Vikan


Vikan - 20.03.1958, Blaðsíða 9

Vikan - 20.03.1958, Blaðsíða 9
 FAGKIIÍ MUNIK UR GULLI OG SILFRI Sendnm gegn póstkröfu. Guðlaugur Magnússon SKARTGRIPAVERZLUN Laugavegl 22 A. — Simi 15272. Valur- Vandar- Vöruna SULTUR — AVAXTAHLAUP MARMELAÐI — SAFTIR MATARLITUR — SÓSULITUR EDIKSVRA — BORÐEDIK TÓMATSÓSA — ÍSSÓSUR — Sendum um allt land — Efnagerðin Valur h.f. Box 1813. — Simi 19795 — Reykjavik. frd mínum bœjardyrum skrifar fyrir kvenfólkið, um kvenfólkið og hugðarefni þess Sami hatturinn á manninn og eiginkonuna. Trafið er blakt á heila húsi, hatturinn trúi’ ég aptan á dúsi, álikt er sem biakkur brúsi, bera þær flest ailt dökt á sér. Þö fara skómir hálfu ver. Lýður enginn fremdarfúsi freklega mun því hæla. Fað kann engan ýngismanninn tæla. * Það er engin ný bóla að karlmenn tali með fyrirlitningu um höfuðföt kvenna, eins og sést á gamla vikivakakvœðinu hér fyrir ofan. • Þó eiginmaðurinn vilji ekki kaupa liatt á frúna, getur hann ekki verið þekktur fyrir að neita að lána henni sinn. Og eins og sést á meðfylgjandi myndum getur karlmannshattur verið allra klæðileg- asta. höfuðfat. TRICH LORHREINSUN (ÞURRHREINSUN) SQLVALLAGÖTU 74 • SÍMI 13237 BARMAHLÍÐ 6 SÍMI 23337 Prjónastofan Hlín h.f. Skóiavörðustíg 18. Símar 12779 og 14508. Prjónavörur höfum við framleitt í síðastliðin 25 ár úr íslenzku og er- lendu gami. Höfum ávallt á boðstólum fyrsta flokks vinnu, og fylgjumst vel með tízkunni. Sendum gegn póstkröfu um land allt. Ég þakka þeim sem verzlað hafa í Sölutuminum við Arnarhól ánægju- leg kynni, og bið þá um að beina við- skiptum sínum í Hreyfilsbúðina. Pétur Pétursson. LITLA BLIKKSMIÐJAN Nýlendugötu 21 A. Sími 16457. Smíðar meðal annars: Þakrennur, allar stærðir og gerðir. Þakglugga, allar stærðir og gerðir. Olíukassa í báta og skip. Benzíngeyma í bíla og báta. Loftrör, allar stærðir. Lóðabala. Lofttúður o. fl. Stólar eru til að sitja á þeim. EXTA er að vísu engin speki, en þó er ekki langt síðan útlitið skipti mestu máli en notagUdið skipaði annað sæti^ þegar stólai' voru keyptir. Og enn hættir mörgum til að líta þannig á málið. Stólar af rangri gerð geta verið orsök höfuðverkjai’ og meira eða minna með- vitaðrar ónotakenndar. Það er ekki sízt hæðin á sæt- inu sem máli skiptir. Við skulum taka borðstofustóla si-m dæmi. Það er allt ann- að en þægilegt fyrir mann, sem er 35 sm. frá hæl og upp í hnésbót, að sitja á stól ef setan er í 50—55 sm. hæð frá gólfi. Annað hvort verður hann að teygja sig svo tærnar nái niður á gólf eða þá að vefja fót- unum utan um stólfæturna, og það gera einmitt flest- ir. Það er þvi tilgangslaust að nöldra yfir þessum leið- iniega „vana“ imglinga og fullorðins fólks. Þetta er aðeins eðlileg ráðstöfun líkamans, til að létta þrýst- ing stólsetunnar á lærin og koma i veg fyrir að blóð- rásin ti-uflist. Þvi miður er ekki hægt að hafa misháa stóla fyrir alla þá sem á heimilið kunna að koma, en meðalhæð setunnar frá gólfi mun vera 45 sm. og geta flestir látið allan fót- inn hvíla á gólfinu, þegar setið er á slíkum stól. Aftur á móti er full istæða til að venja ung- linga af að rugga sér á stólunum. Það er ekkert annað en óvani, og enginn stóll þolir þá meðferð til lengdar. Það hefur verið reiknað út að um 90% af öllum bi-otnum stólum séu fórnarlömb þessa útbreidda óvana. Auk þess hefur f jöldi manns orðið fyrir varan- legum meiðslum við að velta aftur fyrir sig við þessa iðju. Það er þó óneit^ulega notalegt að rugga fram og aftur á stólnum. En til þess þarf þar til gerða stóla. Ruggustólar eru nú *aftur komnir á markaðinn á Norðurlöndum, en hér hafa þeir aldrei verið mjög mik- ið notaðii’, hvorki fyrr né nú. Ég minnist þess ekki að hafa séð einn einasta ruggustól með nýtízku sniði í gluggum húsgagnaverzl- ananna hér. En það voru borðstofu- stólarnir, sem voru til um- xæðu hjá okkur. Auðvitað verður að vera nægilegt rúm til þess að koma fót- unum vel inn undir borð- stofuborðið, þegar setið er á stól við það. Venjulega eru um 63 sm. frá gólfi og upp undir borðbrúnina. Borðstofuborð eru venjulega þetta 70—75 sm. há. Þetta verður að hafa í huga, þegar valin eru borðstofuhúsgögn, auk þess sem útlit og efni skipta miklu máli. TJr nógu virðist vera að velja. Og ekki má gleyma því að húsgögnin verða að hæfa stofunni, sem þau eiga að standa í, og áklæðið að vera I lit við annað sem þar er inni. Páskamyndin verður Stríð og friður NÚ á páskunum verður sýnd í einu kvikmynda- húsinu hér í bænum, Tjarn- arbíói, mikið umdeild kvik- mynd, sem fengur er i að fá. Það er myndin „Stríð og friður", sem King Vidor gerði eftir samnefndri skáldsögu Leos Tolstojs. Þessi saga er flestum Islendingum kunn í nokkuð styttri þýðingu Leifs Har- aldssonar, og fáir hafa les- ið söguna án þess að þeim hafi farið að þykja vænt um greifadótturina ungu, hana Natösju, sem í ein- lægni sinni, hamsleysi sínu og æskuviðkvæmni hefur í rúmlega eina öld veriö ímynd allra ungra stúlkna í öllum löndum. Þann þátt sögunnar hef- ur Vidor einmitt bezt tek- izt að túlka, enda hafði Ixann á að skipa stúlku, sem er eins og sköpuð í hlut- verkið, en það er Audrey Hepburn. Útlit hennar á vel við lýsingu Tolstojs á Natösju. Henni er þannig lýst að hún sé svarteyg, munnstór, grannvaxin og hafi mjóa handleggi og fót- leggi^ og alltaf fylgi henni dillandi hlátur. Audrey Hepburn fellur frábærilega vel inn I hlutverkið, frá því hún -kemur fyrst blaðskell- andi inn til móður sinnar 13 ára gömul. Hún er Natasja, þegar hxln verður ástfangin af Andrési fursta og hlær og syngur af ham- ingju yfir að vera ung og fxilleg og vera til, þegar hún af óþreyjufullum lífsþorsta tekur víxlsporið, sem fer með mannorð hennar og tekur frá henni unnustan, þegar hún situr sem þrozk- uð kona við banabeð furst- ans og loks þegar hún ákveður að giftast Pétri og við vitum að hún er á leiðinni með að verða búst- in þriggja barna móðir, og lífsfjör æskunnar er farið að dofna. Þó sýningartími myndar- innar sé þrír klukkutímar og 28 minútur, hefur að sjálfsögðu ekki verið hægt aö taka með nema hluta af sögunni, og saknar mað- ur þar margra góðra kafla. Ekki get ég fellt mig við Mel Ferrer í hlutverki Andrésar fursta, enda er hann frá höfundarins hendi alltof mikill engill til að hægt sé að búast við því að dauðlegur kvikmynda- leikari geti farið í fötin hans. Aftur á móti er Henry Fonda skínandi góður sem draumóramaðurinn Pétur. Það sem ég átti þó verst með að fella mig við í fyrstu, var orustan við Borodino, en ytri rammi sögunnar er eins og kunn- ugt er sókn Napoleons austur á bóginn. Þarna þramma þúsundir manna I skrautlegum einkennisbún- ingum á hvíta tjaldinu og enginn getur séð hvað þeir eru eiginlega að flækjast. En síðan hef ég lesið kafla, þar sem Tolstoj gerir grein fyrir skoðunum sínum á því hvernig orustur fóru fram á þessum tíma, og komizt að raun um að sennilega hefði hann einmitt viljað þafa það þannig, ef hann hefði ráðið, því hann segir að í orustum viti enginn hvað sé að gerast fyrr en eftirá. 1 sambandi við or- ustuna kemur Napoleon fram á sjónarsviðið. Ég sá kvikmyndina í frönsku kvikmyndahúsi og sýning- argestum fannst hinn eini sanni keisari þeirra svo mikil skrípamynd, að þeir skellihlógu í hvert skipti sem hann sást. Þó þeim sem lesið hafa bókina finnist að margt hefði mátt hafa með öðr- um hætti í myndinni, hef- ur kvikmyndin vakið áhuga þeirra sem ekki hafa lesið söguna, svo að hvarvetna hefur bókin aftur orðið mikil sölubók um leið og farið var að sýna myndina. SYSTURIMAR SEM ÆTLIJÐII AÐ DREPA LENIIM' eftir HAROLD WALTON SUMARIÐ 1918 var hlýtt og votviðrasamt, en í ágúst byrjaði veðrið að kólna og það var þegar komið haust. Herir bandamanna á vesturvígstöðvunum hófu sókn, sem átti eftir að lykta með uppgjöf Þjóð- verja. 1 Rússlandi voru líka háð blóðug átök um þessar mundir. Hvltliðar og Rauð- liðar börðust um völdin. Báðir vorix ráðnir í að berj- ast til hinsta blóðdropa. Báðir vissu að líf þeirra lá við, að framtíð Rússlands var í veði. Leiðtogi rauðliðanna var Vladimir Ilyich Lenin, mað- ur sem Þjóðvei’jar höfðu ári áður smyglað þvert yfir Ev- rópu, til þess að hann mætti stjórna byltingunni gegn keisaranum. En Lenin var ekki einungis Ieiðtogi. Hann var sameiningartákn rauðu byltingarmannanna. Án hans hefði hreyfing- in getað endað í algjörri upplausn. Rauðliðarnir áttu 1 vök aö verjast. Hinir hvítu vildu þá ekki einungis feiga, heldur lika banda- menn keisarastjómarinnar. Frakkar, Bretar og Tékk- ar voru reiðubúnir að beita vopnum gegn rauðu bylt- ingarmönnunum. Rxxssneskir sósíalistar voru yfirlýstir andstæðing- ar Lenins. Þeir óttuðust einræði flokksins, sem hon- um fylgdi. Þeir vildu „vest- rænt lýðræði." Systur tvær koma nú til súgunnar. Þær voru sósíal- istar. Þær hétu Dora og Fanny Kaplan. Þær voru af millistéttarfólki. Þær voru menntaðar og tilfinninga- ríkar og höfðu tekið virk- an þátt í uppgjörinu við keisarastjórnina. Þær komust að þeirri nið- urstöðu, að til þess að forða Rússlandi frá nýrri einræð- isstjórn, yrði að ryðja Len- in úr vegi. Og þær ákváðu að ráða honum bana. Þær eygðu tækifærið kvöldið 30. ágúst 1918. Len- in ætlaði að flytja ræðu i Michelson-verksmiðjunum í Pétursborg. Göturnar voru fullar af fólki á leið til fundarins. Lenin ætlaði að flytja fólkinu mikilvægan boðskap um aðgerðir stjórn- arvaldanna vegna yfirvof- andi hungursneyðar. Dora og Fanny Kaplan héldu af stað til fundarins. Undir treyju sinni bar önnur hlaðna marghleypu. Lenin talaði I nokkra klukkutíma. Hann harmaði matvælaskortinn, en sagði að verkalýðurinn yrði að vera reiðubúinn að færa fórnir. Þetta rnundi bráð- lega batna, sagði hann. Hann var mikill og snjall ræðumaður. Eins og fyrri daginn, náði hann miklum tökum á áheyrendum sín- um. Fólkið fagnaði honum ákaft. Hann var hylltur í xæðulok. Svo steig hann niður af ræðupallinum og stefndi á bílinn, sem beið hans. Fanny og Dora Kaplan biðu hans í mannfjöldanum og stöðvuðu hann. Þær sögðust þurfa að leggja fyrir hann nokkrar spurn- ingar í sambandi við ræð- una. Svo hélt önnur þeirra allt í einu á marghleypu og tveir skothvellir kváðu við. Lenin féll aftur fyrir sig. Blóð spýttist úi' brjósti hans og öxl. I ringulreiðinni, sem fylgdi í kjölfar tilræðisins, víssi enginn með vissu hvort Lenin var dauður eða lif- andi. I London birtu sum blaðanna andlátsfregn hans. En Lenin dó ekki, þótt lif hans héngi í þræði dögum saman. Hann hafði fengið skot í lungað, en komst á fætur eftir nokkx-ar vikur cg tók á ný við stjórnar- taumunum. Þannig hafði fórn systr- anna orðið til einskis. Bn hvað varð um þær? Við rannsókn málsins var því slegið föstu a3 Dora Kaplan hefði borið marg- hleypuna. Hinn 3. sept- ember — þ. e. fjórum dög- um eftir tilræðið — var til- kynnt opinberlegaj-að1 búið væri að taka hana af Iífi. Því miður hafði yerkn- aður hennar í för með sér fjöldahandtökur og hermd- arverk. Hundruð sósíalista voru skotnir fyrir meinta hlutdeild í morðtilrauninni. Hvað Fanny áhrærði, var ekkert látið uppi um örlög hennar, hún hvarf eins og jörðin hefði gleypt hana, enginn vissi hvort hún væri lífs eða Iiðin. Um hana var algjör þögn — þar til nærri fjörutíu árum seinna, þar til í janúar síðastliðn- um þegar tilkynnt var í Moskvu, að hún væri látin eftir nærri fjörutíu ára fangelsisvist. Um hvað hugaði hxln í klefa sínum hvar serii hánn var? Skyldi hún hafa séð eftir því sem þær gerðu systurnar ? Enginn vafi er á þvi, að ef tilræðið hefði tekixst, hefði saga Rússlands getað orðið allt örmur og þar með allur gangur maimkynssögunnar, En það átti ekki að verða. Lenin lifði nógu lengi til þess að koma fótunum xmd- ir kommilnistai'íki sitt. Og Fanny iifði þann dag þegar rikið, sem hann stofnaði, boðaði sinn stærsta vísindasigur með því að senda á loft fyrsta gerfi- tungl veraldar. Gerist áskrifendur VIKUIMIMAR! HÆTTULEGT AO KYSSA O** LLUM munaði fylgir nokkur hætta. Þetta verður því ljós- ara sem vísindamenn okkar vinna stærri sigra. Nú vitum við að síga- rettur eru stórhættulegar; það líður naumast sá dagur, að okkur sé ekki sagt þetta. Um áfengið þarf ekki að xæða. Og samkvæmt tímariti þvi, sem samtök brezki’a lækna gefa út, eru kossar ekki nándarnærri hættu- lausir. I ritinu segir meðal annars: „Hættan, sem kossum fylgir, fer nokkuð eftir aðferðinni, sem notuð er. Hinn ástríðulausi kveðjukoss — kossinn, sem smellt er á enni eða kinn — getur valdið þvl, að kiss- andinn smitist af ýmsum sýklum, sem valda andlitsbólum . . . Ásti’íðu- kossinn — kossinn þar sem varir karls og konu mætast — getur aftur á móti valdið smiti um munn- inn, sýklaflutningi með ínunnvatn- inu. Þó er erfitt að slá því föstu, hve mikil smithættan er." Faðmlög geta lika verið hættuleg. Þess eru mörg dæmi, að faðmiögum hafi lyktað með því, að konan hafi uppgötvað, að hún var rifbeinsbrotin eða jafnvel kjálkabrotin. Og kari- maðurinn er ekki alveg óhultur held- ur. Þetta er ekkert ski'ýtið, þegar haft er hugfast, að áætlað er, að „venju- Iegum“ ástríðukossi fylgi um tíu punda þrýstingur á andlitið, en fyrsta flokks „háspennukossi" allt að tutt- ugu og fimm punda þrýstingur! s VIKAN VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.