Vikan - 24.05.1956, Síða 19
RANNSÓKNIR á hegðun bama
Framhald af bls. 14.
um og því sem er bara ,,þykjast“, og ímyndunaraflið hleypur ekki eins
með það í gönur. Samt sem áður getur það ruglazt svolítið i því, hvað
hefur í rauninni gerzt og hvað gerðist bara í sögu. Á þessu skeiði geta
mörg seinþrozka börn náð sér á strik, t. d. börn, sem hafa verið sein
til að tala. Börnin geta tekið þozkastökk ef svo má að orði komast.
FIMM ÁRA.
ÞAÐ ,er jafnvel enn betri aldur. „Hann er hreinasti engill,“ segja mæð-
ur fimm ára drengja. En á eftir auðsveipa fimm ára barninu, kem-
ur fyrirferðarmikið sex ára barn.
SEX ÁRA.
HEGÐUN sex ára barnsins minnir talsvert á hinn erfiða tveggja og
hálfs árs aldur. Hið viðkvæma barn á i sífelldri baráttu og er yfir
sig tilfinninganæmt. Það faðmar móður sína kannski ákaft að sér aðra
stundina, en æpir „Ég hata þig“ hina. Móðirin er ekki lengur miðpunkt-
ur tilveru þess og það lætur það koma niður á henni. Hvað sem amar
að er mömmu að kenna. Aukinn þrozki kemur oft frani í aukinni sjálf-
stæðishvöt. „Nei, ég geri það ekkert, reyndu bara að láta mig gera það“.
Sex ára barn á erfitt með að sætti sig við gagnrýni, ásakanir eða hegn-
ingu. Ef það fær ekki hrós og hefur rétt fyrir sér, þá koma tár og
ásakanir um að aðrir hafi rangt við. 1 raun og veru er það sex ára barn-
inu sjálfu, sem hættir- til að hafa rangt við og jafnvel stela. Það er
hægt að létta undir með barninu með þvi að gera sér það ljóst, að
það á í erfiðleikum, bæði innvortis og gagnvart umhverfi sínu. Það er
því rétt að leiða hjá sér eins mikið af vandræðunum og hægt er. Barnið
er yfirleitt erfiðast við móður sína á þessum aldri og því ætti faðirinn
að taka það meira að sér ■— og það áður en móðirin er orðin uppgefin.
Eins ber að varast að láta börnin byrja of snemma i skóla, jafnvel
þó þau séu álitin „gáfuð" eða þó þau séu „rétt að komast“ á hæfilegan
aldur. Þó að sjö ára barn sé yfirleitt ekki eins erfitt og sex ára barn, þá
á það líka við ýmsa erfiðleika að stríða
1 næsta blaði mun ég svo taka úrdrátt úr því, sem dr. Gesell og
samstarfsmenn hans tveir segja um 7, 8, 9 og 10 ára börn, en hærra fara
þeir ekki í rannsóknum sinum. En hafið það í huga, að aldurinn er
ekki einhlýtur, heldur geta stigin færst til eftir þrozka barnanna.
abragdi er þvottinum loki<J
Þér þurfið ekki að eyða tímanum við þvottabalann ef þér
notið WIP P . Hrærið Wipp út í heitu vatni og látið
þvottinn liggja í því 2—3 tíma og skolið síðan.
CliMMINS
dieselvélin ryður sér æ meira til rúms í fiskiskipum.
Því veldur eftirfarandi:
1. Einföld PT olíudæla, sem er jafn auðveld í stiilingu
og karborator í bíl.
2. Nægar varahlutabirgðir.
3. Verksmiðjuþjálfaður viðgerðarmaður á staðhum.
Fáarfleg í stærðunum 100—600 hestöfl.
€W€//lg
LAUGAVEGI 166
Allir Reykvíkingar verða að eignast bókina
GAMLA REYKJAVÍK
eftir Árna Óla
BÖKAVERZLUN ISAFOLDAR
SÚPUTENINGAR
Ljúffengir og kraftmikl-
ir, bragðbæta súpur, sós-
ur og gefa matnura bið
rétta bragð.
Fást í 6 stykkja pökk-
um, 25 í dós eða 50
i smekklegu glasL
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
19
V