Vikan - 20.03.1958, Qupperneq 12
HAMMOND INNES
SÖGULDK
EG hef verið um það bil hálftíma á leiðinni nið-
ur fjallshlíðina. Mér fannst ég vera óratíma
að komast alla leið niður, því að föt min voru
rennvot og það var níztingskuldi. En þegar ég
!eit á kíukkuna, þegar ég fór fram hjá kofan-
um hans Emilio, þá var klukkan aðeins þrjú
korter gengin í eitt. Ég leit upp eftir togbraut-
inni, sem glóði í tunglsljósinu. Efst uppi virtist
snjórinn umhverfast í ólgandi eldhaf. Það var
ekki lenguf hægt að greina einstaka hluta skál-
ans. Hann var eitt logandi hrúgald, kjarninn
hvítur, síðan tók við veikur í'oði og reykjar-
mökktir íeið til himins. Logatungurnar læstu sig
upp í himininn eins og halastjörnur.
Þegar; ég kom að gistihúsinu, voru þar allir
vakandi' óg voru að búa sig undir að senda
hjálparflokk upp til skálans. Ég var þegar um-
kringdur" fólki, klæddu skíðafötum. Ég spurði
eftir hótelstjóranum. Hann kom askvaðandi til
mín, harth var kubbslegur regingslegur maður,
með inrtfallið andlit og olíuborið hár. „Eruð þér
meiddur, signore. Er nokkur meiddur ?“
Ég sagði honum, að eldurinn hefði ekki orðið
nekium að meini, og það yrði ekkert við eldinn
ráðið. Síðan bað ég hann að lána mér símann.
„Auðvitað, signore. Ég skal reyna að gera allt
sem í mínu valdi stendur." Ég fór inn á skrif-
stofu hans. Hann náði í tvo rafmagnsofna, lét
þjón færa mér drykk og innan stundar var mér
færð heit máltíð. Þetta var hans stóra augnablik.
Hann var að sýna gestum sínum, hversu örlátur
og góður hann var. Hann ætlaði mig alveg að
æra með sífelldum spurningum um það hvernig
mér liðiv Og allan tímann var ég með heyrnar-
tólið í hendinni. Ég talaði við Bologna, Mestre
og Milano. Einu sinni fékk ég Róm af misgán-
, ,f Ó . . :
1. Hvaða höfuðborg í Evrópu liggur á sömu ;
breiddargráðu og New York?
2. Ungi bandaríski kvikmyndaleikarinn Ja- !
mes Dean, lék í þremur frægum myndum |
áður en hann dó. Veiztu hvað þær heita? ;
■
S. Undir venjulegum kringumstæðum svitnar ;
wrrr^v” — ■
hundurinn ekki. Hvernig losnar hann vio ■
rakann úr líkamanum?
4. Hvers vegna er Breiðabólstaður f Vestur- !
hópi frægur sögustaður?
■
5. Hverjar eru fjórar undirstöðuaðferðir !
reikningslistarinnar ?
6.
7.
8.
9.
i
5
:
I
1«.
Hvar í mannslíkamanum eru þjóbeinin? j
Hvers vegna siíur riddarinn ekki á hest- •
inum ? ■ :
■
Nlflungahringurinn eftir Wagner saman- !
stendur af fjórum sjálfstæðum óporum. 5
Hvað heita þær?
Hvaða íþróttaafrek keppast menn enn ;
við að vinna, sem Grikki nokkur leysti af ;
hendi árið 490?
Og liér er nafnagáta: Logn á milli iands j
<>g eyja?
: ■
Sjá svör á bls. lJf.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■"
I OLPUNUIVI
ingi. En, það var ekki hægt að ná í Trieste. Held-
ur ekki Udine.
Joe kom másandi inn, þegar ég var að tala við
Bologna í þriðja skiptið. Hann var rennblautur,
og lét fallast í hægindastól. Hann var ennþá með
litlu myndavélina um hálsinn. Litli hótelstjórinn
fékk nú nóg að gera. Það var þegar komið með
koniak. Hann var klæddur úr skíðafötunum og
dúðaður í geysimiklum slopp með fjólubláum og
rauðum röndum. t>að var náð í meiri mat. Og
meðan á öllu þessu stóð, meðan ég beið eftir
símanum, reyndi ég að gefa honum nokkra hug-
mynd um það, sem hafði verið að gerast uppi í
Col da Varda. Ég minntist ekki á gullið, en það
gerði það að verkum að saga mín varð harla ó-
trúleg.
En þegar spurningahríð hans var í fullum
gangi, spurði Trieste skyndilega hversvegna ég
svaraði ekki. Ég bað um bækistöðvar hersins og
Musgrave majór svaraði í símann. Hann muldr-
aði eitthvað syfjulega í símann. En hann var ekk-
ert nema áhuginn, þegar ég minntist á Engles
og sagði honum, hvað hann vildi láta gera.
,,Ágætt,“ svaraði hann og mér fannst hann vera
í órafjarlægð. „Ég skal hringja á Udine og láta
þá fara af stað undir eins. Skotliðastöðin hjá
Cortina segið þér? Ágætt. "Segið Derek, að þeir
ættu að vera komnir um níuleytið ef allt fer
samkvæmt áætlun.“ Þessu var lokið á nokkrum
mínútum, og ég iagði frá mér tólið og andvarp-
aði.
Litli hótelstjórinn var að þrotum kominn. Allir
voru farnir í í'úmið aftur. Ég leit út í anddyrið.
Þar var allt hljótt. Húsvöi'ðurinn svaf í einum
stólnum við arininn. Stór klukka tifaði í sifeliu
við stigann. Klukkan var tíu mínútur yfir fjögur.
: Ég fór aftur inn á skrífstofuna. Joe lá steinsof-
andi í hægindastólnum og hraut lágt. Ég dró
gluggatjöldin frá og leit út. Tunglið v.ai' að
hverfa bak við Monte Crístallo. Stjörnurnar voru
skærari og himinninn myrkur. Það sást aðeins
bregða fyrir bjarma efst hjá togbrautinni. Það
logaði enn í rústunum. Ég dró stól upp að ein-
um rafmagnsofninum og lét fara vel um mig,
meðan.ég beið eftir því að Engles hringdi.
Mér hlýtur að hafa runnið í brjóst, því að
klukkan var um sex, þegar ég vaknaði við radd-
ir í salnum. Þá var hurðinni lirundið upp og
Engles staulaðist inn.
Ég man að ég stökk á fætur. Ég hafði ekki
búizt við honum. Andlit hans var fölt og tekið.
Föt hans voru öll rifin. Það voru blóðblettir á
úlpunni hans og stór rauður blettur fyrir ofan
nárann. „Náðirðu í Trieste?" spurði hann. Rödd
hans var mjög veikluleg.
,Já,“ sagði ég. „Þeir koma að skotliðastöð-
inni um niu leytið."
Engles brosti biturt. „Það verðui' óþarfi.“ Hann
lét sig falla ofan í leðurklæddan stól við skrif-
borðið. „Keramikos er dauður,“ bætti hann við.
„Hvað kom fyrir?" spurði ég.
Hann starði sljóum augum á ritvélina, sem
stóð á gijáfægðu mahogniborðinu. Hann fálmaði
eftir hlífðarpokanum ofan á rltvélinni. Síðan dró
hann rltvélina að sér og setti í hana blað. „Gefðu
mér sígarettu," sagði hann. Ég stakk henni upp
í hann og kveikti í henni. Hann sagði ekki neitt.
Hann sat bara þarna með sígarettuni lafandi uppi
i sér og starði á auðan pappirinn í ritvélinni. „Guð
minn góður,“ sagði hann hægt. „Þvílík saga. Hún
verður í minnum höfð. Hrollvekja, sem átti sér
raunverulega stað. Það hefur aldrei verið gert
áður — ekki svona.“ Augu hans loguðu af ákafa.
Hann lét fingurna fara yfir leturborðið og byrj-
aði að hamra á ritvélina.
Joe vaknaði og stundi við, þegar hann heyrði
í ritvélinni. Hann starði á Engles með galopinn
munninn, eins og hann hefði séð draug.
Ég leit yfir öxlina á Engles. Hann skrifaði:
SKÍÐASKÁLINN I ÖLPUNUM
Sannsöguleg lirollvekja.
Fingur hans féllu máttlausir á stafaborðið.
Sígarettan féll úr munni hans ofan i kjöltu hans
og brenndi þar gat á buxurnar. Hann gnísti tönn-
um og svitaperlur brutust fram á enni hans.
Hann lyfti höndunum af borðinu og bætti við
annari línu:
eftir NEIL BLAIR
Hann hætti og leit brosandi á það sem hann
hafði skrifað. Blóðfroða kom út um munnvik hans.
Hendur hans féllu á stafaborðið og lyftu upp ótal
óskrifuðum stöfum. Hann valt um og féll á gólf-
ið áður en mér vannst tími til þess að grípa hann.
Þegar ég lyfti honum upp var hann dáinn.
Ég fylltist bitru hatri á gullinu, þegar ég leit
niður á lik Engles sem lá samanhniprað á legu-
stólnum.
Hvers vírði var gull? Þessir litlu klumpar, sem
komu næstum þvi að engu gagni. Það var ekki
hægt að nota gullið til neins nema myntfótar
vegna þess hve það var sjaldgæft. Samt virtist
það hafa sinn eigin banvæna persónuieika. Það
seiddi menn til sín eins og segull — en það sem
það seiddi að sér var græðgi. Sagan um Midas
hafði sýnt mönnum fram.á, hversu verðlaust það
í rauninni var. Samt höfðu menn drepið hvor
annan, síðan sögur fóru af, til þess að öðlast
þennan gula málm. Menn höfðu dáið unnvörp-
um í leit sinni að gullinu, til dæmis í Alaska og
Klondyke. Og enn aðrir vildu stofna öllu sínu í
hættu til þess að ná í þennan málm, sem þeir
síðan geymdu í velluktum neðanjarðargeymslum.
Til þess að ná í þennan gullfarm, hafði Stelben
slátrað níu mönnum. Og þegar hann var dauður,
höfðu menn flykkzt að gullinu, frá öllum krik-
um Evrópu, og barizt um það þar til yfir lauk.
Ég var sá eini sem eftir lifði sem vissi um
gullið. Þetta hafði verið skuggalegur hópur.
Stefan Valdini, glæpamaður og fúlmenni, Carla
Rometta, svikakvendi og litlu betri en venjuleg
götudrós, Gilbert Mayne öðru nafni Stuart Ross,
liðhlaupi, glæpamaður og morðingi, Keramikos,
nazisti, af grísku þjóðerni. Þau höfðu öll látið
lífið vegna gullsins.
Og nú -— Derek Engles.
Hann hafði einnig sína galia. En hann hafði
verið fluggáfaður og einstakur persónuleiki.
Hann hefði getað orðið einn af þeim stóru í
kvikmyndaheiminum. En hið eina sem eftir var
af honum núna var líflaus líkami, samanhniprað-
12
VIKAN