Vikan


Vikan - 05.02.1959, Page 19

Vikan - 05.02.1959, Page 19
Að dúka borð og skreyta Við töluðum um það í seinasta blaði, að núna mundum við koma með ýmsar uppástungur í þess- um efnum. Þótt ekki sé mikið borið í venjulegar máltíðir að jafnaði mun fjölskyldan njóta þeirra í ríkara mæli, ef hún sezt að borði, sem er í senn hreinlegt og smekklegt. Borðdúkurinn verður að vera bæði hreinn og heill og einnig matardiskar og hnífapör. Vitanlega skapar það meir erfiði, en er þess virði, því að það er ekki síður mikils virði að vera góð húsmóðir fyrir sína eigin f jölskyldu en þótt gesti beri að garði. Svo að við snúum okkur að þessu ótæmandi viðfangs- efni -—■ að dúka borð og skreyta — þá vorum við búin að nefna þrjú megin- atriði í síðasta blaði, dúk- inn, skreytingarsvæði borðs- ins og staðsetningu postu- líns, silfurs og glasa. Það er þó eitt, sem ég vil nú þeg- ar taka sérstaklega fram, en það er, að það getur orðið leiðigjarnt að fara alltaf eftir vissum reglum. Bezt verður ávallt, ef þér getið sjálfar ákveðið og út- búið eithvað, þannig að það verði persónulegt. Þær veizl- ur, sem talað er um og vekja eftirtekt gestanna, eru þær, sem húsmóðirin hefur sjálf haldið eftir sín- um eigin smekk og sérker.n- um, bæði að því er viðkem- ur skreytingu og borðbún- aði. Margt er fleira til en blóm, skálar og kertastjak- ar að skreyta með. Verðið alveg ófeimnar við að nota óvenjulega hluti ef þeir að- eins eru í samræmi við ann- að á borðinu, og verið ekki hikandi við að nota sterka liti. Borðskraut á alltaf að vera lágt, en kertin há. Gestirnir eiga að geta séð Smurt brauð og snittur AÐ hefur farið talsvert í vöxt hér hin síðari ár að hafa nokkrar teg- undir af smurðu brauði ásamt kökum í kaffiboðum, og fer óneitanlega mjög vel á þvi. Þó að alls konar kökur og tertur þyki góm- sætar og vel viðeigandi, eru þó flestir, sem ekki þykja síðra smurt brauð með ljúf- fengu og jafnframt fallegu áleggi. Pallega og smekk- lega smurt brauð er ekki | m. Börnunum þykir gaman að hjálpa til við að smyrja brauð- ið, þegar þau eiga von á gestum, t. d. í afmælisveiziuna sína. siðra augnayndi en glæsi- legar tertur. Nú vita allir, að það er dýrt að kaupa tilbúið smurt brauð og snittur, og má þvi spara mikið fé með því að kaupa brauðið í næsta bakaríi og smyrja það sjálfur. Þegar þér ætlið að fara að smyrja brauð, er nauð- synlegt að allt, sem til þess þarf, sé við hendina. Þar má nefna brauðbretti, brauðskurðarhnífa, gaffla og föt undir brauðið. Eins er nauðsynlegt að hafa nær- tæka diska undir leifar og afganga. Reynið að vinna skipu- lega, smyrjið t. d. í einu allar þær brauðsneiðar sem eiga að hafa sama álegg. Leggið fyrst á brauðið þær áleggstegundir, sem ekki gefa frá sár bragð. Leggið t. d. reykt kjöt, lax, sild og ansjósur siðast á brauðið. Þvoið og þurrkið áhöld- in eftir hverja áleggsteg- und. Gætið þess einnig, að smurða brauðið smiti ekki bragði hvert á annað, með- an það bíður á fötunum. Leggið álegg eins og ost, búðina og pylsur þannig, að það hylji alveg brauð- sneioina. Gerið samskeyti slétt, bein og falleg. Álegg. sem nær út fyrir sneiðina má skera af með beittum hníf. Hér eru nokkrar tegundir af smurðu brauði: SNITTUR. Franskbrauð skorið í hring með rækjum (raðað í hring), mayonnaise og Vi parti úr sítrónusneið. Franskbrauð skorið í hring með eggjum og tómat og mayonnaise. Franskbrauð skorið í þrí- hyrning með eggjum og sardínum. vel hver framan í annan. Það er óþarfi að hafa of mikið af blómum og ekki alltaf fegurðarauki. Sígarettur og öskubakkar þurfa alltaf að vera á borð- inu, þrátt fyrir þann sið að bjóða ekki að reykja, fyrr en eftir kjötið eða millirétt- ina, því að sumt fólk vill reykja fyrr, og þá er gott að vera við því búinn. Svo að við minnumst aftur á dúkana, er til damask í yndislegum litum, t. d. pas- tell, en þegar litur er val- inn, verður að hafa í huga postulín, sem á að nota, og auðvitað er hvítt alltaf sí- gilt. Damask, blúnda og alls konar vönduð efni í dúka er notað í meiriháttar veizl- ur. Venjulegir bómullardúk- ar, skrautlegt steintau og skemmtilegt keramik geta gefið sérstaka fjölbreytni í litum og er því oft heppi- legt í smáveizlum. Hér eru nokkrar tillögur, sem hægt væri að hafa hlið- sjón af. Við dimmbláan dúk er fallegt að hafa hvítan eða hvítan og bláan borð- búnað og blá glös. Fallegt er að hafa lága silfurskál eða bláa skál fulla af rauð- um eplum og grænum blöð- um. Við hvítan eða gulan dúk getur verið fallegt að hafa hvíta postulínsskál með hvítum og gulum blóm- um. Ef til væru t. d. fjórir postulínsfuglar, hvítir, væri fallegt að hafa þá umhverf- is skálina. Við damaskdúk er fallegt að nota silfur eða kristallsskálar einnig spegil og skrautker. Hlaða af marglitum ávöxtum í körfu eða bastdiska umkringt grænum blöðum má líka hafa, en ekki bastdiska við blúndudúk. Einnig má láta falleg pottblóm (vafnings- jurtir) á sinn hvorn enda borðsins og láta blað grein- arnar teygja sig að miðju borðsins. Fyllt kálfsbringa. li/2 kg. kálfsbringa, kjötdeig, salt, pipar, 1/2 1. sjóðandi vatn, 50 gr. smjörl. 40 gr. hveiti, steikarsoðið, sósulitur, 2 ms. rjómi. Takið beinin úr kálfs- bringunni og hreinsið hana. Leggið kjötdeigið á og vefjið saman. Saumið og vefjið utan um, eins og um Franskbrauð skorið í hring með döðlum, rjóma og vínberjum (eða kirsu- berjum). Franskbrauð skorið i þrí- hyrning með lax og hrœrðum eggjum. Hrærð egg: 3 egg, 3 msk. mjólk (rjómi), 14 tek. salt, 20 gr, smjörlíki. Eggin eru sett í skál og hrærð, mjólkin (rjóminn) sett þar í. Smjörlíki brætt á pönnu, eggjajafningur settur þar í og hrært í á meðan það er að hlaupa. Framh. á blas. .25 rúllupylsu. Stráið salti og pipar á og brúnið smjörL Hellið sjóðandi vatni yfir og látið sjóða ca. 1% klst. Bú- ið tli brúna sósu. Berið hrærðar kartöflur með. Vaniiluís. 1/2 1. rjómi, " : 5 eggjarauður, m ' 75 gr. sykur, vanilla, " Blandið saman þeýttmn rjóma og eggjarauðuhum hrærðum með sykri óg vaii- iliu og frystið. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.