Vikan - 11.09.1952, Page 9
VIKAN, nr. 35, 1952
9
MAÐUR í FRÉTTUNUM!
Fangabúðir á Koje, yfirhershöfðingi S. Þ. og blóðgjöf í Bandaríkjunum
ANTONY EDEN
SVO má heita, að An-
tony Eden, utanríkisráð-
herra Breta, hafi verið dag-
legur gestur í fréttunum
frá því nokitru fyrir stríð.
Þessi 54 ára gamli íhalds-
maður hefur á umræddu
tímabili verið atkvæða-
mikill þátttakandi í opin-
beru lífi í Bretlandi, ýmist
sem utanrikisráðherra í
íhaldsstjórnum og sam-
steypustjórnum eða einn
af foringjum stjórnarand-
stöðunnar. Hann varð raun-
ar heimskunnur 19S8, þeg-
ar hann sagði friðþæging-
arstefnu Chamberlains stríð
á hendur með því að fara
úr stjórn hans. ChurchUl
telur í æfisögu sinni, að sú
opinbera ádeila á Chamber-
lain-stefnuna, sem í þessu
fólst, hafi verlð upphaf
hinnar brezku baráttu gegn
hitlerismanum.
Frænka Churchills
En nú fyrir skemmstu
varð Antony Eden maður-
inn í fréttunum á talsvert
óvenjulegan hátt. Brezka
kirkjan reiddist honum, eða
að minnsta kosti „Church
Ximes“, hið hálf-opinbera
málgagn hennar. Ástæða:
Eden, sem er fráskUinn,
gekk að eiga Clarissu
Spencer-Churchill, frænku
Winstons ChurchiUs forsæt-
isráðherra.
E<len fékk skilnað frá
fyrri konu sbtni 1950, en
þá höfðu þau verið gift í
27 ár. Skilnaðarorsökin var
„brotthlaup" konunnar,
nokkuð algeng skUnaðar-
sök i löndum, sem heimta
góðar og gUdar skUnaðar-
ástæður — sem þó í raun
og veru þýða ekki neitt.
SennUegast er, að skilnað-
urinn hafi verið fram-
kvæmdur með fullu sam-
þykki beggja aðila, „brott-
hlaupið" notað sem tyUiá-
stæða handa dómstólunum.
Breytt viðhorf
Ádrepan, sem „Church
Times“ veitti Eden, fékk
daufar undirtektir í Bret-
landi. 1 fyrsta lagi var
tíminn óheppilega valinn;
flestum fannst það víst
heldur lúalegt uppátæki að
fara að veitast opinberlega
að brúðhjónum daginn eft-
ir giftinguna. 1 öðru lagi
(og það er kannski merg-
urinn málsins) liafa, brezlc
viðhorf til hjónaskiinaðar
gjörbreyttst á einum
mannsaldri; afstaða al-
mennings — og liirðar-
innar — virðist nú vera
sú, að bezta fólk geti orð-
ið fyrir þeirri ógæfu að
lenda í vitlausu hjónabandi,
og slíkum hjónaböndum
megi vel slíta, án þess að
það kasti rýrð á viðkomandi
aðila. Svo mikið er vist, að
Eden hefur sennUegast engu
tapað á viðbrögðum hins
hálf-opinbera kirkjublaðs,
enda komu stærri og merk-
ari blöð honum skjótlega
tU hjálpar, þar á meðal
málgögn pólitískra and-
stæðinga hans, alþýðuflokks
manna.
„Bezt klæddi maðurinn"
Eden, „krónprinsinn" í
íhaldsflokknum, er annars
vinsæll maður í Bretlandi.
Hann er mikUl starfsmaður
(vinnur iðulega 16 til 17
stundir á dag), drenglund-
aður og heiðarlegur bar-
áttumaður. Hann er auk
þess þanlvanur stjórnmála-
maður — og heimsfrægt
snyrtimenni. Hann hefur
margoft verið úrskurðaður
„bezt klæddi maðurinn í
heiminum" af allra handa
samtökum, enda gleymdist
það ekki nú, þegar gifting
hans varð að blaðamáli.
Fleiri en ein fréttakona
ruddist fram á ritvölUnn
utanríkisráðherranum til
aðstoðar og aðhlynningar,
og flteiri en ein virtist líta
á það sem eitt sterkasta
trompið í sínu varnarspili,
að „bezt klæddi maður
heimsins" þyrfti að eiga
góða konu til þess að falla
ekki í óhirðu.
........*.... ;
-—~
:_________________________________________________ :
Hér eru þrjár stríðsmyndir
— og þó er engin þeirra tekin
á vígstöðvum. En þetta eru
engu að síður myndir úr sögu
Koreustríðsins, ,,litla“, blóðuga
stríðsins í Asíu, sem kostað
hefur tugþúsundir mannslifa
og óskaplega eyðileggingu.
JÞetta er „nýtízku" stríð —
20. aldar stríð — sem marka
má meðal annars af því, að
það eru hinir óbreyttu borg-
arar, sem verst verða úti. 1
Koreu hafa þeir komist á
vergang svo hundruðum þús-
unda skiptir, og í heimsblöð-
unum er sagt frá því eins og
skiljanlegu og allt að þvi
þolanlegu ástandi, að þúsundu
mxinaðarlausra Koreubarna
hljóti að farast í kuldunum í
vetur! Myndin efst til hægri
er af Mark Clark hershöfð-
ingja, yfirmanni herafla Sam-
einuðu þjóðanna. Hann var
kunnur hershöfðingi í heims-
styrjöldinni síðari. Myndin til
vinstri er tekin i fangabúðun-
um á Koje-eyju, og loks er
svo mynd tekin í Bandaríkj-
unum af ungri stúlku að
gefa blóð. Blóð hennar verður
kannski til þess að bjarga lífi einhvers hermanns. Koje-eyjan er löngu orðin fræg í frétt-
unum; það var vegna atburðanna á henni sem tveir hershöfðingjar, yfirmenn fangabúð-
anna, vonx lækkaðir í tign. Og enn berast fregnir af ókyrrð á þessum stað. Samninga-
menn Norðanmanna í Panmunjon saka Sameinuðu þjóðirnar um hryðjuverk; þeir virðast
einhvernveginn fá skjótar fregnir af öllu, sem gerist á fangabúðaeynni. Sameinuðu þjóð-
irnar svara þvi til, að aðbúnaðurinn í fangabúðum þeirra sé mun betri en í fangabúðum
Norðanmanna. — Og vopnahlésviðræðurnar dragast á langinn og striðsmyndunum fjölgar.
MYNDIR í
FRÉTTUNUM
Fegnir foreldrar
Nú er það komið upp úr
kafinu, að foreldrar Elizabeth
Taylor (myndin til vinstri) eru
lifandis ósköp fegnir því, að
hún skyldi giftast Michael
Wilding. Þau eru svona fegin
(að sögn þeirra sjálfra), vegna
þess að Wilding er tuttugu ár-
um eldri en Elizabeth; hann er
39 ára, hún 19. Eins og gefur
að skilja, hafa þau Elizabeth
og Michael bæði verið gift áð-
ur, en um það bil sem þau
gengu í þetta hjónaband, gáfu
þau út sæg af fréttatilkynn-
ingum um, að nú væri enginn
vafi á því að þau hefðu valið
rétt. — Eins og gefur að
skilja.
— Þegar Truman flytur —
Það er í Bandaríkjunum á
lífi einn fyriverandi forseti
(Hoover). 1 haust tvöfaldast
þessi tala þó væntanlega, þeg-
ar - Truman flytur úr Hvíta
húsinu. Hann hefur ekkert látið
uppi um það, hvað hann ætli
að taka sér fyrir hendur eftir
flutninginn, þótt þar um hafi
auðvitað komist feiknmargar
sögur á kreik. Ein sagan seg-
ir, að Truman ætli sér að ger-
ast ritstjóri, önnur að hann
vilji verða öldungadeildarþing-
maður aftur. En gera má ráð
fyrir, að hann þurfi ekki að
kvíða atvinnuleysi, enda standa
fyrrverandi íorsetum flestar
dyr opnar. Kannski fetar hann
meir að segjá í fótspor
híns pólitiska andstæðings sins
MacArthurs og gerist forstjóri.
MacArthur er nú einskonar
forstjóri hjá Remington Rand
(ritvélar o. fl.) og kvað hafa
rösklega eina og hálfa milljón
króna I árslaun.