Vikan - 29.05.1958, Side 4
TIL HAMINGJU
MEÐ DAGINIM ...
Hafnarfjörður á afmæli 1. júní.
Það er meir að segja merkis-
afmæli. Hinn 1. júní 1908 fékk bær-
inn kaupstaðaréttindi, og sama
dag voru sjö menn kosnir í bæjar-
stjórn. Hafnarfjörður á því fimm-
tugsafmæli hinn 1. júní, og Vikan
vill nota tækifærið til þess að
verða til þess fyrst blaða að óska
honum hjartanlega til hamingju.
HA /VIHFJÖRO VR
Saga Hafnarfjarðar verður ekki rakin
í stuttri blaðagrein. Sigurður Skúlason
magister hefur skrifað þá sögu fram að
árinu 1933, mikla bók.; og nú er von á
franxhaldinu frá Magnúsi Má Lárussyni
prófessor.
Á hinn bóginn má reyna að stikla á því
stærsta úr sögu bæjarins eftir að hann
varð ,,fullveðja“. Er sú saga Hafnfirð-
ingum til mikils sóma. Þeir eru engra
eftirbátar svo mikið er víst og ryðja enda
oft leiðina rösklega og karlnannlega
þegar þeim býðst svo við að horfa.
Hafnarfjörður er ísland í hnotskurn.
Hafnarfjörður er í serm útgerðarbær og
iðnaðarbær og verzlunarbær, og þar hafa
löngum búið bændur. Hafnfirðingar fóru
heldur ekki varhluta af útlenda valdinu
fyrr á árum; og öldum saman var Hafn-
arfjörður ein mesta verzlunarstöð á ís-
landi; þangað sóttu Þjóðverjar og Eng-
lendingar og Hollendingar — allra þjóða
kvikindi má nærri því segja — til þess
að verzla. Iiafnarfjörður var ekki ómerki-
legri bær í þessum efnum en nágranninn
handan við hálsana — Reykjavík.
Það má meir að segja færa sterk rök að
því, að tilviljunin hafi ráðið nokkru um
það, að Reykjavík varð höfuðborgin okk-
ar en ekki Hafnarfjörður. Reykjavík varð
semsagt fyrir því láni að öðlast kaup-
staðaréttindí þegar Hafnfirðingum var
neitað um þau, og er ekki út í bláinn að
halda því fram, að þetta hafi ef til vill
riðið baggamuninn. Víst er það, að kaup-
staðarheitið og það sem því fylgdi varð
Reykvíkingum mikil lyftistöng í sam-
keppninni við Hafnfirðinga; nú var þetta
orðinn ójafn leikur.
En hvað um það, þó að það ætti ekki
fyrir Hafnarfirði að líggja að verða höf-
uðstaður Islendinga, þá hefur þessi vina-
legi bær reynst íbúum sínum vel. Þó að
þjóðaríþróttin — pólitíska vafstrið — hafi
ekki farið fram hjá Hafnfirðingum frem-
ur cn öðrum Islendingum, þá eiga þeir
það sameiginlegt, hvar í flokki sem þeir
standa, að þykja vænt um bæinn sinn og
vilja hag hans sem beztan.
Atlrafnalífið í Hafnarfirði ber keim af
þessu. Það er fjörugt athafnalíf í Hafn-
arfirði; þar er fátt um slæpingja. Þar á
emstaklingsframtakið dugmikla fulltrúa,
og þar hefur líka bæjarrekstur verið iðkað-
ur af hvað mestu kappi. Þar standa vinnu-
stöðvar eljusamra einstaklinga og svo
bæjarfclagsins alls hlið við hlið — og virð-
ist hvortveggja geta blessast auk þess sem
hvortveggja hefur það sér til ágætis (sem
mestu máli skiptir) að sjá fólkinu fyrir
vinnu.
Hafnarfjörðui' er myndarbær á íslenzk-
um mælikvarða — og raunar þótt víðar
væri leitað. Þar er ekki einungis átt við
sjálf húsin borgaranna og bæjarbraginn.
Víst er óvenjulegur og aðlaðandi svipur
yfir Hafnarfirði þar sem húsin eins og
hreiðra um sig milli hraunborganna; og
Hafnarfjörður er hreinlegur bær, sem
ýmsir aðrir bæir íslenzkir mættu taka sér
til fyrirmyndar í þeim efnum.
En hitt er engu síður athyglisvert, hve
mikið hefur verið framkvæmt í ekki stærri
bæ, hve mikið borgararnir eiga sameigin-
lega. Til dæmis þætti það ekki sjálfsagt
erlendis, að 6400 manna bær ætti ekki
einungis góðan barnaskóla heldur jafn-
veglegan skóla og Flensborg er. Fyrr-
nefndi skólinn var stofnaður 1875, en fékk
ekki sitt eigið hús fyrr en 1902. Núver-
andi skólahús var hinsvegar vigt í októ-
ber 1927 og hefur síðan verið stækkað.
Flensborg er auðvitað landfrægur skóli.
Hann stofnaði séra Þórarinn Böðvarsson í
Görðum árið 1882. Hann var sjálfseignar-
stofnun þar til breyting var gerð á lögum
um gagnfræðaskóla 1930; þá tók bærinn
Þeasir auglýsa í
blaðinu:
Bæjarútgerð Hafn-
arfjarðar, Rafmót-
or, Bifreiðastöð
Hafnarfjarðar,
Rafha, Reiðhjóla-
iðjan Fákur,
Hlutafélagið
Hrímir, Bæjarbíó,
Bátalón, Dvergur,
Kaupfélag Hafn-
firðinga, Nýja
bílastöðin, Palla-
búð, Ragnar
Björnsson, Vél-
smiðja Hafnar-
fjarðar, Bókabúð
Böðvars,
Geir Jóelsson,
Raft.vinnustofan
Kyndill, Steinull,
Stebbabúð, Báta-
fél. Hafnarfjarðar,
Guðmundur Guð-
mundsson, Ishús
Hafnarfjarðar,
Reykdals-íshús og
verksmiðja, Raf-
tæk j avinnustof a
Sigurjóns Guð-
mundssonar, Raf-
veitubúðin, Skelj-
ungur, Landleiðir.
4
VIKAN