Vikan


Vikan - 24.05.1956, Page 13

Vikan - 24.05.1956, Page 13
ÞESSI LÆKNIR SEGIR: „ENGINN GETUR NOTIÐ HJÓNABANDSINS í RÍKARA MÆLI EN SA SEM ★ ★★★★★ GIFTIST UNGUR.“ * * * * * * ' ÞA.Ð er í tízku núna að giftast ungur. Menn eru ósammála um, hvort það sé til góðs. Ég er læknir og frá læknis- fræðilegu sjónarmiði er ég sannfærður um, að svo sé. Athugum þessa nýju tízku andartak. Hún er orðin fimmtán ára gömul. 1 Eng- landi að minnsta kosti var það venjan, að konur giftu sig ekki fyrr en þær voru byrjaðar að nálgast þrítugt. Nú giftast þær á fyrri helmingi þriðja tugsins. Einn af hverjum þremur Bretum á aldrinum tuttugu til tuttugu og fjögra ára er gift- ur. Hvað hefur valdið þessari breytingu? Eitt sinn lifðu menn aðallega á land- • búnaði og heimilisiðju allskonar. Börnin unnu við hlið foreldra sinna og þótt þau væru mörg, gerðu þau ekki foreldrana i fátæka. Þau voru verðmætt vinnuafl. Það voru oft erfiðir tímar, en heimilið var ekki í hættu. Svo kom iðnbyltingin. Fólki var hrúgað saman í lélegu húsnæði. Fjölskyldur voru stórar, launin lág. Fátæktin fór verst með þá, sem áttu fyrir stórum barnahóp að sjá. Þetta bitnaði mest á móðurinni. Árangurinn var meðal annars sá, að fjölskyldur byrjuðu að minnka. Breyting- in tók að vísu langan tíma, en þegar á miðri síðustu öld voru menn byrjaðir að átta sig á því, að mörg börn gátu þýtt mikla fátækt. Barnsfæðingum fækkaði smásaman og giftingaraldurinn þokaðist upp. Milli heimsstyrjaldanna tveggja var mikið og almennt atvinnuleysi. Barnsfæð- ingum fækkaði enn. Fólk bókstaflega þorði ekki að eignast börn. Nú er allt gjörbreytt. I ýmsum Evrópulöndum og í Ameríku hefur framtíð konunnar aldrei verið glæsilegri. Tvennt veldur þar eink- um miklu um. I fyrsta lagi hefur afkoma fólks í þess- um löndum aldrei verið betri. I öðru lagi er gift fólk almennt búið að gera sér það ljóst, að það verður að hafa einhvem hemil á barnseignum sínum. Árangurinn? Sífellt fleiri smella sér í hjónabandið og giftingaraldurinn er sí- fellt að lækka. Barnsfæðingum fjölgar og færri giftar konur þurfa að vinna úti. I Bretlandi (svo að dæmi sé nefnt) er svo komið, að að- eins ein af hverjum fimm eiginkonum vinnur úti, samanborið við þrjár af hverj- um fjórum ógiftum. Það er líka svo komið í Bretlandi, að þar er orðinn skortur á ógiftum konum á giftingaraldri. Þetta hefur aldrei gerst áð- ur þar í landi. Hinar miklu framfarir á sviði lækna- vísindanna valda hér nokkru um. Á móti hverjum 100 meybörnum, sem fæðast, koma ætíð um 105 sveinbörn. Meybörnin eru hraustari og lífseigari. Nú hafa lækna- vísindin tekið í taumana. Nú deyja þeir ekki þessir fimm drengir, sem eru um- fram stúlkubörnin. Á móti hverjum tíu HERSKÁAR KONUR HÚÐSTRÝKJA KARLMENN! j FJALLAHÉRUÐUM Mis- L souri í Bandaríkjunum hef- ur óvenjulegur óaldaflokkur verið á ferðinni undanfarna mánuði. Margir hafa orðið fyr- ir barðinu á honum — en að- eins karlmenn. Þannig er mál með vexti, að í flokki þessum eru einungis konur. Þær fara um á hest- baki, klæddar kuflum, og á höfðinu bera þær síðar hettur, svo að þær eru óþekkjanlegar. Þær hafa valið sér það hlut- verk, að fylgjast með siðferði karlmannanna í „umdæmi" sínu. Ef þær komast að þeirri niðurstöðu, að einhver karl- maður hafi gerzt brotlegur í þeim efnum, gera þær honum fyrirsát og refsa honum grimmilega, ef þær ná honum. Þannig varð bóndi einn fyrir barðinu á þeim fyrir skemmstu. Hann var á heimleið drukkinn og átti aðeins um hundrað metra ófarna að bæ sínum, þegar hinir dulklæddu berserk- ir réðust að honum. Foringi þeirra tilkynnti honum: „Við erum úr Eftirlitsfélagi kvenna. Þú drekkur of mikið!“ Áður en hann slapp úr klóm kvennanna, voru þær búnar að afklæða hann, rjóða hann tjöru frá hvirfli til ilja og hella yfir hann fiðri! Nokkrir karlmenn hafa ver- ið húðstrýktir. Einn giftur maður var tekinn, þegar hann var að fylgja stúlku heim. Sið- ferðisverðimir grmiuðu hann um að halda fram hjá konunni sinni. Hinar herskáu konur voru búnar að binda hann við tré, þegar eiginkonuna bar að. Hann slapp við húðstrýking- una, þegar hún gat sannað, að stúlkan, sem hann hafði verið í fylgd með, væri vin- kona beggja og hefði verið gestur þeirra um kvöldið. Lögreglustjórar á þessum slóðum hafa tjáð fréttamönn- um, að þeir séu í standandi vandræðum. Menn þori sýni- lega ekki að bera vitni gegn hinum sjálfskipuðu eftirlits- konum. Þær hafa líka látið það boð út ganga, að hver sá, acm ljóotri því upp, hverjar þær séu, muni hljóta verra af. „Auk þess,“ sagði einn lög- reglustjóranna í viðtali fyrir skemmstu, ,,er erfitt að eiga í stríði við konur. Maður má eiginlega ekki beita þær sömu tökum og ef karlmenn ættu í hlut. Ég veit ekki, hvað við eigum að taka til bragðs.“ Það er áætlað, að Eftirlits- félagið hafi um 400 konum á að skipa. Margar eru ungar — og ógiftar. Aginn kvað vera strangur, trúnaðareiðar eru svarnir og grimmilegar refsingar liggja við því að ljóstra upp félags- leyndarmálum. PHILIP STREET. ungum ógiftum konum koma þrettán ung- ir ógiftir menn. Samkeppnin hefur aldrei verið meiri, og það kann að vera ein af ástæðunum fyrir því, hve fólk er farið að ganga ungt í hjónabandið. Hverjir eru meginkostir slíkra hjóna- banda. Læknar líta svo á, að ungt fólk eigi hraustustu börnin. Og þegar börnin stækka, eru foreldrarnir enn nógu ungir til þess að njóta til fullnustu þeirrar gleði, sem börn geta veitt. Peningahliðin skiptir líka talsverðu máli. Ung hjón eiga einfaldlega auðveld- ar með að sjá f jölskyldu sinni farborða en hjón, sem tekin eru að reskjast. Auðvitað héntar það ekki öllum að gift- ast ungur. Fólk er misjafnlega lengi að þroskast og átta sig á hlutunum. Sumu fólki er áreiðanlega fyrir beztu að doka svolítið við. Þegar ungmn hjónum semur illa, ættu þau ævinlega að leita ráða hjá lækninum sínum — og helst bæði. Erfiðleikar þeirra stafa oft af þekkingarskorti á hinni kyn- ferðislegu hlið hjónabandsins. Það er mín reynsla að minnsta kosti. Og læknir getur oftast hjálpað þeim. Ég er þeirrar skoðunar, að ungt fólk græði oftast á því að gifta sig. Hjóna- bandið verður því hvatning til að sýna hvað í því býr. Hvað þá um pilta og stúlkur, sem gift- ast innan við tvítugt? Ég held að þar sé of fljótt farið af stað. Yfirleitt hygg ég, að þær stúlkur eigi ekki að eignast börn, sem eru enn á vaxtarskeiði sínu. Skýrslur sýna, að ein af hverjum fjór- um breskum stúlkum, sem giftist 16—20 ára gömul, skilur að lokum við eiginmann- inn. Þetta er fjórum sinnum hærri tala en hjá þeim, sem giftast upp úr tvítugu. Fáeinum orðum vildi ég beina til þeirra, sem leita lífshamingjurinar með maka, sem er annaðhvort mikið eldri eða yngri en þeir sjálfir. Reynslan er oftast sú, að þegar þeir eldast, virðist aldursmun- urinn oft mun meiri en þegar þeir gengu í hjónabandið. Þetta veldur ósjaldan mikl- um erfiðleikum og endar stundum með skilnaði. Fráskilið fólk virðist annars bera mikla virðingu fyrir hjónabandinu. Þetta lætur kannski skrítilega í eyrum. En það er staðreynd, að þrír af hverjum fjórum frá- skildum reyna aftur. Hjónaskilnaðir gerast sífellt tíðari, en ég held samt ekki, að það sanni á neinn hátt, að núverandi „giftingartízka“ sé slæm. Ég held einfaldlega, að fólk sé hætt að vilja sætta sig við óþolandi heimilir- líf af eintómri skyldurækni. Unga fólkrð metur hjónabandið eftir þeirri hamingjri sem það færir því. Það er gott þegar fólk giftist imgt. Ég' held því ekki fram, að það verði alltaf hamingjusamt. En ég fullyrði, að fólk, sem giftist ungt, öðlist tækifæri til að njóta hjónabandsins í ríkustum mæli. — DR. JEREMY GOSLIN. 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.