Vikan


Vikan - 05.02.1959, Qupperneq 4

Vikan - 05.02.1959, Qupperneq 4
Örstutt smásaga eftir IXIorman Stanley Bartner ■■■■■■■■■■■**■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ b ■■■■■!■■■■ im ■■■■■■■■■■ ■■■■■■iinnm væri of snemmt eftir matinn. Sagði að hann skyldi bíða dálítið. En hann hafði hlegið eins og smástrákur og kitlað hana undir kinninni. Og svo hafði hann hlaupið eftir bryggjunni og stung- ið sér á kaf í vatnið. Mér fannst ég enn heyra þytinn er hann hljóp fram hjá mér. Ég held það hafi verið þetta kitl hans við kinnina á henni sem varð til þess að ég hreyfði hvorki legg né lið, þegar hann sökk. Klara var ekki þesskonar kvenmaður, sem hægt er að kitla undir kinninni. Þú mundir ekki syngja rokklög í kirkju. Það situr ekki á mér að tala um kirkjur, en þannig voru tilfinningar mínar gagnvart Klöru. 1 gær sá ég hana í fyrsta sinn á þremur árum og mér leið ennþá verr en þá, þó svo langt sér um liðið. Miklu verra. Ég elska hana dýpra. Hún var ekki lengur ung stúlka. Hún var orðin full- þroska kona. Og hún var gift Karli Bullard. Ef allt hefði gengið að óskum, hefði hún gifst mér. En allt gekk ekki að óskum. Ég hélt að starf í Buenos Aires og rosahátt kaup mundi koma undir mig fótunum. Þess í stað lærði ég að njóta lífsins þessi þrjú ár í Buenos Aires og varð ekki ríkur nema af reynslu. Ég hafði teflt of djarft. Þrjú ár . . . Við höfðum skrifast á fyrstu mánuðina. Við söknuðum hvors annars af öllu hjarta og þráðum þá stund þegar við næðum saman á ný. Ég hafði ekki gert ráð fyrir að vera í burtu nema eitt ár. En smámsaman urðu bréfin strjálli og síðan hættu þau með öllu að berast. Sökin var mín. Ég gat ekki haldið áfram að skrökva að henni um fjárhaginn. Ég átti að spara og leggja fyrir, það hafði verið ætlunin. Það var liðið á annað ár þegar ég frétti að hún væri gift. Þessar fréttir bárust mér ein- hvernveginn. Ég kærði mig kollóttan um þær mundir. Ég hafði annað að hugsa um. Þrjú ár eru langur tími. Næstum eins langur tími og það tók fyrir Karl Bullard að sökkva til botns. Hann var nálægt botninum núna og ekki vel gott að grilla í hann. Það rétt mótaði fyrir útlínunum. Þrjú ár voru nógu langur tími til að ég fengi mig fullsaddan af unaðsemd- um Argentínu. Einhvernveginn frétti Klara að ég væri kom- inn aftur til landsins og skrifaði mér bréf. Það var bara vingjarnleg kveðja til að bjóða mig velkominn heim. Það þýddi það að hún bar enga beiskju í minn garð. Hún var ekki lengur ung stúlka. Og þó langaði mig skyndilega til að hafa tal af henni, sjá hana. Ég hafði upp á henni hér við vatnið. Hún var ennþá furðu lík því sem hún hafði verið, en þó ögn stilltari í framgöngu og öll fágaðri í fasi. Hún var ennþá sú sama Klara sem ég hafði þekkt hér áður fyrr, þó hún væri nú þrýstnari og þreknari en áður. Hún hafði verið grönn og spengileg. En það var eitthvað i augum hennar sem kom mér til að óska að ég hefði aldrei farið frá. henni. Það var einhver glampi í augnaráðinu. Það var ekki aðeins vingjarnlegt tillit. Það var eitthvað annað og meira. Og það var þessi glampi sem varð til þess að ég hafði mig ekki í ' að fara frá vatninu og hverfa á brott. Ég hefði ekki verið kyrr á landar- eign Bullards nema bara vegna þessa glampa. Hópur gesta sem sátu og spjölluðu saman um allt og ekkert, leiðinlegir eins og allir gestir. Eiginmaður sem brosti bjálfalega til hennar og var sí og æ að kitla hana undir hökunni. Glamp- inn í augum hennar þegar hún leit til mín, hann vó upp á móti öllu liinu. Mig langaði til að hafa augun af Bullard og líta um öxl til Klöru þar sem hún sat að baki mér. Mig langaði að sjá glampann í áugunum þegar ég horfði til hennar. En ég gat mig hvergi hrært. Þess í stað fór ég að hugleiða eitthvað skemmti- legt. Ef ég sæti kyrr örfáar sekúndur lengur á bryggjunni, þá mundi Klara eignast húsið og landið og vatnið og baðströndina og álitlegar fúlgur í ýmsum bönkum. Hún yrði stórauðug. Þrjú ár í Argentínu fóru fyrir lítið en þrjár Framhald á bls. 18. Er G spurði sjálfan mig hvort ég hefði nokkra ástæðu til að bjarga Karli . Bullard frá drukknun. Þó var síður en svo að ég hataði hann. Hann var svo sem nógu vænn piltur. Hann var ekki nema unglingur, auðvitað, alltof væm- inn, alltof lingerður, alltof rikur. Bara ef hann hefði ekki gifst Klöru. Annars hefði ég bjargað honum á svipstundu . . . En þess í stað horfði ég á hann hverfa í djúpið. Enginn gæti vitað hvað ég hafði gert — að ég hefði átt jafn mikla sök á dauða hans og hefði ég ýtt honum sjálfum í sjóinn. Hvernig gat nokkur maður vitað um þetta? Ég sat kyrr og rólegur á bryggjusporðinum og lét fæturna lafa fram af og reykti sígarettu. Fyrir aftan mig sat eiginkona Karls Bullard og talaði rólega við einhvern gesta sinna og fyrir aftan hana gat að líta strandlengju og baðstað Karls Bullard, sem náði alla leið upp að glæsi- legri lystihöll Karls Bullards hinum megin við stöðuvatnið sem einnig var eign Karls Bullards. Og ég starði niður milli fóta mér á Karl Bullard á vatsbotninum. Hann horfði beint framan í mig um leið og hann sökk. Það var undarlegt biðjandi, kvala- fullt augnaráð sem hann sendi ■ mér eins og hann vissi hvað var að gerast og væri að reyna að segja mér það. Hann hafði opnað munninn til að hrópa upp yfir sig en drukkið um leið munninn fullan af vatni og sokkið á svipstundu. Það var augsýnilega krampi sem varð honum að fjörtjóni. Vatnið var sex metra djúpt við bryggjusporð- inn og gagnsætt til botns. Það virtist næstum of gagnsætt -— sakleysislegt — til þess að valda mannsdauða. Ég gat séð greinilega hvernig Karl Bullard braust um, af erfiðismunum. Hann var ekki kominn hálfa leið niður. Hvenær mundi hann snerta botninn. Tvær sekúndur ? Tíu sekúndur ? Ein sekúnda virtist vera lengri en heil eilífð . . . Klara hafði varað hann við. Sagði að þetta Örlagastundin 4 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.