Vikan - 29.05.1958, Side 5
við rekstri hans. Húsið, sem hann nú er
í, var reist á árunum 1935—1937. Það
stendur uppi á Hamrinum, sést langft að
og er einhver veglegasta og glæsilegasta
skólabygging landsins.
Bókasafn hefur verið starfrækt í Hafn-
arfirði síðan 1922, elliheimili var komið
á fót árið 1935, góð sundlaug vígð í
ágúst 1943. Hún stendur í hrauninu vest-
an við bæinn. Hún er sjólaug, 25 metra
löng og rúmra þriggja metra djúp þar sem
hún er dýpst.
Hafnfirðingar eru líka svo ríkir að eiga
ráðhús. Það stendur við Strandgötu og
er hið vandaðasta hús. Það var tekið til
afnota haustið 1944; fyrsti fundur bæjar-
ráðs í nýja húsinu var haldinn 23. októ-
ber. Það er frumlegt og skemmtilegt ráð-
hús meðal annars vegna þess, að neðsta
hæðin að nokkru leyti er kvikmyndasal-
ur, sem tekur 325 menn í sæti. Þama hef-
ur Bæjarbíó starfsemi sína: landfrægt
bíó fyrir góðar kvikmyndir. Þarna eru
líka leiksýningar á vegum Leikfélags
Hafnarfjarðar.
Til bæjarútgerðar var stofnað í Hafnar-
firði árið 1927. Hún á nú miklaiP eignir.
Hinn 1. september síðastliðinn tók nýtt
frystihús til starfa á vegum hennar; það
mun vera meðal stæhstu frystihúsa á
landinu. Hjá Bæjarútgerðinni höfðu í vet-
ur um 250 manns atvinnu, sjómenn og
landfólk.
Hér verður ekki farið út í pólitík Hafn-
arfjarðar: það á ekki heima í ópólítísku
vikublaði. Þess er þó skylt að geta —
sem raunar flestir hljóta að vita — að
Alþýðuflokkurinn hefur fremur öðrum
flokkum komið við stjórn bæjarmála Hafn-
arfjarðar síðustu áratugina. Hann stjóm-
aði bænum með hreinum meirihluta í fulla
tvo áratugi.
Ekki er viðlit að heldur að telja upp
öll þau einstaklingsfyrirtæki, sem komið
hafa við sögu Hafnarfjarðar á þeim fimm-
tíu árum, sem hér eru til umræðu. En
við viljum vekja athygli lesandans á aug-
lýsingmn hafnfiskra fyrirtækja í þessu
blaði og auglýsingalistanum, sem við birt-
um með þessari grein. Sýna þessar aug-
lýsingar glögglega, hve mikil fjölbreytni
er í atvinnuháttum Hafnfirðinga, hve víða
þeir koma við sögu — og svo um munar
— í atvinnulífi þjóðarinnar. Eitt iðnfyrir-
tæki verðum við þó að nafngreina hér,
nefnilega „Rafha“. Þetta er ekki einasta
þjóðkunnugt vörumerki og þjóðkunnugt
fyrirtæki, heldur er það merkilegt fyrir
þá sök að vera eina stórfyrirtækið sinnar
tegúndar á öllu landinu. Það er kórónan
á raftækjaiðnaði Islendinga.
Þrjú útgerðarfyrirtæki einstaklinga í
Hafnarfirði viljum við líka nefna með
nafni — um leið og við biðjum hin, sem
ekki eru nefnd, velvirðingar. Við meinum
ekkert illt með því þó að við sleppum
ýmsum góðum nöfnum; við verðum ein-
faldlega að setja okkur einhver takmörk
í þessum efnum vegna plássins.
Við viljum nefna Einar Þorgilsson &
Co. og svo útgerðarfyrirtæki þeirra Jóns
Gíslasonar og Lofts Bjarnasonar. Loftur
hefur lagt mest kapp á saltfiskinn í vet-
ur og gerir út togarann Röðul. Fjöldi
manns hefur haft atvinnu á hans vegum.
Hjá Einari Þorgilssyni unnu í vetur um
80 manns; félagið gerir út togarann Sur-
pris.e, sem er rösklega tíu ára gamall ný-
sköpunartogari, og vélbátinn Fák, sem er
144 tonn. Þetta er gamalt og gróið fyrir-
tæki. Það var stofnað í núverandi mynd
árið 1924 með togarakaupum, og hét fyrsti
togari þess líka Surprise. Hús þess, mikil
og myndarleg, blasa við manni þegar ekið
er inn í Hafnarfjörð norðanverðan.
Þá er það Jón Gíslason með allar sínar
framkvæmdir. Á nýlokinni vertíð hafði
Þessir eiga nú sœti
í bœjarstjón i Hafn-
arfjaröar:
Guðmundur Gissurar-
son (forseti), Þórunn
Helgadóttir, Kristinn
Gunnarsson, Árni
Gunnlaugsson, Krist-
ján Andrésson, Stefán
Jónsson, Elín Jósefs-
dóttir, Eggert Isaks-
son, Páll V. Daníels-
son.
Stefán Gunnlaugsson
er bæjarstjóri.
Myndirnar:
Amatörvinnustofa Guð-
bjarts Ásgeirssonar,
Hafnarfirði.
BÆKUR
RITFÖNG
LJÓSMYNDAVÖRUR
Bókabúð Böðvars
Strandgötu 3 — Sími 50515
HAFNARFIRÐI
hann um 120 manns í vinnu í landi, en
níu bátar lögðu upp hjá honum. Á þeim
munu hafa starfað um hundrað sjómenn.
Samkvæmt lauslegri áætlun, munu fyrir-
tæki Jóns Gíslasonar hafa framleitt um
37,000 kassa af flökum í vetur (Hf. Frost
nefnist frystihúsið) og um 350 tonn af
fullhertri skreið. Og þegar Vikan hafði
samband við skrifstofu Jóns fyrir tíu dög-
um, var hann byrjaður að frysta síld.
Bátarnir Jóns eru eftir á að hyggja „Klett-
arnir“ og svo Faxaborgin.
Og hér skulum við þá skilja við Hafn-
arfjörð, kveðja hann fimmtugan í fiskin-
um. Því að fiskurinn er, þegar öllu er á
botninn hvolft, gullið okkar íslendinga,
tekjulindin sem allt veltur á.
Og það hafa þeir í Hafnarfirði alltaf
skilið.
Bátafélag
Hafnarfjarðar h.f.
BJÖRG H.F.
BJARG H.F.
Álfaskeið 36, — Sími 50127
Hafnarfirði
Kaup og sala
á sjávarafurðum.
Sí Ida rsöltu n a rs töð.
Framkv.stj.: Jói Halldórsson,
Álfaskeiði 36. £ími 50127
VIKAN
5