Vikan


Vikan - 05.02.1959, Side 9

Vikan - 05.02.1959, Side 9
FramhaSdssaga effir COLETTE „Já. Manstu þegar við fórum til Cabourg með yndislegu, kastaníubrúnu hryssuna mlna?“ „Já, og Espivant líka. Gleymdu því ekki.“ ,,Já. Þú ert alveg ákveðinn ?“ „Nema það verði hellirigning þann dag, auð- vitað.“ „Já. Hefurðu frétt nokkuð frá Carneilhan? Hvernig er veðrið þar?“ ,,Skínandi.“ Julie var hrædd um, að hún væri of áleitin. En hana langaði til þess að spyrja hann fjölda spurn- inga, um herbergið niðri, bláa herbergið, hænsna- bændurna þrjá, kynbótahryssurnar og jafnvel Carneilhan gamla. Hún þráði að geta lagzt í heyið, hún þráði loftið og jarðveginn. Hún stóð skyndilega á fætur. „Sittu kyrr. Ég ætla að fara og hella upp á. Viltu taka af borðinu?“ Þegar hún kom aftur með brúnu kaffikönn- una, hafði dúkurinn verið lagaður á spilaborð- inu, whisky- og koníaksglösin, sígaretturnar og bollarnir lagðir afsíðis. Julie gaf frá sér viður- kenningarblístur. Áður en hún settist, tók hún bréf upp úr kassa þeim, sem hún geymdi ástar- bréfin í, og rétti bróður sínum. „Hvernig lízt þér á?“ Hann las það hægt, og áður én hann lagði það frá sér, gekk hann úr skugga um, að bréfið bæri rétt vatnsmerki. „Eg skil mætavel, að þú geymir það. Það kem- ur þér einni við. En satt að segja finnst mér lítið til þess koma. Hversvegna sýndirðu mér það?“ „En það varst þú sem . . . sem sagðist halda, að Espivant væri forríkur og . . .“ Carneilhan greip fram í fyrir henni. „Ég meinti, ef hann myndi deyja, ekki hvaða gagn væri hægt að hafa af honum á lífi. Þetta bréf er skrifað, áður en þú lagðir í það kjána- lega fyrirtæki að gifta þig. Langar þig til þess að kveða upp þennan gamla draug?“ „Nú, jæja,“ sagði Julie annars hugar. „Við skulum gleyma því, að ég hafi minnzt á þetta.“ „Ég segi þér það í eitt skipti fyrir öll, að þú getur ekkert gagn haft af samskiptum þínum við Espivant." „Því þá?“ „Því að þú ert svo veikgeðja." Hann starði á systur sína. Hún laut niður, tók að afhýða hnetur og brenndi á sér varirnar á sjóðandi kaffinu og reyndi að forðast blá níst- andi augu hans. „Hvað kemur þér til þess að segja þetta?“ „Þetta er min skoðun, það er allt og sumt.“ „Eða þá að einhver vina þinna hefur komið þessu inn í kollinn á þér, sem hefur ætlað að hagnast á því.“ Julie rétti skyndilega úr sér og sagði hryssings- lega: „Góði minn, það getur verið að ég segi vinum mínum frá ýmsu, en ég blanda þeim ekki í fjöl- skyldumál mín!“ „Espivant er ekki í f jölskyldunni," sagði Carn- eilhan. „Nei. En við skulum ekki fara að rífast. Við skulum hætta að tala um þetta. Mér skjátlaðist. Þér skjátlaðist líka, og Herbert er orðinn full- frískur. Veiztu, meðal annarra orða, að hann sá aldrei eyri af þessum fræga heimamundi ? Hann sagði mér það sjálfur.“ „Ég trúi því mætavel,“ hreytti Carneilhan út úr sér. „Hann er líka bölvað fól.“ ,,Ég viðurkenni, að hann er ekkert ofurmenni, enfól? . . .“ ,,Já. Hann hefur ekki gert annað en heimsku- pör alla sína ævi — en alltaf á ákaflega klókan og gáfulegan hátt. Þessi snillihugmynd hans, síðasta gifting hans, tökum það bara sem dæmi. Ef ég giftist ríkri konu, myndi ég láta hana þræla fyrir mig. Ég myndi láta hana fægja stígvélin mín.“ „Það er alltaf svo yndislegt að krjúpa að fót- um þér.“ ,,Þú kemst ekki undan öllu,“ hélt Carneilhan áfram. „En ég myndi aldrei giftast ríkri konu.“ Hann hugsaði sig um um stund og leit síðan upp, magur og kinnfiskasoginn. „Ef honum heppn- aðist ekki að ná i heimanmund sinn, hvernig datt þér þá i hug að biðja um milljónina eða hluta af hehni?“ Julie sótroðnaði og gerði sér upp skilnings- leysi. „Nú, þú veizt, að allt sem ég geri, það geri Framh. á bls. 13. Húsbyggjendur Húseigendur Vandið val kynditækja fyrir hús yðar. Reynslan í undangengu kuldakasti hefur sannað að REXOIL reynist bezt. Þeir líða ekhi af kulda sem nota REXOIL olíuverzlun' JP Í5LANDS SlMAR 24220 — 24236 VIKAN 9 X!'a-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.