Örvæntingarfull.
Svar: Játaðu hlægjandi fyrir hon-
um afbrot þitt, sem er ekki alvar-
legt. Konur segja oft ósatt um ald-
ur sinn — og eru taldar hafa nokk-
urskonar hefðbundin réttindi í því
efni! Þegar þú eldist jafnast þetta,
þvi þá dregurðu jafnmikið af árun-
um og þú nú bætir við þau. Margar
ágætar skritlur hafa verið sagðar i
þessu sambandi. Hér er ein: „Hvað
er hún gömul?“ spyr frú X. „Hún
játar að hún sé þrítug," svarar frú
Y. „Jæja, það er betra seint en aldr-
ei“.
Svar til áhugamanns.
1) Klarinett fást núna í Hljóðfæra-
húsi Reykjavíkur, Bankastræti 7, og
kosta um 1800 krónur. Saxofónar
fást ekki í augnablikinu.
2) Þú getur fengið hljóðfærið sent
í póstkröfu, ef þú skrifar verzlun-
inni.
3) Á sama stað fæst Klarinett-
skóli og einhverjar aðrar nótnabæk-
ur, en ekki er mikið úrval af þeim.
Svar til Stellu.
Leikarinn heitir Gene Kelly. Hann
er frá Pittsburg í Bandaríkjunum
og var múrari, sementsblandari,
barmaður og danskennari áður en
hann gerðist dansandi gamanleikari.
Hann hefur mikla danshæfileika
bæði í gamanhlutverkum og þeim
sem alvarlegri eru og er talinn arf-
taki Fred Astaires á því sviði. Bezta
hlutverk hans hingað til er d’Arta-
gnan í kvikmyndinni „Fóstbræður”.
Hingað hafa komið fjölmargar létt-
ar dans og söngvamyndir með hon-
um í aðalhlutverkinu.
Tímaritið SAMTÍÐIN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
greinar, bráðsmellnar skopsögur,
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl.
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75.
BRÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Borist hefur bréf frá íslenzkum
sjómanni, sem siglir á norsku olíu-
skipi. Norskan skipsfélaga hans lang-
ar til bréfaskipta við íslenzkar stúlk-
ur, yngri en 26 ára. Hann talar
norsku, dönsku og ensku. Nafn hans
er: Odd Rom, M.T. Vikland, J.
Rasmussen og Co„ Sandefjord, Norge.
Lous F. de Jonz, Laan Van Melden-
burg 54, Voorburg, Holland (32
ára) langar til bréfaskipta við
frímerkjasafnara.
Jóhannes Gíslason (við 30—55 ára
Islending á Keflavíkurflugvelli)
Geirseyri, Patreksfirði.
Friðbjörg Ingibergsdóttir (við pilta
18—85 ára),
Guðmunda Halldórsdóttir (við pilta
18—85 ára),
Jóhanna S. Thorarensen (við pilta
18—85 ára), allar á Djúpavík,
Strandasýslu.
Anna Billa Gunnarsdóttir (19—20
ára),
Björgvin H. Gunnarsson (20—22
ára), bæði að Hofi, Þingeyrar-
hreppi, Dýrafirði.
Jóhanna Jónsdóttir (18—20 ára),
Múla, Þingeyrarhreppi, Dýrafirði.
Gunnar Tómasson (11—13 ára Þor-
gautsstöðum, Hvítársíðu, Mýra-
sýslu.
Þóra Aldís Hjelm (13—15 ára),
Eyjum, Breiðdal, S-Múlasýslu.
Erla Magnúsdóttir (við pilta 18—22
ára),
Sóley Guðsteinsdóttir (við pilta 18
—22 ára), báðar á Hlíðardalsskóla,
Ölfusi, Árnessýslu.
Jens I. Olsen, (við stúlkur 17—22
ára),
Jóhann Gestsson (við stúlkur 17—22
ára),
Olgeir Jóhannsson (við stúlkur 17—
22 ára),
Haukur Vilhjálmsson (við stúlkur 17
—22 ára),
Geir Helgason (Við stúlkur 17—22
ára),
Egill Guðlaugsson (við stúlkur 17—
22 ára), allir á Snæfugl SU 20, pr.
Raufarhöín.
Simpansi í rœðustól
Api þessi virðist flytja mál sitt af mikilli kunnáttu, enda hefur hann eflaust
numið tækni sína af einhverjum snillingi úr mannheimum! Hann ber líka
titil, og hann ekki af lakari endanum, nefnist forseti Bronsdýragarðsins x
New York. Hér er hann eflaust að flytja framboðsræðu, en trúlegt er hann
hafi ekkert að óttast, hvorki stöðumissi né mannorðs, því að forseti hefur
hann verið allt síðan 1945, og því sjö sinnum endurkjörinn, en í dýragörðum
eru forsetar einungis kosnir til eins árs! Leitt er, að nafn hans skuli tæp-
lega vera forseta sæmandi, hann heitir Jimmí, eins og hver annar hvers-
dagsmaður. En hinsvegar frýr honum enginn ættgöfgi, því að ættartölur
sýna, að hann er upprunninn úr frumskógum Kongó í Afríku, — og vegur
200 pund!
Utgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Erlingur Halldórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.