Vikan - 10.04.1958, Side 5
Craddock kraup á kné og tók nokkur gömul albúm út úr neðstu hill-
unni. — Eru þetta þau?
Letitia Blacklock kom inn til þeirra. — Nú þarna hef ég látið þau.
Ég mundi það ekki.
Craddock var kominn með albúmin fram á borðið og farinn að fletta
þeim. Þarna blöstu við konur með barðastóra hatta og konur í niður-
þröngum kjólum, svo þær gátu varla gengið. Undir hverri mynd var skrifuð
skýring með litlum, snotrum stöfum, en blekið var gamalt og farið að
fölna.
— Það mundi vera í þessu albúmi, á annarri eða þriðju opnu, sagði
ungfrú Blacklock. Myndirnar í hinu albúminu eru teknar eftir að Sonja
var gift og farin. Hérna ætti það að vera, sagði hún og fletti við blaði.
Hún þagnaði skyndilega.
Á síðunni blöstu við nokkur auð bil. Craddock beygði sig niður að
áletruninni fyrri neðan: „Sonja . . . ég sjálf . . . R.G.“ Og svolítið lengra
„Sonja og Bella á ströndinni" og á síðunni á móti: „Skemmtiferð í Skeyne".
Hann fletti yfir á næstu síðu. „Karlotta, ég sjálf, Sonja, R.G.“
Craddock rétti úr sér. Það voru hörkudrættir um munninn á honum.
Einhver hefur fjarlægt. þessar myndir — og það er ekki langt síðan.
— Það vantaði enga mynd þegar við skóðuðum þær um daginn,
var það, Júlía?
— Ég skoðaði þær ekki mjög nákvæmlega — leit bara á suma kjól-
ana. En ég held að það sé rétt hjá þér. Það vantaði engar myndir.
Craddoek varð ennþá hörkulegri. — Einhver hefur fjarlægt allar
myndir af Sonju úr albúminu, sagði hann.
18. KAFLI.
Bréfin.
I
- Afsakið að ég skuli enn einu sinni vera að ónáða yður, frú Havmes.
— Það gerir ekkert til, svaraði Philippa luildalega.
— Eigum við að koma inn hérna?
Inn í lestrarherbergið ? Já, ef þér viljið, fulltrúi. En það er
k.alt þar. Það hefur ekki verði kveikt upp.
— Það skiptir ekki máli. Þetta tekur ekki iangan tíma. Það heyrist
ekki til okkar þar.
Skiptir það máli ?
- Það gerir mér ekkert til. En þér kærið yðui' ef til vill ekki um
það. Er það ekki rétt að þér hafið sagt nrér að maðurinn yðar hafi verið
drepinn í orustu á Italíu?
Og hvað með það ?
Hefði ekki veriö einfaldara að segja mér sannleikann að hann
hafi strokið úr herdeild sinni ?
Hann sá að hún fölnaði og kreppti og opnaði hnefana á víxl. Verðið
þéi' endilega að róta upp í öllu, sagði hún svo í bitrum tón.
— Við ætlumst til þess að fólk segi okkur sannleikann, svaraði Crad-
dock þurrlega.
Hún þagði langa stund og sagði svo: - Jæja, hvað ætlið þér að gera
í þessu ? Segja öllum frá þvi ? Er það nauðsynlegt — sanngjarnt eða
tillitssamt?
Veit enginn um það?
— Enginn hérna. Harrý — rödd hennar bi'eyttist — sonur minn
veit það ekki. Ég vil ekki að hann fái nokkurn tíma að vita það.
•— Þá skal ég fræða yður á einu, þér leggið mikið I hættu, frú
Haymes. Þegar drengurinn verður orðinn nægilega stór til að skilja
það, ættuð þér að segja honum sannleikann. Ef hann kemst einhvern
tima að því sjálfur, þá getur það orðið ákaflega slæmt fyrir hann. Ef
þcr haldið áfram að mata hann á sögum um föður hans, sem hafi dáið
hetjudauða . . .
Það geri ég ekki. Ég er ekki svo óheiðarleg. Ég tala bara ekki
um það Faðir hans dó — í stríðinu. Það er líka það sem raunverulega
gerðist — hvað okkur viðvíkur.
— En maðurinn yðar er enn á lífi, er það ekki ?
— Það getur verið. Hvernig ætti ég að vita það?
— Hvenær sáuð þér hann síðast, frú Haymes ?
Ég hef ekki séð hann í mörg ár, flýtti Philippa sér að svara.
Eruð þér viss um að það sé satt ? Þér hafið þá t. d. ekki séð
hann fyrir hálfum mánuði ?
— Hvað eruð þér að gefa í skyn ?
— Mér fannst aldrei sennilegt að þér hefðuð hitt Rudi Scherz í
garðhúsinu. En Mitzi var ákaflega sannfærandi. Mér hefur dottið í hug
að maðurinn, sem þér skutuzt úr vinnunni til að hitta, hafi verið mað-
urinn yðar.
— Ég hitti engan í garðhúsinu.
Hann hefur kannski verið í peningakröggum og þér hafið látið
hann fá peninga. Strokumenn grípa oft til örþrifaráða. Þeir taka oft
þátt í ránum, og þessháttar, eins og þér vitið. Og þeir eiga oft útlendar
skammbyssur, sem þeir hafa tekið með sér frá öðrum löndum.
Ég veit ekki hvar maðurinn minn er. Og ég hef ekki séð hann i
mörg ár, eins og ég var búin að segja yður.
— Er það yðar síðasta svar, frú Haymes.
— Ég hef ekkert annað að segja.
II
Craddock var bæði sár og reiður eftir samtalið við Philippu Haymes.
Framhald á bls. V).
Síiíií 12287
Einholti 10
Sími 12287
ÍSLENZEi ULL
ÍSLENZK VINNA
GOLFTEPPI
LTON—vefnaður
FLOS OG LYKKJUDREGLAR.
TEPPI, í hvaða stærð og lögun sem er.
Sími 14700 — Box 491
Reykjavík
VIKAN
5